Forskaren

Saturday, February 26, 2005

Frelsi og firring

Má ég kasta einni spurningu fram? Hvað er frelsi? Og er einhver frjáls? Svör óskast takk. Það er ekki hollt að fara í of marga heimspekitíma, maður er farin að skilgreina allt útfrá heimspekilegu sjónarhorni og á meðan gleymir maður grundvallarhugtökum úr bókmenntafræðinni eins og Thesis og hvað Hvörf heitir á grísku. Sko, þetta á ekki góðri lukku að stýra. Mér er alveg sama um fallegu heimspekistúdentana, ég tek ekki fleiri heimspekikúrsa. Má ég frekar biðja um órakaða og skítuga bókmenntastúdenta sem trúa ennþá að bókmenntirnar geti frelsað heilu þjóðirnar (ekki að biblían hefur nú ,,frelsað" ansi marga, en í veruleikanum heitir það að höggva mann og annan) En hver er svosem frjáls? enginn segi ég, og svona fyrst við erum byrjuð á þessu, þá er ég líka búin að komast að því að enginn sannleikur er til... Nema ef það væri til í tattooblöðunum hennar Grumpu, eða kannski í In Style blöðum Forskarans sjálfs.
En svona talandi um órakað fólk og ófrelsi yfirhöfuð, þá má ég spyrja, hvað er málið með strætóbílstjóra? Ég tek það fram að þó ég sé ekki órakaður og skítugur nemi, þá er ég nemi engu að síður og neyðist þess vegna til þess að sitja í þessum skrapatólum sem hafa örugglega verið keypt á uppboði hjá Talibönum í Afganistan, ólíkt sumum vel stæðum húsmæðrum sem keyra um götur borgarinnar á jeppa eða á nýjustu smábílunum. En hvað sem öfund minni líður út í húsmæðurnar, þá verð ég vitni af ýmsum manngerðum í strætó og ég er búin að komast að því að bílstjórarnir eru örugglega sérstaklega fluttir inn af Vog, Litla Hrauninu, Catalinu (í Kópavogi) eða af morðingjaheimilinu austan fyrir fjall. Hér er spurningarlisti sem ég held að þessir menn þurfa að svara áður en þeir fá að prufukeyra die grossen spritzen Autobus:
Ef svarið er Já við einni spurningu þá fær sá hinn sami ekki að keyra strætó í RVK.

1. Hefur runnið af þér seinasta hálfa árið?

2. Ertu búin að fara í bað á þessu ári?

3. Ertu búin að segja ,,Góðan daginn" við nokkurn mann síðan um Jólin?

4. Hefurðu skipt um föt síðan 2003?

5. Hefurðu borðað eitthvað annað en Mcdonalds og Dominos síðan 1994?

6. Ertu með bílpróf?

14 Comments:

  • At February 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Um frelsi. Þetta er allt spurningin um hvort maður vill frelsi til að gera eða frelsi frá einhverju. Því miður er Gísli í Uppsölum dáinn en hann hefði líklegast getað svarað þér.

     
  • At February 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Er selkonan semsagt að tala um jákvætt frelsi (frelsi til) og svo neikvætt frelsi (frelsi frá). En hvernig var Gísli í Uppsölum frjáls? Var hann ekki hlekkjaður við einhverja konu? Eða var það kannski kind?

     
  • At February 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Það þarf að fara að moka þarfa og skít í 300 frermetra kartöflugarðinn minn og legg ég því til að þú sendir þessa Strætubílstjóra í sveitinni og þá munu þeir bæði missa bumbuna (í erfiðisvinnu) og læra mannasiði (þeir eiga eftir að grátbiðja um að komast í letilífið í bænum)

     
  • At February 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já selkonan er ekki alveg með hugtökin á hreinu... en Gísli var tvímælalaust frjáls. Hann elti kindur alla daga (frelsi til) og slátraði henni svo þegar hún var óþekk (frelsi frá). Öll völd í eigin hendi. Hvaða kellingu ert að tala um.. var það álfkona?

     
  • At February 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Frank Zappa virðist vera sá eini sem skildi út á hvað frelsi gekk því eins og hann orðaði það í einu laginu "free is when you don´t have to do nothing or pay for nothing"
    Og varðandi þessa strætóbílstjóra þá eru subbukallarnir bílstjórar sem Strætó erfði frá Hagvögnum þegar þetta allt sameinaðist, ásamt þessum bílum frá seinni heimsstyrjöldinni sem þeir keyra. Þeir eru því bara í Kópavogi og Hafnarfirði. Við hér í Reykjavík sitjum í nýjum, fínum sænskum eðaldrossíum með þægilegum sætum og góðu útsýni

     
  • At February 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Janis Joplin var líka frjáls, hún sagði að frelsið væri bara annað orð yfir það þegar þú átt ekkert til að missa. Þá má líta þannig á að róni er frjáls maður. En eru rónarnir happý people??

     
  • At February 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hvaða strætó þykist Grumpa hafa stigið uppí sem er ekki að fara annað hvort í Kópavog eða Hafnarfjörð? Og hefur hún þá ekki séð að nýjustu og flottustu vagnarnir eru á þessum leiðum. Það meira segja pípir og blikkar rautt ljós yfir allan vagninn þegar hurðirnar lokast, ég meina gera aðrir bílar betur, huh! Strætó eru æðislegir, þar sér maður alla flóruna í mannlífinu og þar hafa ófá ljóðin og sögurnar sprottið frá mínu viðkvæma skáldahjarta.

     
  • At February 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Áfram áfram áfram bílstjóri....

     
  • At February 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Frelsi er til, en getur eingöngu orðið til innra með hverjum og einum því líkaminn í eðli sínu veldur ófrelsi. Flest af því sem við gerum er að eltast við þarfir líkamans s.s. kynlíf, fá þak yfir höfuðið, komast á milli staða (með strætó) vinna fyrir mat á borðið og frv. En hafi maður raunverulegt og virkt æðruleysi innra með sér þá ertu ansi nálægt því að vera frjáls í hjartanu og stundum er hægt að túlka það frelsi með líkama sínum.
    Sannleikurinn er líka til en hann er ávallt valkostur og aftur aðeins hjá hverjum og einum.

     
  • At February 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Fyrir mitt leyti, þá er frelsi mannsins aðeins fólgið í því að hafa frjálst val. Maðurinn getur alltaf valið. Það er fresli!

     
  • At February 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Getur maður/kona verið frjáls án líkaman? Held ekki. Annars felst frelsið felst í rekstrarlegri hagræðingarniðurstöðu eftir EBITA

     
  • At February 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hið fullkomna frelsi er að ná efst í þarfapýramýda Maslow, hvorki meira né minna

     
  • At February 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Dó ekki Gísli þegar Ómar ætlaði að vera góður og gaf honum sjónvarp fyrir að hafa komið fram í "Stiklum" ??

     
  • At March 02, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Datt Forskaren ofan í frelsispottinn?

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home