Innrásin frá DV
Sko, hvað er að verða um heiminn eiginlega? Og Íslenska menntastofnanir? Haldiði ekki að í staðin fyrir háfleygt og traust lesefni eins og Morgunblaðið og Skírnir á kaffistofum Háskólans, er nú komið DV útum allt og þá er ég að tala um ÚT UM ALLT!! Hvergi er hægt að setjast í kaffitímanum sínum án þess að hafa fáránlegar fyrirsagnir eins og ..Kærastinn minn kyssti hund!!" Eða ,,Abducted by Aliens, for the fourt time", eða ,,Ég er bara alveg rosalega sár því að ég nenni ekki að vinna og bý í Yrsufelli og ég skil ekkert í því af hverju ég get ekki lifað kóngalífi á kerfinu, það sveik mig alveg hrottalega núna maður!!" Ef maður svo flettir blaðinu, þá skal ég lofa ykkur að þessir svokölluðu ,,Blaðamenn" eru ekki útskrifaðir úr grunnskóla hvað þá meira. Blaðið hefur örugglega hirt þetta pakk upp af Hlemmi eða kaffi Austurstræti og spurt þá hvort þeir vilji ekki bara segja sína skoðun opinberlega svona einu sinni, og að launum fái þeir meiri brennivín......
Ég var einmitt að fletta einu svona rosalega vitrænu blaði í morgun og þar var frétt um bara einhvern gaur maður sem að hljómaði eitthvað á þessa leið: Vitiði bara hvað mað´r, það var bara einhver gaur mað´r í K'opvogi mað´r sem stal mað´r sko hénna bara rissastóóórrri gröfu mað´r alveg ógðsl kúl mað´r og svo bara dúndraði gæinn mað´r bara inni í etthva tölvufyrtæki í bænum mað´r. Kíkkiði á myndirnar mað´r, blóð útm allt váaáa....mað´r. Svona hljóma þessar svokölluðu fréttir sem eru ekkert annað en ekki fréttir. Ég þoli ekki þennan soramiðil. En annars er ég bara í sólskinsskapi og er að lesa fallega sögu og hlusta á fuglana syngja fyrir utan gluggan hjá mér.

6 Comments:
At September 15, 2005 ,
Anonymous said...
Humm já. Það þarf virkilega að endurskoða kaffistofuna í Hlöðunni, héun er að breytast í Búllu. Kannski væri hægt að skrifa ritgerð um málfar í fjölmiðlum og taka DV fyrir!! Besta að hlusta sem mest á fugla því brátt fljúga þeir allir burt og bara mávar og krummar eftir.
At September 16, 2005 ,
Anonymous said...
"Feminism encourages women to leave their husbands, kill their children, practice witchcraft, destroy capitalism and become lesbians".
Pat Robertson, US politician, 1992
Já, það er sko þörf á því að stofan kaffistofuhóp, ræða um málfar í fjölmiðlum og komment eins og þetta hér sem DV myndi örugglega birta með glöðu geði.
At September 20, 2005 ,
Anonymous said...
Er þessi þögn á blogginu sama og samþykki á fágaðari útlistun minni á DV? eða eru þetta þögul mótmæli, og eru kannski allir heima í eldhúsinu hjá sér að lesa um nýjasta morðið í DV....hmmm, ég þarf nú að gera einhverja könnun á þessu.
At September 20, 2005 ,
Anonymous said...
Ja, ég er alla vega ekki að lesa DV, sá snepill er ekki þess verðugur að ég eyði dýrmætum tíma mínum í hann.
At September 24, 2005 ,
von grumpenhofen said...
Hvaða fordómar eru þetta eiginlega út í DV? Félagsmálarónar úr Fellahverfinu eru líka fólk og DV er rödd undirmálsfólksins sem kann ekki að fallbeygja orðið buxur, heldur að Tony Blair spili á hægri kantinum með Leeds, fer á McDonalds á sunnudögum og veit nákvæmlega hvað flaska af Smirnoff kostar
At September 25, 2005 ,
Anonymous said...
DV er bara ómerkilegur blaðasnepill sem ekki segir neinar fréttir af viðskipalífinu nema í þeim sé alla vega ein einstæð móðir sem kerfið hefur svikið og/eða siðblindir viðskiptajöfrar sem stela peningum af öryrkjum.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home