Forskaren

Tuesday, July 12, 2005

Þriðjudagur til þrautar

Jæja, það varð þó aldrei að hún Grumpa yrði fullorðin og tæki upp á því að eiga afmæli svona um mitt sumar. Ég óska henni hér með til hamingju með afmælið. Megi allir klappa fyrir henni í vinnunni og vonandi fær hún rauðan dregil frá Hlemmi og heim til sín þegar hún hoppar glöð úr strætó í dag. En svo er það nú gjöfin. Hvað á maður eiginlega að gefa grumpu sem á bæði kanínu og skriðdýr? Hmmm, ekki er hægt að gefa henni kettling allavega. Hún á ekki börn í buru þannig að ekki er hægt að gefa henni barnafestingar á ísskápinn og klósettið. Hún er náttúrulega búin að ferðast út um allan heim þannig að maður getur svosem gefið henni uppblásna blöðru af heiminum.... nei, ekki nægilega góð hugmynd. Ekki er heldur hægt að gefa henni DVD eða videomyndir, því að Grumpa á hvorki sjónvarp né video/DVD tæki. Og ekki er það af sökum fátæktar, nei, það er vegna þess að Grumpa er ein af fáum manneskjum sem áttar sig á því hversu heimskulegt sjónvarpið er. Æi, kannski gefi ég henni bara eitthvað sem mig langar rosalega í og svo fæ ég það bara lánað hjá henni....
Annars út í aðra sálma. Hvað er málið með þessa leiðinlegu Coldplay hljómsveit?? Að hlusta á einn cd með þeim er torture. Ég legg til að þeir í fangelsinu í Kúbu kaupi alla diskana þeirra og píni fangana með tónlist frá Coldplay.

3 Comments:

  • At July 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég þakka hlý orð í minn garð og fallegt af Forska að ætla að gefa mér fullan kassa af hvítvíni og miða á Michael Bolton.
    En það hefur fjölgað á Laugaveginum skal ég segja ykkur því í hóp hamingjusamra heimilisdýra hefur bæst lítil og voðalega krúttleg kanína sem heitir James og var bjargað frá því að veslast upp úr hungri og kulda og vosbúð uppi í Mosó af miskunsömum samverja sem kom henni til mín í fóstur. Og Helmút er kominn með leikfélaga:)
    Já ég tékkaði á því að James er kelling eins og Helmút þannig að ég enda ekki uppi með 500 kanínur eftir nokkra mánuði

     
  • At July 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég veit sko um verri píningaraðferðir en Coldplay en það er nýja Stuðmannalagið!!! Þvílíkur óbjóður!! M.a.s friðarsinnar og mannvinir eins og ég fyllast ofbeldishneigð við að heyra þetta. Give me Coldplay any time!!

     
  • At July 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Vá, ef að nýja Stuðmannalagið er verra en Coldplay, þá hlýtur það að vera algjörlega 100% hræðilegt....ekki að ég trúi því svosem. Sko, má ég þá frekar biðja um sturtufólkið en óstuðmenn

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home