Feminískar hugleiðingar
Jæja, núna hef ég um tvennt að velja á þessu laugardagskvöldi en það er að horfa á Gísla Martein eða lesa bók eftir Sigmund Freud....Hmm, má ég þá frekar biðja um Sigmund gamla. Allt frekar en þessi fáranlegi Gísli Marteinn. Hann hlýtur að hafa misst upp í sig herðatré einhvertíma. En talandi um sjálfumglaða karlmenn, þá veit ég bara eitt verra en karlmenn eins og Gísla Martein (ekki að maðurinn getur eiginlega ekki kallast karlmaður.....) og það eru myndarlegir karlmenn sem vita alltof mikið af sér. Á Íslandi er mikill skortur á myndarlegum mönnum því að það er greinilegt að mönnum er ekki kennt að fara í bað, raka sig, greiða sér eða bara yfirhöfuð hugsa nokkuð um hvernig þeir líta út. Og ef að svo ótrúlega vill til að íslenskur karlmaður fæðist myndarlegur, þá á hann góða ævi framundan sem foli í 20000 kvenna stóði (heldur hann). En ekkert og þá meina ég EKKERT er eins Fabio legt og asnalegt og maður sem heldur að hann sé eitthvað meira en aðrir vegna útlitsins og talar svo sífellt um allar konurnar sem ,,ætluðu bara að nauðga mér mað´r....þú veist útaf því að ég er bara svo offffssssaallllega sætur en ég get ekkert að því gert mað´r..." Oj oj oj... Ég fékk einn svona í heimsókn um daginn og ég held að hann hafi náð hintinu af hryllingssvipnum framan í mér að dæma. Á tímabili leið mér eins og ég væri að horfa á Gísla Martein. Þetta var algjör martröð. Það endaði með því að ég henti mannfýlunni út og sagði honum vinsamlegast ekki að hafa fyrir því að koma aftur í heimsókn með sínar yfirlýsingar. Má ég þá frekar biðja um skrækjandi smástelpur í strætó á leiðinni í Smáralind, og þá er nú mikið sagt. Það segir nú bara hvað ég hata mikið sjálfumglaða karlmenn. Ekki misskilja mig samt, karlmenn mega endilega vera góðir með sig, en bara ekki á þennan hátt. Þetta er það versta sem hægt er að hugsa sér (nema væri fyrir mann að borða marmite). En jæja, best að snúa sér að honum Sigmund Freud með alla sína komplexa. Hann var ekki myndarlegur....oh no, en hann var sjálfumglaður mjög. Hann hefur samt örugglega aldrei sagt: ,,Vá, mað´r hva ég ereitthvaðflott´rmað´r í þessum gallabuxum...." Oh, no....eða... maður svosem veit aldrei. Hmm. |
9 Comments:
At March 06, 2005 ,
Anonymous said...
Ó hvað ég er innilega sammála Forskaren í þessu máli. Fátt er hryllilegra en samskifti við fólk sem er það upptekið við eigið ímyndað ágæti útlitslega eða otherwise. En segðu mér-hvað er "Marmite" ????????
At March 07, 2005 ,
Anonymous said...
Þú meinar sem sagt daðrari dauðans! Madonna hefur komist upp með þetta óralengi... gjörsamlega óskiljanlegt.
At March 07, 2005 ,
Anonymous said...
Svona daðrarar eru bara mömmustrákar sem geta ekki tekið ákvarðanir og ábyrgð á sjálfum sér og hafa um ekkert annað að tala en útlitið og nýju gallabuxurnar, sem sagt Britney með tippi !!!
At March 07, 2005 ,
Anonymous said...
Marmite er eitthvað breskt brúnt jukk í krukku og smakkast eins og hið illa!! Forskarin smakkaði þetta í einhverju bríaríi úti í Englandi og hún var viku að jafna sig.
At March 08, 2005 ,
Anonymous said...
Það vantar alveg bráðnauðsynlega kynbætur í þennan íslenska karlastofn og þá er ég ekki að tala um að flytja inn einhverja Skandinava með hormottu og sítt að aftan sem heita allir Sven eða Jonas og eru allir álíka hot og Gísli Marteinn. Nei það vantar sko suðrænt blóð í þessa fjósamenn sem eru álíka sjarmerandi og freðin ýsa og kunna ekki að umgangast dömur né kunna þeir almenna mannasiði yfir höfuð (með einstaka undantekningum þó þar sem t.d Hammer er ljúfmennskan uppmáluð og afskaplega kurteis)
At March 08, 2005 ,
Anonymous said...
Dutti þið öll á höfuðið. Síðan hvenær er það orðið norm að taka fallega "hluti" fram yfir nytsama "hluti"? Hvar er gamli hippafílingurinn elskum alla nema fallega fólkið? Ég ætla alla vega ekki að hugsa um veröldina upp á nýtt og finna mér ný lífsviðhorf, ekki án utanaðkomandi aðstoðar frá grasa- og alkahólframleiðendum !!! Það er verkefni sem verður tekið föstum tökum á Grund.
At March 09, 2005 ,
Anonymous said...
Maðurinn er náttúrulega bara Himbo
http://www.heartless-bitches.com/rants/himbos.shtml
At March 10, 2005 ,
Anonymous said...
Enn ein ástæðan til að fara bara í sveitina!! Þar getur maður farið út í gúmmístígvélum og í strigabrók án mikillar etfirsjáar....nema síður sé!! Fegurðarálagið er of mikið í borginni....I´m gone.
At March 20, 2005 ,
Anonymous said...
Er Forskaren alveg búin að týna sér í einhverjum heimspekiskruddum eða sló hún tvær flugur í einu höggi og er byrjuð að deita heimspekinema?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home