Forskaren

Friday, February 24, 2006

Bachelor

Sko, þetta er nú alveg frábært! Stelpur mundu þið láta sjá ykkur dauðar í þessum heimska Bachelor þætti? Þetta er nútíma hóruhús sem verið er að sýna. Og svo eru þessar greys heimsku ljóskur að grenja yfir því að einhver semi síðhærður forljótur loser valdi þær ekki. Þær sitja grenjandi fyrir framan myndavélina og snökta og koma því varla upp úr sér að þetta var nú eiginlega bara eiginmaðurinn sem rann þeim úr greipum. Þær skilja bara ekki hvernig þetta getur gerst....buhuhu...
Hvað er að hjá fólki? en svona burt séð frá því hversu hallærislegur þessi þáttur er, þá horfir maður á hann og á einhvern pervisinn hátt líður manni alltaf vel eftir að hafa horft á hann, því að hann sannar fyrir manni að það er til fullt af fólki sem er nautheimskt og þá líður manni eins og Einstein í samanburði...Annars er ég að fara í leikhús annað kvöld og núna á túskildingsóperuna. Og í annað sinn er ég að fara ein í leikhús. Hvernig er þetta með fólk í kringum mann, nennir engin í leikhús lengur eða hvað? ekki að þetta er eiginlega minn feill, ég umgengst og þekki eiginlega bara fólk sem annað hvort þolir ekki leikhús eða á lítil börn heima þannig að maður þarf að bjóða þeim með helst 6 mánaðar fyrirvara, því að það þarf að safna fyrir leikhúsmiðanum, spyrja manninn um leyfi og svo að yfirstíga erfiðasta hlutan en það er að finna barnapíu. Þannig að ég held ég fari bara ein í leikhús frekar. Ekki að það er alveg ágætt. Akkurat staðurinn til að hitta flotta herra.

7 Comments:

  • At February 24, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Og svo eru allir voða, voða hissa á því þegar Bacherlorinn og Bachelorettan hætta saman - come on gæinn er búin að prufukeyra 30 stelpur á undan "Hinni einu" sönnu beint fyrir framan hana - fólk er fífl !!!!!!!!!!!!!!!!!
    Annars er nokkur Grumpu tónn í þessum pisli Forskarens, ertu í þjálfun hjá Greifafrúnni?

     
  • At February 25, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Raunveruleikaþættir eru eins langt frá raunveruleikanum og hugsast getur. Hefur t.d einhver lent í því að vera fastur á eyðieyju með 10 hálfvitum og í staðinn fyrir að reyna að koma sér í burtu sem allra fyrst gengur þetta Survior crap út á það að verða einn eftir? Hverslags heimska er það!? Og ekki minnast á þetta Bachelor dæmi ógrátandi. Maður skammast sín niður í tær fyrir hönd þessara kvensnifta sem láta hafa sig út í þessa þvælu. Svona gliðrur koma óorði á kynstofninn!

     
  • At February 25, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Sammála Grumpu. Ég hef aldrei skilið af hverju þessir þættir eru kallaðir "Raunveruleika" þættir! Og skilaboðin eru-reyndu að komast eins langt og þú getur með svikum og prettum og best er að reyna koma aftan að sem flestum. Þá "vinnuru"! TRASH

     
  • At February 25, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Jú, mikið rétt hjá Monopoly, Ég er í kvöldnámi hjá Grumpu en ég fer til hennar einu sinni í viku þar sem við förum yfir Grumpisma og annan tjáningarmáta. Það er reyndar árshátíð hjá Grumpunum í kvöld.

     
  • At February 26, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Forski er greinilega komin með greingóða stúdíu á lífi mæðra sem ekki komast í leikhús. Í þau skipti sem maður leggur það á sig að fara á svona menningarviðburði er mjög líklegt að slefblettur (eftir barnið)sé á sparikjólnum, gleymst hafi fara úr gúmmistígvélunum yfir í spariskó eða maður sitji í miðju leikriti og spái í því hvort barnapían muni eftir að burtsa tennurnar í börnunum í staðinn fyrir að einbeita sér að örlögum hetjanna í skrítnu leikriti.

     
  • At February 27, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Hvernig var í rokkæluhrútspungapartýinu?

     
  • At March 07, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Er Forskarinn dottinn í bækur?

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home