Forskaren

Monday, June 19, 2006

Meira um litla frænda....

Hann er svo mikið krútt hann litli frændi og hann hefur alveg fullt af kellingum alltaf á eftir sér sem bíða eftir því að verða við öllum hans óskum. Þetta var að verða einsog í suðuramerískri skáldsögu á tímabili, þar sem móðirin gekk með barnið í fanginu og á eftir mæðgunum komu þrjár móðursjúkar kellingar, ein með flísteppi, ein með hitamæli og sú síðasta með bleyju og vatnsglas. Núna er Forski semsagt alveg komin inn í kúka-og ælusögur og hef ég hugsað mér að létta Grumpu lundina á göngutúrum okkar á næstunni með alls kyns skemmtisögum af frænda litla. En best að vera ekkert að hafa alltof hátt um það, því að hún gæti fengið skyndilega í magann eða fengið einhverja aðra dularfulla pest ef hún hefur grun um það sem er í vændum.
Annars var brunchinnn okkar frekar tíðindalaus í gærmorgun nema uppi eru vangaveltur um hvaða stað á að velja í staðin fyrir Kaffi París og hvert eigi eiginlega að fara á næsta ári, en uppi eru hugmyndir um kellingaferð mikla til Evrópu á næsta ári.
Jæja, best að halda áfram að vinna. Eigiði góðan dag og komiði endilega með tillögur fyrir skemmtilegri borg og góðum brunchstað.

7 Comments:

  • At June 19, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Tekið verður á móti ælusögum í Öskuhlíðinni kl. 17.10 í dag, við stóru eikina vinstra megin við fallega grenitréið til móts við kanínuholun með brúnu og svörtu kanínunum.

     
  • At June 19, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Hm, fór í hádeginu upp í Öskjuhlíð og setti upp ræðupúlt og áhorfendabekki, en eins og Monopoly segir þá verða ælusögur sagðar í kyrrðinni í Öskjuhlíðinni síðdegis. Hvet ég endilega sem flesta til að mæta og Grumpu þá einna helst.
    Er annars ekki mesta stemningin fyrir Róm?

     
  • At June 19, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Hvernig er þetta með konur sem eignast börn? Fer líf þeirra að snúast um kúk, piss og ælur?Og er svo farið að heilaþvo saklaust fólk eins og grey Forska með þessu tali þannig að Forski er farin að hafa meiri áhuga á hægðum ungabarna en Eros og endurreysnartímanum! Ég tek ekki þátt í þessu og fer bara ein til Transylvaníu eða eitthvað. Þið hinar getið rápað um í barnafatabúðum hvar sem er annars staðar!!

     
  • At June 19, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Hey, ég er til í allt nema bleyjuskipti og fæðingarsögur í borgarferðinni. Svo mæli ég með því að við klæðum okkur upp í desember og skundum á Borgina (já, já ég skal vera barnlaus þá), drekkum te og tölum dönsku. Annars má Forskaren fá mitt atkvæði í Kaffihúsanefndinni, Tensai san hefði fengið mitt atkvæði en ....

     
  • At June 20, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Ég sting upp á borginni við Bakkann. Þar er allt sem einmanneskja þarf, gott veitingarhús, falleg strönd (íslenskir karlmenn til að hlaupa á ströndinni með) og bókabúð! leitum ekki langt fyrir skammt.

     
  • At June 20, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Svo má ekki seinna neitt af vanvirðingu við littla Patta því hann er dásamlegur og allt sem frá honum kemur er einnig dásamlegt.

     
  • At June 20, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Já, sammála seinasta ræðumanni!!
    Hann patti litli er ekkert smá mikið krútt. Ælu- og kúkasögurnar voru nú aðallega til að hræða hana Grumpu og heyrist mér að það hafi nú bara tekist ansi vel..:) Ætli Grumpa sé farin að pakka saman og á leið til Transilvaníu?

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home