Forskaren

Sunday, February 13, 2005

Velkomin á heimili Forskarans

Halló Halló!!
Loksins lætur Forskaren verða að því að stofna sína eigin bloggsíðu. Það hefur lengi verið í bígerð en vegna anna og annara truflanna hefur ekki orðið að þessu fyrr en nú. Ég býð auðvitað alla velkomna á nýja bloggið sem kemur til með að fjalla um allt og ekki neitt. Hvað sem Forskaranum dettur í hug þá stundina verður tjáð hérna á þessum síðum. Þar sem Forskaren þykir með eindæmum málglaður og getur kjaftað sjálfan Jón Baldvin í kaf þá var þessi ákvörðun tekin að fara út á vefinn til að tjá sig. Þetta þýðir ekki lengur að vera að enda á trúnó alltaf hreint eða gera annan skandal. Ef maður ætlar sér að missa æruna, þá er náttúrulega miklu skynsamlegra að gera það bara hérna á síðum tölvunnar.

3 Comments:

  • At February 13, 2005 , Blogger von grumpenhofen said...

    Vertu hjartanlega velkomin! Við meigum eiga von á mörgum og djúpum hugrenningum og er það hið besta mál en ef hún ætlar að fara að tjá sig í löngu máli um sænsk málvísindi má hún eiga von á cyberskítkasti úr öllum áttum

     
  • At February 16, 2005 , Blogger Forskaren said...

    Jæja, núna á ég að vera búin að laga comment síðuna og vonast ég til að allir reyni að senda forskaranum eitthvað viturlegt comment, sér til gamans....

     
  • At February 17, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Til hamingju með bloggið!

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home