Forskaren

Tuesday, May 03, 2005

Vor í huga

Góðan daginn allir saman,
Núna er farið að saxast á prófin og ritgerðirnar og ég sé loksins fyrir endann á þessu öllu saman. Forskaren var orðin svo hæper af allskyns isma að hún stóð sjálfa sig að því að tala látlaust þó að engin væri nálægt. Hárið er allt komið í flækju og allt er í drasli í kringum mig. Uppvaskið hrúgast upp og fötin sömuleiðis. Það eru bækur hérna útum allt og geisladiskarnir sömuleiðis. Tölvan er komin í overdrive eins og kaffivélin. Annars er mjög gaman að fylgjast með öðrum stúdentum í sama ástandi. Ég átti til dæmis leið upp í Árnagarð í gær og er ekki frásögu færandi nema að útgangurinn á liðinu þarna uppfrá var ekki beint til fyrirmyndar. Ekki það að ég passaði ágætlega í hópinn með mitt rótaða hár og í sama jogginggallanum síðan í apríl. Kannski er hægt að efna til keppni og gefa verðlaun fyrir þreytulegasta og verst farna stúdentinn. Sá sem vinnur fær glæsileg verðlaun....annars dettur mér ekkert í hug sem geta verið góð verðlaun fyrir svona glataða keppni.
Annnrs, að öðru. Forskaren getur nú ekki verið frægur fyrir að vera í bókmenntafræði án þess að hafa séð handritin góðu. Þannig að einn góðan veðurdag í seinustu viku fór Forskaren í Þjóðmenningarhúsið og skoðaði íðilfögru handrit vora Íslendinga. Þetta eru tvímælalaust gersemar Íslands og gersemar miðaldabókmennta heimsins. Ég verð nú að viðurkenna að það munaði litlu að hægri höndin yrði lögð á hjartastað þegar Möðruvallabók og Flateyjarbók voru litnar augum.
Stórmerkilegt safn og núna hvet ég alla tölvuleikja og kvikmyndanörda til þess að klæða sig í háskóna og fara og kíkja á skruddurnar góðu. Og það sem meira er að engin þarf einu sinni að hætta sér útfyrir 101.

10 Comments:

  • At May 03, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Þetta hljómar nú mjög rómantískt ástand á stúdentum eins og þú lýstir því en þriggja barna móðir á Eyrarbakka er ekkert rómó aðeins meðaumkunnarverð og með heimilið í tættlum er hún búin að missa allt álit í bænum.... eins og það skipti nú máli þegar háleit ritgerð er í smíðum... þetta sveitapakk má bara eiga sig.... ahhhh .. já of mikil kaffidrykkja.. best að taka aðra íbófen til að minka bólgu, deyfa sársauka og ná sér niður úr hæpinu....... blabla blallllll

     
  • At May 03, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já, ætli maður skundi ekki með afkæmið í Þjóðmenningarhúsið bráðlega, meðan hægt er að binda barnið í kerru. Ekki viljum við að æska þessa lands nagi handritin, helli Svala niður á fallegu bródereðu dúkana eða nagi beinin af fornum mönnum. Og svo lengi sem stúdentarnir muna eftir að fara í einhver föt er ekki mikil hætta á ferðum, nema reppið í rúst. Forskaren tekur bara til við að lesa Cosmó eftir próf og nær fyrra reppi í fatavali, Móðir jörð nær fyrra reppi hjá sveitapakkinu með því að setja niður kartöflur (eða er það orðið of seint???)

     
  • At May 04, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Nei nei 10. maí er svona allt í lagi.

     
  • At May 04, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Eru þessi handrit ekki meira og minna nöguð hvort sem er eftir svanga sveitarómaga sem höfðu ekkert annað að éta hérna í den? Það tæki því enginn eftir því þó að mini monopoly nartaði í eitt hornið

     
  • At May 04, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Mér heyrist nú að einhver verði að hætta sér austur fyrir fjall og huga að Móður Jörð. Hún skrifar bara allt í belg og biðu og ekkert skilst. getur ekki Kokksi litið eftir henni, hellt uppá kaffi og svona. Og það er víst líka soldið rómó að vera með sveitheimilið í algjörri rúst og krakkana að sníta sér sjálf á meðan meistaraverkin eru skrifuð.

     
  • At May 04, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Og hvernig er þetta með Monopoly, er ekkert verið að gefa krakkanum að éta? Er vesalings barnið altaf svo svangt að það er bara gert ráð fyrir því að það leggist á beit á hvað sem er, gömul handrit, húsgögn, bein etc.

     
  • At May 06, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Það sást til Foskaren hlaupa um á túninu við Norræna húsið í fyrradag, kviknakin og endurtaka "Goethebeinið, Pan og Cosmo, Goethebeinið, Pan og Cosmo". Móðir jörð sat þar rétt hjá og stakk steinum í jörðina og taldi sig vera setja niður karftöflur, hún trúði því að ritgerðartörnin væri virkilega búin. Þeir sem sjá til þeirra ekki ónáða þær, þetta gengur yfir.

     
  • At May 07, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Frést hefur að Forskaren sé búin með síðasta prófið og að skila inn síðustu ritgerðinni og að nú sé lokinu á tölvunni ekki lyft. Hmmm... hér með er lýst eftir Forskanum online!!!!!!
    Ætli Forski sé kannski bara sofandi? At last!

     
  • At May 08, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Sést hefur til Forskaren í Máli og Menningu vera að sanka að sér lesefni fyrir sumarfríið. Bókmenntafræðinemar hittast víst í september og metast um það hver hefur lesið meira af heimsbókmenntum yfir sumarið. Það sem Forskaren var að sanka að sér var m.a grískir harmleikir í 18 bindum, æviminningar allra rómverskra keisara frá upphafi, Rússneskar gamansögur (sem reyndar er lítið 15 blaðsíðna kver), Better sex life in three easy steps, Saga isma í 18. aldar raunsæisbókmenntum, Þýskir skátasöngvar fyrr og nú, The wisdom of George W. Bush (reyndar virtist eintakið vera gallað því allar blaðsíðurnar voru auðar), The complete work of Plato and all of his family og til að toppa allt þá ætlar hún að lesa ALLAR bækurnar eftir Guðberg Bergsson og Thor Vilhjálmsson!!! Sá sem reyndi það síðast sást hlaupa allsber til fjalla rífandi í hár sitt og skegg froðufellandi og skrækjandi eins og stunginn grís og ekkert hefur spurst til hans síðan

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Vonum bara að Forskaren hlaupi í rétta hátt, þá s.s yfir heiðina og komi í þessa átt þá get ég beðið eftir henni uppá vegi og gómað hana....vona bara að hún forskalist ekki....ég get sett hana í heitan vatnsbala og gefið henni kakó og með því.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home