Forskaren

Sunday, February 19, 2006

Prófkjör og pasta

Ekki er svosem mikið að frétta úr lífi Forska, nema ég brá undir mér betri fætinum seinasta laugardag og fór með Grumpenhofen og Fröken Leuquer á Ítalíu að borða. Pasta rétturinn sem ég pantaði mér var svo góður að ég kláraði eiginlega allan diskinn, sem var eiginlega meira í átt við risavaxna súpuskál. Ekki svosem í frásögu færandi, nema þegar við dömurnar vorum komnar niður á Thorvaldsen að mingla við fólk, þá fékk ég svona rosalegaa verki í magann. Ég reyndi að útskýra það fyrir Grumpu í svona eins og hálftíma að mér leið eins og litla svanga barninu í Grenjað á sléttunni hérna í den, en stúlkubarnið var svo aðframkomin af hungri að hún át nánast heilan hrísgrjónarpoka og þetta endaði allt saman í ósköpum því að maginn á aumingjans barninu sprakk. Ég eyddi löngum stundum í að útskýra þetta fyrir Von Grumpenhofen sem mundi bara alls ekki eftir þessu sorglega atriði. Þetta endaði eiginlega með því að Grumpa skellti í sig bjórnum í flýti og kvaddi félagskapinn. En barnið með hrísgrjónin í maganum hélt á hinn bógin áfram að dansa fram á nótt.
Annars að öðru, hvað er málið með öll þessi prófkjör undanfarið? Eða eru þetta allt saman prófkjör? Og hvað er alltaf verið að kjósa? Hvort þessi maður er sætastur eða hvort þessi kona er best í bakstri eða hvað? ég næ þessu eiginlega ekki alveg. Er til dæmis Hvammskjör einhvers konar kjör í líkingu við það sem var haldið seinustu helgi? En hvað með líkjör? Af hverju er þetta líka kallað kjör? Hefur þetta eitthvað með bág kjör að gera? Ég skora á móður jörð að kanna þetta mál þar sem hún er nú með B.A. í íslensku.
Það styttist núna í að þorrablótið/valentínusar/konudags partýið/samsætið verði haldið hjá Grumpu. ég frétti líka að herra Ísland ætli að mæta í samsætið og það er ekki laust við að allir haldi í sér andanum af spenningi. Kannski mun hann brjótast út úr einni tertunni og dansa og syngja! hver veit, ég veit bara að Forski mun haga sér óhemju vel og prúðmannlega. Ég er búin að fara í anger management þar sem ég barði stól með tösku og lamdi gínu sem leit út eins og spænskur hermaður mörgum sinnum. Þannig að ég er þæg eins og lamb. Það er að segja ef að Grumpa birtist ekki eins og Kjartan galdarkarl með grænan kokteil og segir að þetta sé heilsudrykkur frá Sollu heilsufríki....

6 Comments:

  • At February 19, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Þetta verður greinilega óvenjulegt partý þar sem allir eru stilltir og maður hoppar út úr köku. Þetta með barnið með hrísgrjón í maga var atriði í sænsku þunglyndisþáttunum Vesturfarnir. Elsku barnið borðaðai yfir sig af þurrum hafragrjónum sem bólgna út í maga( lengi þorði maður ekki að fá sér þurr hafragrjón með sykri af ótta). En þetta skipti nú ekki öllu máli því eftir að fjölskyldan var búinn að æla sig yfir hafið til USA voru þau öll drepin á hroðalegann hátt af indíánum.
    Kjör tengist öllu leiðinlegu svo sem stjórnmálum, skilmálum, ákvæðum, einhverju sem við hæfir t.d. kjörhegðun, kjörþyngd og að vera kjörin manneskja hlítur að vera voðalega almennt og leiðinleg. Það er því kjörið að forðast þetta orð! BA kanídat has spoken!!!

     
  • At February 19, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Ha! Er ég að muna vitlaust? Var litla stúlkan með hrísgjónin í maganum ekki í Grenjað á Sléttunni? Nú er ég svo aldeilis hlessa. það er þá ekki furða að Grumpa muni þetta ekki, hún sem sagðist hafa horft samviskusamlega á hvern einasta þátt hérna í den.

     
  • At February 20, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Af hverju ældi krakkinn ekki bara þessum hafragrjónum þegar þau fóru svona illa í maga? Það hefði bara verið hinn fínasti hafragrautur sem öll fjölskyldan hefði getað gætt sér á þarna á siglingunni, volgur og fínn í ofanálag. Stupid people! Áttu það bara skilið að vera breytt í leðurtrommu (ef Móðir Jörð er með örlög þessarar fjölskyldu á hreinu)

     
  • At February 21, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Æ hvað það er nú alltaf ljúft að heyra álit Grumpu á litlum saklausum börnum. Ég legg til að hún sæki um dagmömmumleyfi. :)

     
  • At February 22, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Monopoly spáir því að Forski muni á næstu viku kynnast myndarlegum og elskulegum dökkhærðum manni, sem er með strípur í hári, six pack og slær hvaða FM Hnakka við. Hvort Forski verður svo heilluð af þessum manni að hún eigi aldrei aftur eftir að slá aðra menn með töskunni sinni, kemur í ljós.

     
  • At February 23, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Já, þetta endar kannski bara með því að Forski fer að deita hnakka, er þá nú ekki fokið í flest skjól?

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home