Samviska samtíðarinnar
Ég er að hugsa um að skipta um aðalfag í skólanum og fara frekar í heimspeki. Í þeirri grein er svo mikið til af gáfuðum og fallegum karlmönnum. Þar eru allir dökkhærðir (eins og ég vil hafa þá) og þar eru allir með falleg augu (hver vill það ekki???) Og svo hafa þeir allir eitthvað sniðugt að segja þannig að þú gleymir þér alveg í einlægum hlátri yfir sorg heimsins og brosir í gegnum tárin til hins örvæntingarfulla - en fallega - heimspekinema sem heldur fyrirlestur um Kierkegaard og hvernig heimurinn í dag er bara alveg við það að hrynja ofan á hausinn á öllum. Ég sé alveg í huga mér hvernig deit með svona íturvöxnum og íturmyndarlegum heimspekinema mundi fara fram. Fyrst talar maður illa um raunveruleikaþætti og lýgur því að hafa aldrei horft á Oprah og viti ekki einu sinni hver Jay Leno er. Svo er ég auðvitað sammála öllum fordómunum gagnvart Bandaríkjunum sem koma út úr honum og yfir matnum, víninu og kertaljósinu sannfæri ég hann um að þetta er eiginlega bara allt að verða búið bráðum og að Sören Kierkegaard (sem skrifaði nota bene ekki Gúmmítarzan) hafi alveg rétt fyrir sér. Það er eins gott að taka ástarstökkið áður en allt er um seinan. Þetta er hægt með fallega og hreinhugaða heimspekinemanum, á meðan bókmenntafræðineminn mundi túlka allt sem ég segði og allt auðvitað á einhvern feminískan eða semíótískan hátt. Ég myndi aldrei fá manninn út úr veitingarhúsinu einu sinni þar sem hann myndi ekki samþykkja að standa upp fyrr en búið væri að greina og túlka bæði Ugg og Ótta og Endurtekninguna eftir Kierkegaard. En það er auðvitað jafn óraunhæft eins og að ætla sér að bókmenntafræðineminn myndi fara að taka upp á því að klippa á sér hárið, laga gleraugun eða snyrta skeggið (sem nær honum orðið niður á maga).
Nei, ég held að ég fari bara í heimspekina. Hún er miklu einfaldari. Allir þessir menn sem um er rætt í tímum vita hvort sem er allt og hvernig allt gengur fyrir sig.
Annars er ég búin að komast að því að ég er svokallaður sínisti. En það er sá sem er bara búin að fatta að hlutirnir eru bara eins og þeir eru. maður hugsar kannski svona á morgnanna: ,,Hvað er þetta eiginlega, ekkert mun hvort sem er breytast í dag. Ég mun ekki verða allt í einu eins og Cyndi Crawford og ástin mín eina mun ekki fatta að ég er hin eina rétta handa honum og þess vegna mun hann koma hlaupandi í gegnum rigninguna til að segja mér að hann vilji bara mig eina (ég veit ekki af hverju það er alltaf svona mikil rigning í þessari pælingu hm...), heldur mun ég bara vera ég og það er bara fínt mál. Lifi sínistinn!

4 Comments:
At February 18, 2005 ,
Anonymous said...
Mér finnst að allir ættu að vera sínistar og hætta öllu bulli. Ef maður er endalaust að greina allt í tætlur þá missir maður bara af öllu sem skiptir máli...sjálfri upplifuninni.
þetta er fyrsta comment mitt til froskarans, ver hjertelege velkommen pá blogget.
At February 19, 2005 ,
Anonymous said...
Það væri óskynsamlegt að ætla sér eitthvað meira en saklaust deit við heimspekinema því ef það endaði með sambúð þá gætir þú verið viss um að hann gæti ekki gert við bílin ykkar, lagað þvottavélina eða smíðað eldhúsinnréttinguna. Svo passaðu þig!!! Og ekki fengir þú heldur samþykki fyrir að kaupa stöð 2 eða álíka vitleysu!!!
At February 21, 2005 ,
Anonymous said...
Ég er enn ekki orðin Sínisti, sé alltaf allt í móðu og rósbleikum lit....Grínisti væri nær lýsingunni!!
At February 21, 2005 ,
Anonymous said...
Heimspekingar er fólk sem veit ekkert hvað það ætlar að gera í lífinu og nennir ekki að vinna almennilega vinnu heldur vill bara sitja á og klóra sér í hausnum yfir umbreytileka heimsins og velta endalaust fyrir sér hvort maðurinn sé útreiknanlegur eða ekki eða er þetta allt saman bara ímyndun? Við þá segi ég bara, get a life! Og til að svara þessum spurningum í eitt skipti fyrir öll svo þessir menn geti farið að snúa sér að einhverju gagnlegu þá ER heimurinn umbreytanlegur, helmingur mannkyns er útreiknanlegur (þ.e karlmenn) og það eina sem er ímyndun hjá fólki er þegar það telur sjálfu sér trú um að það hafi efni á stærra húsi, stærri jeppum og fleiri utanlandsferðum
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home