Forskaren

Sunday, May 08, 2005

Sunnudagur til sælu

Búin að eiga hinn besta sunnudag. Það er einmitt svona sem maður vill eyða þessum dögum. Haldiði ekki að Forskaren hafi vaknað eldhress klukkan 7.30 (nákvæmlega) og drifið sig á hlaupabrettið (búin að fá nóg af því að hlaupa útum öll engi eins og einhver brjáluð geit).
Eftir það var farið og borðað hádegismat með Grumpu og ýmis hernaðarleyndarmál rædd. Svo var farið í Háskólann eftir það og hlustað á Herr Flick segja frá hvernig þjóðverjar töpuðu stríðinu í seinni heimstyrjöldinni. Á eftir honum kom afkomandi Thors ættarinnar og sagði að þetta hefði eiginlega verið bara allt Íslendingum að þakka, alveg eins og Franska byltingin var allt íslandi að þakka, gott ef hann skellti ekki Kúbudeilunni og kalda stríðinu þarna inn í líka. Já, okkur Íslendingum er sko ekki fisjað saman. Við erum bara ekki að láta fara mikið fyrir okkur og þykjumst bara vera smáþjóð, en undir niðri er allt ákveðið í neðarjarðarbyrginu undir löggustöðinni á Hverfistgötu. Gott ef það er ekki bara verið að redda heimsbyggðinni frá hryðjuverkum í þessum töluðu orðum....
En semsagt, menningarlegri verða sunnudagarnir varla. Forski og Grumpa gengu margs fróðari niður í bæ og enduðu heima hjá Grumpu í kaffi og með því. Forski var reyndar orðin svo aðframkomin af súkkulaði skorti að hún réðst á sunnudagsmyntusúkkulaðið hennar Grumpu og gott ef hún beit hana ekki í puttann í leiðinni. Grumpa tók þá pönnukökupönnuna og barði Forska í hausinn svo söng í. DV er búin að hafa samband við okkur og spyrja hvort við viljum koma í forsíðuviðtal. Grumpa ætlar að halda á pönnunni og Forski ætlar að vera útötuð í myntusúkkulaði. Svo kennum við bara kerfinu um og segjum að það hafi svikið okkur og heimtum bætur og ókeypis súkkulaði og pönnukökur næstu 30 árin.

10 Comments:

  • At May 08, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Við íslendingar erum auðvitað mikilmenni upp til hópa og ekki fórum við að skæla og snýttum okkur í bróderaða vasaklúta eins og væskillinn hann Ódiseifur átti víst að hafa gert ásamt öllu sínu hiski þegar eitthvað bjátaði á. Ó nei, við bara hjuggum mann og annan og ortum rímur þess á milli og drukkum mjöð

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Island, Island über alles. Spurning hvort að Íslendingar hafi orðið svona brjálæðislega flottir vegna þess að þeir drukku svo mikinn mjöð eða vegna þess að þeir átu svo mikið af bókum í gamla daga???

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Nei nei Íslendingar er svona vegna þess að þeir eltust við rollur upp um öll fjöll sbr. Bjartur í Sumarhúsum. Af sömu ástæðu er þeir svona dónalegir við kvennfólk... kindin er auðveld í samnaburði við okkur kvenfólki. Þarna liggur þjóðarsálin grafin í sauðkindinni og ruddaskap.

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég segi að þjóðarsálin sé falin í merkingarbærum tjáningarhhætti sem ýtir undir neindina í nýhilismanum.

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég held að Forskaren ætti bara að halda sig við Cosmo

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Íslenskir karlmenn kunna að vísu ekki basic mannasiði almennt, en þeim dettur ekki í hug að gagnrýna konur fyrir hvernig við hugsum eða telja okkar skoðanir minna virði en þeirra eigin. Og persónuleg vil ég frekar lifa í samfélagi þar sem skoðanir mínar eru virtar heldur en þar sem opnaðar eru fyrir mér dyr en að öðru leiti litið á mig sem heilalausan hálvita.

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Íslenskir karlmenn eru svolítið meiri sexí í sveitinni...Kokkurinn er alveg á því að þeir eru ekki enn byrjaðir að fara í naglasnyrtingar og húðspa eins og þessir pjöttuðu í bænum...fussumsvei!! Nei, hér hrækja þeir í dalla og eru stórir og sterkir og sumir eiga m.a.s hesta!!!

     
  • At May 10, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    kindur eru holgervingar merkingarbærs nýhilisma!

     
  • At May 10, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Móðir Jörð þarf að fá sér minnst einn þrefaldan whisky!!!

     
  • At May 10, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Bankaði uppá hjá Móðir Jörð og hún bauð uppá fjórfaldan whisky og popp!!! Hættu að gefa henni hugmyndir Grumpa....hikk...

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home