Hugleiðingar á aðventu
Þá er aðventan hafin með próflestri og jólaskrauti. Árnagarður og Þjóðarbókhlaðan fyllast af stúdentum í jogginggalla og víðum náttbuxum. Ég er víst engin undantekning og mætti í mínum sportbrókum sem eru reyndar orðnar svolítið þröngar sem segir Forska bara að hún hefur það alltof gott greinilega á þessum námslánum. Bara étandi úti aðra hverja viku og þá á stöðum eins og Grillinu, Hótel Holti og Austur Indíafjelaginu. En annars var nú tilefnið ansi hátíðlegt um daginn þar sem hún Tensai San er víst orðin Celebrety á háu stigi. Núna þverfótar maður ekki fyrir æstum aðdáendum. Tensai er mjög ánægð með þetta allt saman enda búin að fá alla þjóðina til að háskæla í einn og hálfan mánuð. Geri aðrir betur.
annars eru aukakílóin mítt áhyggjuefni þennan mánuðinn. Skítt með prófin og allar ritgerðirnar. Ég er með mestar áhyggjur af bumbunni þessa dagana. Annars erum við Kokksi búnar að komast að ástæðunni fyrir þessari dulafullu bumbu, en það er svokallað tvíburaeinkenni sem á sér stað hérna.Það er engin önnur skýring á þessu, nema kannski fyrir allt súkkulaði átið sem hrjáir Forska náttúrulega á háu stigi. Og þá er það ekkert súkkulaði á verri endanum. Segið svo að maður hafi það ekki gott á námslánunum. Ég skil ekkert hvað Monopoly var að hafa áhyggjur á sínum tíma. Ég segi bara allir skelli sér í skóla og græðið á tá og fingri.

5 Comments:
At December 04, 2005 ,
Anonymous said...
Súkkulaði indexið hefur greinilega stórlega lækkað síðan Monopoly var í háskólanum. Í þá daga hafði maður ekki einu sinni efni á því að ganga framhjá Holtinu. Monopoly bjó í illa einangruðum íbúðum á námsárunum og borðaði útrunnið hrökkbrauð í 5 ár. Monopoly var líka mörgum kílóum léttari þá því hún skalf svo úr kulda að kílóin hristust bara af henni. Mæli með því að Forskaren lækki niður í hitanum.
At December 04, 2005 ,
Anonymous said...
Já nú er bara að ræsa Forska í bítið hvern morgun og reka hennar skinny rass í ræktina. Ég verð víst að taka það að mér þó það þurfi ofurmannlegt átak fyrir mig að vakna fyrir hádegið á morgnana. Og það þýðir ekkert að lækka í hitanum hjá Forska því þá kemur hún askvaðandi upp og rænir bara öllum teppum og sængum af okkur þannig að ég, Hammer og Unglingurinn sitjum eftir volandi að frjósa á hverri tá
At December 05, 2005 ,
Anonymous said...
Var að koma heim frá Köben með fulla poka að gúrme belgísku súkkulaði. Verst að Forski skuli vera hætt súkkulaðiáti! En við hin fáum þá bara meira:)
At December 05, 2005 ,
Anonymous said...
Heyrðu sko Grumpa....hm, það sagði Forski nú aldrei, að ég ætlaði að hætta að borða Belgískt eðalsúkkulaði, ég var sko bara að tala um vont síríussúkkulaði og mónudót og svoleiðis sko....
At December 05, 2005 ,
Anonymous said...
Er Grumpa að bjóða í dannað kaffiboð?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home