Páskar og annað punt
Jæja, þá er Forskaren risin upp frá heimspekilegum dauða og öðru lærdómstengdu volæði. Búin að missa af mörgum þáttum með Gísla Marteini og úthúða öllum fallegum montnum karlmönnum með veggjakroti í bílastæði Hamraborgar. Annars eru páskarnir að nálgast og alltaf er maður í jafn miklum vandræðum hvað maður ætlar sér að gera annað en að háma í sig páskaegg í morgunmat og éta innan úr því allt vonda nammið sem selst annars ekki því að það er svo hart og vont. Á páskunum kemur yfir mann einhvernskonar súkkulaði æði. Þetta er eini tíminn á árinu sem manni er ætlað að háma í sig súkkulaði í morgunmat, og súkkkulaði fíklar eins og Forskaren láta náttúrulega ekki svona gullið tækifæri framhjá sér fara. Í bígerð er að kaupa sér eins stórt súkkulaðiegg og námslánin leyfa og njóta páskadagsmorguns út í ystu æsar. Hvað á einhleyp kona að gera annað? Annars virðist fylgja páskunum einhver ótrúleg gleymska alltaf. Ekki veit ég hvort þetta á við alla, en ómögulegt þykir að muna hvað maður gerði á páskunum á seinasta ári, eða árið fyrir það. Maður þarf alltaf að hugsa sig um. Fór ég á skíði? Eða fór ég á ströndina? Nei, mestu líkurnar eru á því að maður hafi legið heima með páskaeggið í fanginu og horft á Friends í 1221. skiptið. Maður nennir aldrei að gera neitt á páskunum. Gleðilega páska! |
4 Comments:
At March 22, 2005 ,
Anonymous said...
Það er gott að heyra að Forskaren er enn á meðal vor. Það er skó nóg hægt að gera um páskana ef viljinn er fyrir hendi. Fyrir utan það að háma í sig sín eigin páskaegg má heimsækja vini og kunningja og borða líka af páskaeggjunum þeirra og aldrei að vita nema einhver hafi bakað köku í tilefni dagsins. Nú svo verður Monopoly með páskablót á föstudaginn langa þar sem feitur sauður verður grillaður á teini og drukkinn með mjöður. Og by the way, það er skyldumæting!
At March 22, 2005 ,
Anonymous said...
Já páskarnir eru bara letihelgi. Sem betur fer virðist maður vera laus við fermingarveislur þetta árið og það er nú aldelis ljúft. Fyrir utan grillveisluna góðu verður aðallega legið með tærnar uppí loft þessa helgina og haldið áfram að leika sér við nýja Makkann minn sem er algert æði! (Já ég veit það Grumpa þú ert búinn að segja mér það í mörg ár). Annars tek ég það fram að eftir hina hræðilegu tónlist sem réð ríkjum í síðasta partý hjá Forskaren og Kokksa hef ég áhveðið eftir 10 tíma hjá sálfræðingi og mikla áfallahjálp að ég mun taka Makkann minn með í næsta partý og er að útbúa hina ýmsu playlista sem munu ráða ríkjum. Þar er t.d. ekki að finna "Stál og hnífur" né Modern Talking! En um það bil 10.000 önnur góð lög úr mínu prívat safni :-)
At March 24, 2005 ,
Anonymous said...
Sko, Það er ekki Kokksa að kenna að "Late 80´s " andinn spretti upp eins og óuppgerðar tjáningar sem fengu ekki útrás á sínum tíma þegar Vodkablandað frískamín rennur ljúflega oní maga!!! Þið ættuð bara að þakka fyrir að ég fílaði ekki Boy George.....eða Kajagoogoo.....
At March 24, 2005 ,
Anonymous said...
Do you really want to hurt me? Do you really want to make me cry...
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home