Forskaren

Thursday, July 14, 2005

Að duga eða drepast

Heyrðu, sáuð þið fréttina í Fréttablaðinu um daginn? En hún var um það að það er víst rosalega dýrt að deyja!! Ég hef sko sannarlega ekki efni á því að drepast núna. það kostar alltof mikið maður. Ég ætla þess vegna að fara í fegrunaraðgerðir fyrir morðfjár og í allskyns vítamínklúbba og aðrar aðgerðir til að koma í veg fyrir að ég drepist strax. Svo kostar það mig svo mikið að halda í mér lífinu allan þennan tíma, að þegar ég er orðin 120 ára og lít enn út eins og Pamela Anderson þá hef ég alls ekki efni á að drepast. Þá verð ég að taka það til bragðs að tala við Dorian Gray og athuga hvað hann getur gert fyrir mig. Æi, já, það kostar sko allt pening í dag. Frekar flyt ég í krukku niður á torgi og verð gömul og krumpuð og útbreiði heimspeki mína, sem er að sjálfsögðu að ekkert skiptir máli í lífinu í rauninni nema ástin. En það er eins og heimspekingurinn sem bjó í krukku á torginu í Aþenu og breiddi út heimspeki sína. Alexander mikli kom eitt sinn til hans og spurði hann hvað hann vildi. hann gæti fengið hvað sem er, það eina sem hann þyrfti að gera var að nefna það. Heimspekingurinn lítur upp á Alexander og segir: Það eina sem ég vil biðja þig að gera fyrir mig er að færa þig, því að þú skyggir á sólina. Ekki slæm heimspeki það.

4 Comments:

  • At July 14, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Það eru stundum ansi óljós skilin á milli þess að vera heimspekingur og að vera frík

     
  • At July 15, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hvaða máli skipti sólin fyrir þennan kall? Ég meina bjó gaurinn ekki í krukku? Var þetta kannsi glerkrukka? Hahahaha..... Nei það var sko varla búið að finna upp leirkrukkur hvað þá glerkrukkur. Ég held að heimspekingurinn hafi mismælt sig og ætlað að segja:"Ég sé ekki sólina fyrir þér minn kæri Alexander, en það er allt í lagi því þú ætlar að gefa mér hrúgu af gu.... og svo hafi hann fengið hóstakast út af öllu rykinu sem hlýtur að safnast saman í svona krukkum.

     
  • At July 15, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já, eins og gamla máltækið segir, lifðu í Krukku en ekki í lukku...

     
  • At July 15, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Var það ekki "Lifðu í krukku með ljóta hrukku"

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home