Jólin Koma!
Núna er ég flutt inn í Debenhams og er þar frá morgni til kvölds. Frá sólarupprás til sólseturs (ekki að það er nú ekki erfitt í desember). Annars ef að þið viljið senda mér jólakort eða ná í mig, þá er heimilisfangið mitt núna Hagasmári 1, Smáralind, kassasvæði 1, 1. hæð.
Annars er það nú í fréttum að ég sá um það bil 5 stk. myndalega dúdú fugla í gær (frá 10-22). Mér finnst það nú ansi vel gert. Ég hélt ekki að það væri svona mikið til af þokkalega tilhöfðum dúdú hérna á landi. En, jú, viti menn!!
En allavega, ég hef ekki séð tangur né tetur af henni Grumpu í óratíð og ég er farin að spá í hvort að hún sé farin eitthvað að hlaupa á ströndinni eða hvað hafi eiginlega orðið af henni? Ætli hún sé uppi í Gerðubergi að halda marenskökunámskeið fyrir einstæðar húsmæður....hm, látiði mig vita ef þið hafið eitthvað frétt af barónessunni.

3 Comments:
At December 18, 2005 ,
Anonymous said...
Monopoly getur upplýst að það tóku upp sig gamall vinnualkismi í Grumpu, hún er búin að vinna frá sér ráð og rænu. Þetta hefur ekki gerst síðan að Grumpa merkti 200.000 gula Cheerios boli seint á síðustu öld.
Já, er ekki fullt af fallegum ÍSLENSKUM Dú Dú fuglum þarna úti?
Fræðileg spurning; Ætli kynlíf sé kallað Do Do út af tengingu við DúDú Fuglinn?
At December 19, 2005 ,
Anonymous said...
Af tvennu illu var jafnvel skárra að merkja 200.000 gula Cheerios boli heldur en 500 poka utan af göngustöfum sem eitthvað fyrirtæki ætlar að gefa starfsfólkinu sínu í jólagjöf þeim öllum eflaust til mikillar ánægju..
At December 19, 2005 ,
Anonymous said...
Jú það sást líka til Grumpu vera að reyna hengja upp jólaseríu í gluggann sinn, þennan sem snýr að Laugavegi. Og það vildi ekki betur til en svo að hendur og fætur flæktust með, svo að trúlega verður Grumpa í glugganum fram yfir jól, eins og jólalegasta jólaskreyting. Við ættum kannski að fara kíkja á Grumpu og hjálpa henni að leysa úr flækjunni.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home