Veður dauðans
Góðan daginn! Akkurat á svona dögum á maður að hugsa hversu fallegt lífið er og hvað það var nú gott að liggja á ströndinni í Los Angeles fyrir ári síðan....(með kokteilinn í hendinni að sjálfsögðu). Þorrblóts-ælurokkspartýið seinasta laugardag heppnaðist með eindæmum vel og allir voru bara í músí fílíng nema einn ónefndur sem gekk um gólf með gítarinn á lofti eins og barefli og röflaði þessi heilu ósköp. Fólk heldur að það hafi verið útaf bjórtunnunni sem ónefndur hellti ekki bara upp í sig, heldur á sig líka.
En Forskaren þótti með eindæmum prúður og allir klöppuðu í lokin fyrir þessari framúrskarandi prúðmennsku. Það var mjög gaman að fá gamla vini í heimsókn og ekki verra að lúftgítarinn var meira að segja tekin og skoðanaskipti urðu um Titanic og Forrest Gump. Geri aðrir betur í dönnuðu rauðvínspartýi. The Músí man var sárt saknað en hann var víst í jakkarfötunum með spúsunni að borða kálfakjöt og annan ófögnuð á Broadway (Sorry! En hvað er Broadway eiginlega að gera á lífi ennþá????) Semsagt, allir skemmtu sér vel og úr þessu ágæta partýi varð meira að segja eitt deit næsta föstudag....fleiri fréttir seinna.
Ætli ekki sé komin tími til að lesa allt um Sören Kirkegaard (sem ónefndur hélt að hefði skrifað gúmmítarzan.....) og Hegel osv.
Prófið að Commenta á þetta blaður í mér og segið mér ef vel tekst til. Þetta á að vera komið í lag.

5 Comments:
At February 16, 2005 ,
Anonymous said...
Nú er úti veður vont, verður allt að klessu osv. Lifi sænsk málvísindi!
At February 16, 2005 ,
Anonymous said...
ég er að prófa mína eigin síðu. Ég er búin að lesa svo mikið um einstaklingshyggju Kirekegaards að bloggið heltók minn Hegelíska huga í smástund....annars bara að athuga hvort maður getur ekki sent comment....voðalega er maður eitthvað upptekin af þessu!
At February 16, 2005 ,
Anonymous said...
Ég held líka að þessi Kirekegaard hefi samið einhverjar barnabækur, nafnið hljómar bara þannig. Ef þetta svonefnda heimspekirit fjallar um tvö börn sem lenda í ævintýrum í leit að týndum fjársjóð og eiga vonda stjúpu og páfagauk þá er ég ansi hrædd um að Forskaren sé í vondum málum þegar að þessum fyrirlestri kemur (átti að lesa bók eftir Sivert Kirkenbuch sem er auk þess þýskur og var með kenninguna um að ekkert væri jafn stórt og það sýndist)
At February 16, 2005 ,
Anonymous said...
Sören Kirekegaard sagði víst að maður gæti ekki skilið lífið nema með vísu í hið liðna, en aðeins væri hægt að lifa því með því að horfa fram á við - mikil speki það
At February 17, 2005 ,
Anonymous said...
Nei, nei Gúmmítarzan var hvorki að líta fram eða aftur í lífinu, hann var strákur sem lagður var í einelti en reis úr öskustónni... eru þið virkilega ekki búin að lesa þetta?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home