Forskaren

Sunday, October 30, 2005

Sunnudagsmorgunn

Heyrðu, þetta þýðir víst lítið. Ég fékk einn atómbrandara frá Tensai á Tólf tímum! Hvar voru allir bloggararnir?? Annars sá ég frábæra mynd í gærkvöldi sem heitir The Aviator. Alveg meiriháttar mynd hreint út sagt. hann Leonardo er alveg svakalega góður leikari og næst þegar ég er í Hollywood að ganga og mæti kannski honum, þá ætla ég að taka í hendina á honum. Það er heldur aldrei að vita að maður fari með nokkrar góðar línur úr Hómer eða Shakespeare. Annars hafiði heyrt nýjasta slúðrið? Það eru fræðimenn (Forskarar eins og ég) sem hafa fundið það út eftir fimm ára innilokun á bókasafninu að Shakespeare var ekki Shakespeare heldur þessi karl úti í bæ sem var embættismaður. hann ferðaðist útum allan heim og skrifaði pólitísk leikrit. hann þurfti bara að falsa nafnið sitt svo að hann yrði ekki brenndur á báli og síðan hálshöggvin eins og þeir gerðu hérna í den. Finnst ykkur þetta ekki brilliant?! Mér finnst þetta sko vera slúður í lagi. Annars er ég að bíða eftir Tensai San því að hún ætlar að koma við í bakaríinu á leiðinni úr næturvakt og ná í bakkelse með kaffinu. Hvað er betra en það á sunnudagsmorgni?

12 Comments:

  • At October 30, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Velkomin aftur úr Þara- og vindheimum Forski. Ég mæli með grænsápu ef þú lyktar ennþá eins og fjaran á Eyrarbakka.

     
  • At October 30, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég vil bjóða Forska velkomna aftur til byggða og vona að hún hafi samið mörg ljóð um sveitarómantík, kynnst feimnum bóndasyni og keypt sér Wyllisjeppa and will live happily ever after.
    En hver er þessi Rod á Harleynum??

     
  • At October 30, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Jæja er komin heim með brönsið og allir búnir að háma í sig brauð, vínber, kaffi og bleika köku. Nú ætlar Forskinn að skella sér á bókasafnið að gramsa í skræðum, það er vist eitthvað uppnám í gangi út af þessu með Shjíkspír kallinn og Forski ætlar að rannsaka málið. "...that which we call a rose, by any other name would smell as sweet..." Vonandi fær hún ekki einhvern boring doðrant í hausinn og rotast. Alla vega ætla ég að fylgjast með Forskanum og vera viss um að hún lokist ekki inn á bókasafninu eða rati ekki út af 4. hæð vegna skrudduskriðu.

     
  • At October 30, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Forskinn finnur út að lokum að Halldór skrifaði ekki þessi meistaraverk sín heldur meinfýsinn bóndi úr Flóanum sem öfundaði afskekkta bændur og kvenfólk ... og lét þau öll drepast úr hori eða verða nauðgað. Halldór fékk svo frægðina því bóndinn var hvorki með z una á hreinu né með nægilega stamandi talanda!

     
  • At October 30, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Er Rod kannski prinsinn á hvíta hestinum/hjólinu? Er hér Mr. Right komin til Forska gegnum Bloggheimana?

     
  • At October 30, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já og næst mun ég fletta ofan af Hómer sem var ekkert annað en blind fyllibytta sem röflaði útí eitt í einni af þessum maraþon át og drykkjarveislum sem karlarnir í den héldu. Já, og who is this Rod? Rod Stewart kannski? Hm, aldrei að vita, ekki að Forski mundi hlaupa öskrandi í burtu ef að það ætti að vera "prinsinn" á hvíta hestinum. Frekar má kalla það martröðin á skrjóðinum. Og nei, það þarf sko engin að bjarga mér ofan af 4. hæð. Hér ætlar Forski að setjast að og komast að leyndarmáli Hómers í eitt skipti fyrir öll.

     
  • At November 01, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Forsíðan á helgar DV verður svona:
    Hómer Simpson sveik mig! Er ekki allur þar sem hann er séður.
    Kona á Hringbrautinni segir farir sínar ekki sléttar af manni sem þóttist vera heimspekingur en reyndist vera þriggja barna faðir með bjórvömb og æði fyrir kleinuhringjum

     
  • At November 02, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Jæja folks, nú er kominn tími til að ég láti ljós mitt skína hér á skjánum. Maður missir greinilega heilmikið úr ef ekki er fylgst með umræðunni á blogginu, fyrir utan það nú að geta svarað fyrir sig ef eitthvað er um mína ágætu persónu rætt/skrifað hér. Og við erum nú flest á leiðinni í þetta fína Halloweensamkvæmi á laugardaginn svo.......
    Mæli með því að Forski og Tensai hringi í mig næst þegar á að fara að úða í sig á sunnudagseftirmiðdegi.......

     
  • At November 02, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já einmitt madamma Lekker, og það er einmitt komið að þér að koma við í bakaríinu og kaupa næsta bröns.

     
  • At November 02, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Mig langar að bjóða madame Liguer sérsaklega velkomna á bloggið. Nú fara ýmsir hlutir að gerast.... :)
    Og það er alveg satt hjá Grumpu. Aldrei að treysta heimskspekingi sem er með bjórvömb og segist aldrei hafa verið giftur.

     
  • At November 02, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég er nú þegar farin að taka fram grænu kokteilana til að geta boðið maddömunni í Halloweenpartýinu

     
  • At November 02, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hey, færist nú fjör í leikinn. Bæði Rod og Madame Liquer mætt á svæðið. Er kannski tengsl á milli Rod og Madame Liquer? Mér finnst þetta of mikil tilviljun til að trúa því að engin tengsl séu hér á milli.
    Og hvað þetta bakkelsis tal varðar þá er það nú bara alveg það minnsta sem Forski getur gert er að láta okkur sem ekki erum að rykfalla af boooooringisma vita þegar hún lítur upp úr bókunum til að innibyrgða kruðerí

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home