Cosmogirl
Jæja, helgin afstaðin og eins og segir á síðum hinnar víðfrægu Grumpu, þá var brugðið af vananum á laugardagskvöldinu og Húsfrúin í Vogunum heimsótt með mikilli viðhöfn.
Þar upphófst mikil umræða um hvort væri betra; Sadómasókista, morðingja myndband með Marlyn Manson eða (ó)rómantískar klassískar ,,kvennamyndir" eins og Pretty Woman eða Love Actually (margir viðstaddir myndu reyndar kalla það efni fyrir sadómasókista).
En talandi um auðtrúa konur og annan ófögnuð, þá var ég á fyrirlestri í morgun um Cosmoblaðið og þar tóku tvær stúlkur til máls. Þær litu að sjálfsögðu báðar út eins og Cosmogirl og sóru þess dýran eið að þær þoldu ekki þessi ljótu blöð sem gerðu ekkert annað en að láta konum líða illa með sjálfan sig og að engin heilbrigð kona í dag liti tvisvar á þessi blöð. Og þá sérstaklega ameríska útgáfan. Það voru bara engar vitrænar greinar í ameríska Cosmoblaðinu!! En allavega í ensku útgáfunni, þá var eitthvað vitrænt í þessu öllu saman......Það er sko miklu betra að lesa breska Cosmoblaðið og maður verður einhvern veginn bara miklu vitrari af því. Já, einmitt. Maður kaupir að sjálfsögðu Cosmo því að manni langar svo að lesa eitthvað vitrænt. Af hverju ekki bara að koma út úr skápnum og viðurkenna að maður les/skoðar ekki þessi blöð til að öðlast þekkingu á heimsmálum. Hver er svona vitlaus að kaupa Cosmo til að fylgjast með því sem er að gerast í pólitíkinni í Evrópu?? Ég bara spyr í sakleysi mínu. Ég kaupi (reyndar ekki Cosmo) tískublöð til að skoða tísku. Búið basta. En dauðasynd Cosmostúlkunar með fyrirlesturinn er sá að viðurkenna að hún les Amerískt efni. Guð hjálpi elsku stúlkunni frá því. Ein hélt því meira að segja fram að við Íslendingar værum bara svona rosalega sjálfstæðir að við þurfum engan svona ófögnuð inn í okkar þjóðfélag. Það vantaði bara að einhver hefði hents upp úr sætinu og æpt: Lifi sauðkindinn og stelpur, aftur í plíseruðu pilsin!!
Hvernig er þetta með Íslendinga eiginlega? Erum við alveg að missa okkur í fordómana? Mér finnst Íslendingar næstum því fara fram úr Svíum í fordómunum. Má ég spyrja, hver er munurinn á því að Bandaríkjamaður er með fordóma gagnvart svarta manninnum eða mexíkananum, Írakinn með fordóma gagnvart öllum Vesturlandabúum eða Íslendingur með fordóma gagnvart Bandaríkjamanninum? Það er náttúrulega engin. Það eru bara allir eins og allir eru fullir af fordómum. Ég er til dæmis full af fordómum út í aumingjans fordómafullu stúlkuna sem þótti allt bara vera eitthvað svo asnalegt við þetta vitlausa Cosmoblað...

7 Comments:
At February 21, 2005 ,
Anonymous said...
Þetta endalausa skítkast í Bandaríkin flokkast eiginlega undir það sama og þegar einhver hreinsast af heilaþvotti eða sleppur úr sértrúarflokki. Manneskjan þarf að hreinsa út tilfinningarnar með öfgum og Bandaríkin liggja dásamlega vel við höggi.
At February 21, 2005 ,
Anonymous said...
Ég datt til dæmis í hálkunni um daginn og ég get svo svarið það að það var amerískur túristi sem brá fyrir mér fæti. Hann leit út eins og George Bush og var mjög illskeyttur í framan....aumingja ég!
At February 21, 2005 ,
Anonymous said...
Ég hef ekkert á móti svertingjum, hommum, jeppaköllum, Breiðholtspakki...afsakið Breiðholtsbúum, Kínverjum, Sjálfstæðism0nnum og Ameríkanar meiga alveg vera fáfróðir, ólæsir, hrokafullir,ofbeldisbrjálaðir og byssuóðir hillbillys fyrir mér svo framarlega sem þeir eru það heima hjá sér og ég kaupi bara Playgirl út af greinunum
At February 22, 2005 ,
Anonymous said...
Auðvitað elskum við að lesa svona kellingardraslblöð að vísu er Grumpa að sjálfsögðu í töffarakellingarblaðageiranum... les hún líka tattúblöð? Það væri nú góð stúdía fyrir menningartímarit!!!!
At February 23, 2005 ,
Anonymous said...
ég er áskrifandi að "Bikers with tattoos" og finnst "Tattoo you" vera besta Rolling stones platan
At February 25, 2005 ,
Anonymous said...
Íslendingar eru búnir að vera fordómafull og hrokafull síðan í árdaga. Hvaða heilvita manni sem ekki er að deyja úr hroka dettur t.d. að fara á árabát með segl úr samansaumuðum sauðskinnum alla leiðina til Ammeríku? Og hvað gerði Guðrún Ósvífursdóttir - skildi við manninn sinn bara af því að hann vildi kúra í kvennmanstreyju? Sérhvert var nú skilningurinn þar á bæ. Að vísu var hún Bergþóra gift Njáli sínum þrátt fyrir að honum yxi ekki grön, ætli þau myndu ekki bara lesa Cosmo saman, ef þau væru uppi í dag ????
At February 25, 2005 ,
Anonymous said...
Jú jafnvel þó blaðið hafi verið uppi í árdaga. Greinar eins og "you are what you eat" engin vill líta út eins og sviðin sauðhaus!! ."Leave the flatbread, take the axe" aldrei að vita hvenær maður þarf að myrða einhvern og " Ten rules to follow if you want to get him to take the yearly bath" þegar kindurnar vilja ekki einu sinni koma inn úr kuldanum!!!
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home