Seint skrifa sumir....
Loksins sest maður niður við tölvuna og hripar niður nokkrar línur. Ekki að ég ætli að fara að skrifa einhverja ritgerð um sjálfa mig og hvað hefur drifið á mína daga. Annað en að Forski hleypur enn hægt á ströndinni í hvítum flaksandi kjól við undirspil Michael Bolton, og það er meira að segja svo slæmt að ég er að spá í að fara á tónleikana hans í september. Geri nú aðrir betur. En kannski er nú ekki allt sem sýnist og ströndin er nú kannski ekki alhvít og fötin eru kannski orðin svolítið skítug. Hárið orðið flókið eftir allan þennan sjávarvind og ég verð nú að viðurkenna að ég er orðin frekar þreytt á þessum endalausu hlaupum á ströndinni....
Annars er skólinn að fara að byrja aftur og Forska líður eins og litlu sex ára barni sem getur ekki beðið eftir því að fara að nota nýja pennaveskið sitt. Og viti menn, í þessu flotta sumarveðri (sem er ábyggilega seinasti sólardagur ársins) þá brá Forski sér á bókasafnið og er búin að sitja hér síðan í morgun og lesa Ódysseif og aðra doðranta.
Jú annars er það nú að frétta af mér að ég hef verið ansi dugleg upp á síðkastið við að fara á öldurhús bæjarins með mínum ofurfagra spænska fola. Og viti menn hvað gerðist um daginn, haldiði ekki að Forski hafi lent í mikili rimmu við eina eldri kellingu sem var dónaleg við minn íðilfagra mann. Ég ýtti við henni, sendi henni grettu mikla og meira að segja puttann góða (hún sendi mér reyndar puttann fyrst og ég endurgalt ósiðinn). Það endaði með því að minn ægifagri ráðagóði maður stíaði okkur í sundur en ég undi glöð við mitt og þótti ég aldeilis sköruleg í háttum öllum. Jæja, best að halda áfram að lesa um hinn víðfræga, ráðagóða Ódysseif sem talar til allra vængjuðum orðum.

3 Comments:
At August 27, 2005 ,
Anonymous said...
Monopoly FAGNAR endurkomu Forska. Hélt satt bezt að segja að Hammer og Tensai San væru búin að binda Forska við eldavélina, eða að Forski hefði sest í sófann ógurlega og gæti ekki staðið upp úr honum. En hjartanlega velkomin af ströndinni, vona að hárið sé ekki of flókið og að kjólinn sé ekki í henglum eftir norðagarrann á íslenskri strönd (var ykkur ekkert kalt?)
At August 27, 2005 ,
Anonymous said...
Þarna er þá komin skýringin á fjarveru Forska. Hún hefur ekki getað látið sjá sig á almannafæri með glóðarauga og sprungna vör eftir að hafa lent í riskingum við saklausa konu sem álpaðist til að benda Rómeó á að hann væri með óreimaða skó og Forski tók það sem svo að hún væri að gefa honum undir fótinn í bókstaflegri merkingu(er greinilega búin að lesa of mikið merkingafræði). Því miður fyrir Forska þá var þetta Jarúslava, Úkraínski meistarinn í bekkpressu kvenna sem var hér á ársfundi kraftlyftingafólks
At August 28, 2005 ,
Anonymous said...
Já, ströndin er breytileg frá degi til dags, Ódysseifur kemst seint heim og úkranískir kvennkúluvarparar eru hreinustu dónar. Velkomin aftur Forski!
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home