Sumargleði
Jæja, enn ein helgin búin og allt í gúddí með það. Fékk mér reyndar eins og svona 10 glösum of mikið af hvítvíni á laugardagskvöldinu. En annars var bara ágætt. Kokksi brá sér úr kokkagallanum og fór í betri fötin ásamt Forska og Halta Hólma og á öldurhúsum borgarinnar kenndi ýmissa grasa. Við sáum til dæmis ástralskan surfing gæa með verðlaunagrip, einn kalíforníbúa sem var ákveðin í því að halda framhjá konunni sinni. Tvær Pamelu Anderson og þrjár sveitastúlkur sem þorðu loksins að standa upp og taka kjúklingadansinn klukkan hálffimm um morgunin. Já segið svo að Forski taki ekki eftir þegar farið er á næturbröltið. Ég held að einn ákveðin aðili hafi ákveðið að stofna Wig Wam aðdáendaklúbb og núna rignir inn á emailið hjá manni auglýsingum og ljóðum um þessa nýju rokkgrúppu. Ekki verð ég hissa ef ég sé the number one fan æða upp á svið og fara í stagediving á Nasa þann 2. júlí. Það verða allir að mæta á svæðið og sjá öll lætin gerast. Annars er það að frétta af Hammer og Tensai San að þau fá íbúiðina sína á morgun og til hamingju með það!! Nú veit maður semsagt hvar matarboðin verða haldin í framtíðinni. Nú er bara að byrja að skipuleggja miðsumarshátíð með tilheyrandi látum í garðinum. Þar verður kveikt bál og rúllað sér í dögginni. Svo má ekki gleyma 17. júní gleðinni, Wig Wam gleðinni 2. júlí og 4. júlí gleðinni. Svo á grumpa afmæli 12. júlí, Monopoly 13. júlí.Svo er að sjálfsögðu bastilludagurinn þ. 14. júlí, að ógleymdri Verslunarmannahelginni. Haustgleði, Vetrargleði osfrv. það er enginn endir á allri þessari gleði. Ég veit ekki hvar þetta endar allt saman svei mér þá. |
5 Comments:
At June 15, 2005 ,
Anonymous said...
Aðdáendaklúbbur Wig Wam verður mættur í flugstöðina að taka á móti þeim þegar þeir lenda og mun svo hanga fyrir utan hótelið það sem eftir er eins og Beckhamaðdáendurnir.
Ég get varla beðið eftir fyrstu grillveislunni á hjá Hammer og Tensai og hlakka mikið til að taka þátt í öllum þessum merku atburðum sem eru framundan og sjálfsagt er að halda upp á því aldrei er gott partý of oft haldið eins og máltækið segir
At June 16, 2005 ,
Anonymous said...
Já við Hammer erum þegar búinn að plana nokkrar gleðrir og haug af kaffiboðum. Og svo auðvitað panta hvítvín í lítravís til að eiga handa Forskanum ágúst.
At June 16, 2005 ,
Anonymous said...
Er kannski Forskaren farin að drekka Spur? Næturlífið virðist orðið svo villt eitthvað hjá Forska.
At June 16, 2005 ,
Anonymous said...
Svo er afmælið hans Hammer 30 júní ef einhver er búinn að gleyma því :-) Ætli því verði ekki slegið saman í gott grillpartý hjá okkur á nýja staðnum!
At June 16, 2005 ,
Anonymous said...
Þetta hljómar vel, Hammer á afmæli á fimmtudegi og verður kanski með grillpartý þar sem allt verður fljótandi í Spur á föstudegi og svo er Wig Wam á laugardegi. Þetta kalla ég nú helgi:)
Og by the way þá vil ég láta fólk vita að ég verð í fríi ALLA föstudaga í sumar...sweet!!
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home