Smá viðbót

Sko, þar sem ég var nú eitt sinn hinn stærsti ACDC aðdáandi þó víða væri leitað, þá er ég nú ekki alveg sátt við athugasemdir henner Grumpu í garð Angusar míns. Það er náttúrulega ansi alvarlegt að koma með mótbárur á fegurð og ágæti hans Angus the Mighty. þannig að núna eftir 3ja klukkustundar leit á internetinu þá fann ég loksins það sem ég leitaði að, en það var mynd af Angus þegar hann var ungur og fagur. Það er ekkert að marka myndirnar af honum í dag. Það væri eins og að gera þá kröufu á Mick Jagger og Keith Richard að þeir séu enn á lífi og með öll upprunalegu líffærin í sér ennþá. En það er ekki hægt að neita því að hann Angus var íturmyndarlegur í sínum yngri árum og ekki frá því að vera svolítið wild líka....
6 Comments:
At January 25, 2006 ,
Anonymous said...
Angus rokkar náttúrulega bara, sköllóttur þingmaður or not. Annars skuluð þið ekki trúa því í andartak að Forski hafi eytt 3 tímum í að leita að mynd af Angus, hún er sko með hrúgu af Angus síðum í favoritinu sínu og desktoppið hennar er fullt af Angus í öllum stellingumog alls konar stuttbuxum. Forski var hins vegar 2 klst og 59 mín í Cold Stike og er að ná framúrskarandi árangri, ég held hún hafi komist á sjöunda borð...híhíhí...
At January 25, 2006 ,
Anonymous said...
Heyrðu sko Tensai! Það sem maður segir öðrum í trúnaði, það táknar ekki að maður eigi að fara með það á bloggið! Hvað á það að þýða að æla þessu út úr sér? Já nú er það svart.
At January 25, 2006 ,
Anonymous said...
He, he, he, er Tensai San að gerast landlord með meiru?
At January 26, 2006 ,
Anonymous said...
Bíddu, hver hefur áhuga á að spila tölvuleik um verkföll á kaldastríðstímanum eins og nafnið á þessum leik gefur augljóslega til kynna að hann gangi út á?
Og varðandi Angus Young er hann ekki líka smámæltur og dvergur þar að auki?!
At January 26, 2006 ,
Anonymous said...
Grumpa mín, þú veist að þú ert komin inn á ansi hættulegt svæði með yfirlýsingum þínum á æskugoði mínu Angus Young, þú getur kallað mig öllum illum nöfnum og uppnefnt mig, en sko, þetta er serious business þegar kemur að Angus Young my lady.....Þetta er eins og að uppnefna börnin manns svei mér þá!!
At January 26, 2006 ,
Anonymous said...
Angus er bara sætur á þessari mynd
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home