Post-Angus Young æði
Hvað haldiði að Forski hafi lent í um daginn? Haldiði ekki að mig hafi dreymt hann Angus Young gamla goð í miður siðsamlegum athöfnum. Ég var víst sú heppna sem nældi mér í hann og alls ekki óánægð með frammistöðu þingmannsins. Þetta ætti nú hún Grumpa að vera ánægð með. Guð hjálpi mér að mig fór ekki að dreyma hann Kenny G..... eða Michael Bolton!! ég held að Grumpa mundi aldrei tala við mig aftur ef slíkt mundi gerast.
Annars var Forski í sveitinni um helgina í mjög svo góðu yfirlæti. Ég lærði, horfði á Sex and the city langt fram á nótt og fór svo í sund á Stokkseyri með Móður Jörð í gær. Þegar maður er búin að synda og komin í heita pottinn, haldiði ekki að manni er bara boðið veitingar?! Algjörlega yndislegt! Ég skil nú ekki hvað maður er eiginlega að kvarta hérna á Íslandi. Hér er allt svo yndislegt.

3 Comments:
At January 24, 2006 ,
Anonymous said...
Ditto ;D
At January 24, 2006 ,
Anonymous said...
Bíddu, er Angus Young ekki orðinn miðaldra sköllóttur kall með gerfitennur? Mjög "hot" verð ég að segja!!
At January 24, 2006 ,
Anonymous said...
Sko Grumpa! Er ekki hægt að gera þig ánægða! Hann var að sjálfsögðu ekkert sköllóttur með sítt hár í draumnum...Og hann var ekki með sígarettuna í munnvikinu og gervitennurnar duttu ekki útúr honum og hann þurfti ekki súrefnisgrímuna til að halda í sér lífinu...
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home