Forskaren

Monday, September 26, 2005

Fýkur í laufi

Jæja, núna er haustið komið með tilheyrandi laufaþeytingum og gott ef maður er ekki með heilu greinarnar í hárinu eftir göngutúr niður í bæ svei mér þá. Annars er það að frétta úr Reykjavíkinni að Grumpenhofen hefur sloppið undan jóðlaranum ógurlega í Svartfjallalandi og komst klakklaust heim á Laugarveginn þar sem beið hennar sársvöng slanga, tvær kanínur og einn ljótur hamstur. Grumpa smyglaði fullt af ítölsku súkkulaði til landsins og heimatilbúnum gráfíkjum að auki. Svo var auðvitað blásið til kaffidrykkju og kruðeríáts á laugardagseftirmiðdeginum þar sem allir fengu ferðasöguna í æð. Grumpa þykist ekki hafa legið í sólinni í Rimini heldur hafi hún farið einhverstaðar bakdyra megin inn í borgina þar sem hún fann föngulega ítala syngja miðaldablús. en hvað með það. gott var að hitta Grumpu og haldiði ekki að frúin hafi tekið á móti forska í svuntunni einni saman og sent kaldan og hraktan forska beint út í búð til að kaupa vænan poka af rúsínum og eitt knippi af rjómaís.
Annars er nú margt og mikið framundan, svona eins og Halloween party (og Hammer er víst strax búin að panta að fá að vera Iggy Pop!!) og svo er að sjálfsögðu verið að skipuleggja Þakkargjörðarhátíð af bestu gerð á Eyrarbakka í nóvember. Og svo að endingu er að sjálfsögðu Sankta Lúcía hátíðin góða sem loksins er búið að innleiða á Íslandi (allavega á Laugarvegi 134). og tilkynnist hér með að Kokksi taki að sér Lúsíu hlutverkið í ár.
Annars hef ég nú ekki fylgst mikið með fréttum undanfarið nema að núna eru allir að verða vitlausir útaf þessu Jónínu Ben máli. Þessi kerling er ábyggilega bara að drepast úr hefnigirni út í hann Jóhannes kallinn. Hún hefur nú aldeilis séð sér gott til glóðarinnar þegar hún skildi við hann. En greys kellingin hefur ábyggilega ekki fengið nóg og orðið alveg brjál.....en hvað veit Forski svosem um íslenska pólitík. Ég veit bara að Hannes Hafsteinn var fyrsti ráðherran (mér fannst Hannes kallinn eitthvað svo heillandi þegar ég var í menntaskóla....don´t ask me why) og ég veit að Jón Sigurðsson stóð einu sinni upp á fundi og sagði með hárri raust: ,,Vér mótmælum allir". Ég ætti kannski ekki að opinbera mína pólitísku fáfræði svona opinberlega, en ég get allavega analyserað öll dagblöðin útfrá nýrýni og strúktúralisma.....

14 Comments:

  • At September 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Forski var bara svona hrifin af Hannesi Hafstein af því að hann var alltaf í einhverju júníformi með borðum og axlaskúfum og öllu tilheyrandi. Það vita nú allir hvað Forski er mikið fyrir "men in uniform"

     
  • At September 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Jamm, ég eyddi öllum deginum í dag að tína greinar og laufblöð úr vindblásnu hári Forska og ég get sagt ykkur að ég fann ýmislegt fleira þar innan um hríslur og fíkjublöð. Til dæmis nokkrar framúrskarandi skemmtilegaar bækur eins og "Jangoismi um fruktílisma og boringisma á ismandi framandgerðum formalisma" og "How to sleep in a library with your feet high in the air without anyone noticing you're sleeping at all" eða "Victoria's Secret catalouge 2005" og svo voru nokkur blöð og tímarit, aðallega "Playgirl" og "Fabio goes really wild"

     
  • At September 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hafið þið tekið eftir því hvað Jó er algengt í þessu Bónusmáli: Jóhannes, Jón Ásgeir, Jón Gerar, Jónína, Jón Steinar og svo kemur Styrmir bara eins og skrattinn úr sauðalæknum og ruglar allt munstrið fyrir manni Ég var komin með þessa fínu Jó kenningu :-)

     
  • At September 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    JÓ! baby...

     
  • At September 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Jóla jóla.

     
  • At September 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Það fer þó aldrei svo að Forski verði með tíð og tíma doktor í boringisma. Mjög göfugt æfistarf að miðla af þekkingu sinni í boringology

     
  • At September 29, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hver ert þú sem ásakar okkar ástkæra djúpvitra Forskara um leiðindi??? Viltu kartöflu í hausinn!

     
  • At September 30, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já, ég get sko gert lífið mjög boring fyrir hyski eins og þennan Anonymous sem er eitthvað að ibba sig. Ég get bæði hent í hann kartöflum með Móðir Jörð eða drepið dónann með vikuupplestri úr Dante og Faust....

     
  • At September 30, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Þetta er örugglega eitt af Jo-hyskinu sem þarna laumar sér inn til að skemmilega aldeilis og sérdeilis góða síðu Forska.

     
  • At October 01, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hey!!! Commonn allir. Kannski er þetta bara einhver að stíga sín fyrstu spor í bloggheimi og var að reyna brjóta ísinn með smá skensi. Gefum anonnimuss smábreik. Annars gæti 'ann hrökklast frá til frambúðar og við fáum aldrei að vita hver kauði er og munum því aldrei vita í hvaða haus á grýta kartöflunum frá Móðir Jörð.
    Koddu ófeiminn fram og kynntu þig Anomi.

     
  • At October 01, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Kominn í bloggheima http://kiddirokk.blogspot.com/ :-)

     
  • At October 02, 2005 , Blogger von grumpenhofen said...

    Þessi tölvupóstur um námsferil Forska hefur greinilega komist í hendur óprúttinna aðila og átti ekkert að koma fyrir augu almennings. Þetta var einkamál og mun ég fara fram á lögbann við frekari kommentum um ofangreindan póst.

     
  • At October 03, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Svona svona mín kæra Grumpa, ég skal halda aftur af kartöfluhendi Móður jarðar og ég er viss um að Forska finnst þú ekki vera neitt hyski og Monopoly var bara að grínast þegar hún sagði að þú værir úr Jó familíunni. All is forgiven...ekki setja á okkur lögbann eða birtast með mæðusvip á forsíðu DV undir fyrrisögninni: "Bloggheimur sveik mig"

     
  • At October 03, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Það skyldi þó aldrei fara svo að Grumpa yrði fyrst af þessu "hyski" hér að komast á forsíðu DV ;-)

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home