Forskaren

Friday, September 22, 2006

Einfaldir Íslendingar

Mér finnst stundum svo fyndið að tala við erlenda aðila - en nóg er víst af þeim núna í nýbyggingu IKEA í Garðarbænum um þessar mundir - en þeir vilja einhvern veginn meina að við Íslendingar séum svo einfaldir vegna þess að við kunnum ekki að flækja málin eins vel og aðrar þjóðir. En þetta finnst til dæmis Þjóðverjum voðalega mikill galli. En þar sem allir vita nú hvernig Þjóðverjar geta flækt hinu einföldustu mál, þá er þetta ansi skondið. Málið er að þetta er bara ósköp einfalt. Ekki flækja málin og hafðu lífið einfalt!
Mikið er ég stundum hamingjusöm yfir því að vera einföld og íslensk!!

2 Comments:

  • At September 25, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Það er einfalt að vera Íslendingur. Annað hvort ertu með eða á móti Kárahnjúkavirkjun. Annað hvort eru vinstri eða hægri í pólítík. Annað hvort heldur þú með Baug eða Davíð. Annað hvort fílar þú súkkulaði eða hnetur, vodka eða viskí, karlmenn eða konur... og svo máttu skipta um skoðun hvenær sem þú vilt... á þetta ekki að vera einfalt?

     
  • At October 14, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Frekar vil ég vera einfaldur Íslendingur en tvöfaldur kani!!!! Ísland, Ísland úber alles!!!

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home