Forskaren

Thursday, May 18, 2006

Eurovision

Styttist óðum í Júrósýn/Júróvisjón/Eurovisjón.....
Hlakka til að sjá Sylvíu Nótt á sviðinu í kvöld. Ég get ekki sagt annað en mér finnst framlag hennar og hegðun algjör snilld. En þetta sýnir okkur vesturlandabúum (og kannski jarðarbúum) bara hvað við ruglumst auðveldlega á alvöru, gríni, leik og ekta. Þessi persóna er ekki til og hún er tilbúningur frá a-ö. En samt er hún tekin mjög alvarlega af sumum. En þetta sannar bara að Baudrillard hefur ábyggilega rétt fyrir sér. Sýndarveruleikinn er orðin það sem við lifum í og við erum farin að herma eftir veruleikanum. Eftirherman er orðin af frummyndinni og við dýrkum hana eins og hún sé hið ekta og upprunalega. Mér finnst til dæmis snilld hvernig viðbrögð fólks var við skrópi hennar á Essostöðinni hér um daginn. Auðvitað! Það var verið að reyna að minna fólk á að þessi manneskja er ekki til. Hún er tilbúningur. Eftirherma og óraunveruleg. Hún er hluti af leiksýningu sem á bara heima uppi á sviði. En vesturlandabúar sjáum ekki lengur muninn á alvöru og óekta.

4 Comments:

  • At May 18, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Forski bara á fulli í nýyrðasmíði. Brúskamotta er miklu flottara heldur en rýjateppi ;D
    Sylvía Nótt er nú alveg hætt að vera fyndin, þetta fyrirbrigði er bara komið út fyrir sinn upphaflega karakter, sem var bara dásamlega vitlaus.

     
  • At May 18, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Já, ég er að spá í að stofna nýyrðakrifstofu. Það hljóma vel. En með Sylvíu þá er bara spurning hvort hún breytist ekki í eftirmyndina og markaðssetur hana sem frummynd....
    Annars verður áhugavert að sjá hvernig henni gengur í kvöld.

     
  • At June 08, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    I say briefly: Best! Useful information. Good job guys.
    »

     
  • At July 19, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Nice! Where you get this guestbook? I want the same script.. Awesome content. thankyou.
    »

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home