Próflestur og ritgerðasmíð
Jæja, nú eru páskarnir búnir, Bobby Fischer orðin Íslendingur sem finnst skemmtilegast að versla í Hagkaup og Páfinn látinn. Hvað gerist eiginlega næst? Fer Tensai San kannski að lesa bókmenntir frá miðöldum? og fer Grumpa kannski að spila tölvuleiki? Og hvað ef Monopoly gengur í Sjálfstæðisflokkinn? Móðir Jörð flytur á mölina, Hammer fer að fíla Tom Hanks? Og Kokkálaði kokkurinn hættir að styðja Davíð? Annars er nú ýmislegt að frétta síðan síðast, Forskaren og Grumpa hittust blaðskellandi á kaffihúsi/öldurhúsi/veitingarhúsi í 101 yfir páskana og skipulögðu skemmtanahöld út árið. Nú er dagatalið útfyllt af ýmsum gleðiskap og sá fyrsti verður núna þ. 23. apríl hjá Grumpu (að sjálfsögðu). Þar verður ýmislegt gert sér til dægrastyttingar eins og að fagna sumrinu ,sem hefur reyndar ekki komið á Íslandi síðan Ingólfur kallinn villtist á leiðinni í frí til Flórída og strandaði í staðin í fjörum landsins. En hvað um það. 10 stiga hiti og slydda telst víst til sumars á Íslandi og hver er svosem ekki alveg sáttur við það? Maður fer bara niður í Nauthaulsvík sem er upphitaður fermetir. Þar er hægt að liggja í fósturstellingunni í sólbaði í bikininu sem var keypt á Norrænu 1989..... Annars hefur Forskaren líka heyrt að Móðir Jörð sé farin að tala við bækurnar í Þjóðarbókhlöðunni og gott ef þær eru ekki farnar að svara henni líka. Tensai San og Hammer eru eitthvað mikið að bralla í 101 og frést hefur að Kokkálaði kokkurinn stefni að frægð og frama sem kokkur í sveitinni og að hann sé að hanna uppskrift af smákökum sem eiga að heita í höfuðið á Kokksa. Af Forskaranum sjálfum er það að frétta hann og Monopoly eru búnir/ar að sækja um sem fréttastjórar á RÚV. |
12 Comments:
At April 06, 2005 ,
Anonymous said...
Já nú er aldeilis verið að bralla og margt spennandi í bígerð. Hammer og ég erum í hreiðurgerð og þegar byrjuð að plana fyrsta boðið. Kannski Grumpa vilji þá koma og gera bollur hjá okkur líka?
At April 06, 2005 ,
Anonymous said...
Ég er búin að komast að því að sjálfsímynd Íslands er karllæg og háleitin og að ég flokkast ekki sem mjög háleit; grafandi kartöflur í jörð. Ja... nema ef hugveran geti fundið háleitni í merkingarbærum tjáningarhætti á lýsingu á lífi mínu. Jáh.. best að halda áfram að tala við bækur.
At April 06, 2005 ,
Anonymous said...
Mér finnst það háleitt að moka í garðinum sínum, jafnvel þó ekki væri nema bara til að leita sannleikans með klóru og fötu að vopni... Annars vil ég koma því á framfæri að Forskaren er ekki öll þar sem hún er séð þegar hún tjáir bikíni-birgðir sínar. Hún á gommu!! Og þau eru öll nokkuð ný og í öllum litum.
At April 07, 2005 ,
Anonymous said...
Að Forskaren skuli geta komið öllu því markverða, sem gerst hefur í lífi sínu og 6 annara síðastliðinn mánuðinn, fyrir í nokkrum setningum segir bara það að þetta fólk þarf að finna sér einhver áhugamál eða bara gera eitthvað sem er í frásögur færandi áður en það grær fast við sófann (eða við kartöflugarðinn í tilviki Móður Jarðar. Hversu sorglega óspennandi lífi er hægt að lifa?! Það gerist meira hjá vitaverðinum á Hornströndum
At April 07, 2005 ,
Anonymous said...
Hvaaaaððaaa...... Hér kemur speki " Vinna er ekki alltaf nauðsyn. Til er upphafið iðjuleysi sem alltof fáir ástunda" Þetta skrifaði George Macdonald einhvertíman milli 1824 og 1905.
At April 07, 2005 ,
Anonymous said...
Grumpa veit nú ekki mikið um kartöflurækt (né smábæi) ef hún heldur að það sé óspennandi. Ekki bara er ræktunin og uppskeran spennandi ferli helur líka allt sem þú verður vitni að og heyrir frá nágrönnunum meðan maður liggur á hnjánum í garðinum. Séð og heyrt er bara rusl miða við "The real life".
Bara svo þið vitið þá er mjög háleitt að vera vitavörður á Hornströndum.
At April 07, 2005 ,
Anonymous said...
Ég skil ekki... Af hverju eru allir að tala um kartöflur????
Og ég bara verð að minna Grumpu á að hún hékk á Hagstofunni heilu dagana að skoða mannanöfn... talandi um að vanta áhugamál!
At April 07, 2005 ,
Anonymous said...
Ég þurfti ekki að hanga á Hagstofunni í eina mínútu, end hún ekki opin nema milli eitt og þrettán á daginn eins og aðrar opinberar stofnanir, heldur hef ég fundið út hvað internetið er merkilegt fyrirbæri og það er hægt að nota tölvur í margt annað en að skjóta niður cyber geimverur eða keyra á gamlar konur í tölvuleikjum....
At April 08, 2005 ,
Anonymous said...
ég er sammála kokkinum um upphafið iðjuleysi
At April 08, 2005 ,
Anonymous said...
Ég hef ákveðið að skipta um starfsvettvang, nú í eitt skiptið fyrir öll. Ég ætla að sækja um öll opinber embætti sem eitthvað fútt er í. Ef ég fæ ekki embættið, þá fer ég bara í mál við karlpungana. Ef ég fæ embættið þá byrja ég á því að segja starfsfólkinu að ef einhvern vilji hætta sé það fínt mín vegna, ég sé hvort eð er búin að tala við tensai san, móðir jörð, Grumpu, Forskaren, Kokkkinn og Londoníu um að taka að sér þeirra störf. Þegar starfsmennirnir reka mig svo út með látum, hóta ég málsókn og hrópa Einelti, Einelti, og sem svo bara um vegleg starslok. Svona get ég haldið mér gangandi í mörg ár. OG ÞARF ALDREI AÐ SKIPTA UM GSM NÚMER. Karllægur heimur hvað!!!!
At April 09, 2005 ,
Anonymous said...
En Grumpa mín það sást til þín vera að rogast með stafla af gömlum doðröntum sem á stóð "Undarleg mannanöfn" og "Hvad heder du?" eða "Nöfn A-Z" og svo "Hvað er digital?"
En ég skal sýna þér hvernig á skjóta niður ljóta cyber-kalla. Það er nefnilega verulega skemmtilegt.
At April 09, 2005 ,
Anonymous said...
Ég gleymdi, ég og Hammer skelltum okkur í bíó í gær að sjá "House of Flying Daggers" og hún er æðisleg. Ég mæli algerlega með henni, en það er verið að sýna hana í Regnboganum á kvikmyndahátíðinni. Ofsalega falleg kínversk mynd eftir sama leikstjóra og gerði "Hero"
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home