Gleðilega Hvítasunnu
Jæja, búin að eiga þennan fína sunnudag. Brugðið var á það ráð að byrja daginn með einum góðum Brunch og Forskaren vaknaði að sjálfsögðu í bítið og bjó til hinar bestu kræsingar. Heimasætan hjálpaði reyndar ekkert til og ég þurfti að vekja hann af værum svefni þar sem hann lá og dreymdi að Amazonurnar væru að elta sig. En eftir brunchinn góða var hoppað upp í bíl og keyrt til Eyrarbakka. Þar var tekið á móti gestunum með kaffi og köku, slúðri og músi músí með börnunum. Reyndar var þögnin og hreina loftið svo mikið að ekki leið á löngu þar til Forskaren fór að finna til mikillar syfju og einkennilegrar tilfinningar, en sumir kalla það afslöppun....eða slökun...höfuðborgarbúar fóru þó sælir og ánægðir heim, allir sem einn. Ég kom svo hingað heim í Kópavoginn og fékk mér einn bjór og þreytan eftir fjöruferðina leið fljótt úr mér. En svona fyrst einhver var að tala um lélegan skáldskap og að kveða hvorn annan í kútinn, þá er kannski við hæfi að birta eitt af ljóðunum sem skrifuð voru fyrsta árið mitt í háskólanum og sjá hvort einhverjum ónefndum lítist betur á þetta : )
Is happiness just a fleeting moment?
Is is just one second that shoots through your heart
In an instant.
Your world lights up and you feel all your feelings,
and then it is gone,
just like the moment
4 Comments:
At May 16, 2005 ,
Anonymous said...
Ég samdi líka einu sinni voða rómantískt ljóð:
There´s a lady who´s sure all that glitters is gold/
and she´s buying a stairway to heaven
Whwn she gets there she knows, if the stores are all closed/
with a word she can get what she came for.
Fannst ég samt einhverntíma hafa heyrt eitthvað svipað áður svo ég var ekkert að senda það í Lesbókina
At May 17, 2005 ,
Anonymous said...
Er ekkert hægt að tala hér nema í bundnu máli? Þarf maður að taka Bókmenntasögu 1-IV til að vera með? Engin að tala um verðbréf, hækkandi gengi krónunnar, aukin útgjöld í USA, meira atvinnuleysi í Þýskalandi? Annars væri ég alveg til í að ræða allt annað en vísur og kvæði !!!
At May 17, 2005 ,
Anonymous said...
Og hvernig ættu svona viðskiptaljóð að hljóma?
Veðbréfin og veðið hækkar.
Þá blóðþrýstingurinn í mér lækkar.
Atvinnuleysið það stækkar og stækkar.
Það er augljóst að viðskiptafræðingar, hagfræðingar og sjórnmálfræðingar eru framandi verur í heimi ljóðsins.
At May 18, 2005 ,
Anonymous said...
Er Grumpa virkilega að líka ljóðum forskarens við vísnalíki (sbr. bjórlíki), samið af blindfullum og útúrreyktum síruhippum?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home