Forskaren

Tuesday, April 26, 2005

Post summercakeparty

Forskaren er algjörlega orðin sannfærð um að Pan hafi yfirtekið sál og líkama undanfarnar tvær vikur. Pan verður ærslafullur og lætur öllum illum látum á nóttinni og það hefur einmitt gerst hjá mér seinustu tvær vikur. Ég sem fer aldrei neitt, en ég er gjörsamlega búin að mála bæinn rauðann (eða þannig, en ég er ekki frá því að það fylgir oflæti að vera undir álögum Pans). Fyrst æðir maður út á árshátið og endar uppi á sviði baulandi eins og belja í beljubúning og svo næstu helgi fer maður í rokkælukökuboð. Og það er í fyrsta sinn sem ég verð vitni af kökuboðsgesti drekka viskíið sitt með marenstertu. Annars var sumargleðin hennar Grumpu seinasta laugardag með eindæmum skemmtilegt og allir virtust skemmta sér vel og halda haus að auki. Skemmtiatriði eins og Nitro var á sínum stað og bæði kvenrembur og karlrembur skiptust á skoðunum langt fram eftir nóttu.Í fyrsta sinn í langan tíma virtust fleiri karlmenn en konur mæta og þótti það að sjálfsögðu ekkert verra fyrir einhleypa konu sem er undir áhrifum Pans. Forskaranum er reyndar farið að líða svolítið eins og geit á vorin sem hleypur út um alla haga. En ég læt nú reyndar bara nægja að hlaupa á brettinu í Nautilus við og við. Annars er þetta nú ekki allt búið því að Forskaren fór líka á Robert Plant tónleikana í Laugardalshöll á föstudagskvöldinu. Og viti menn, eftir að ég og vinirnir voru komin inn í sal að horfa á eitthvað stórskrítið upphitunarband, haldiði þá ekki að Bobby Plant hafi birst frammi í andyri í bananabúning sem dulargervi og stillt sér upp fyrir ljósmyndarann. Forskaren er að sjálfsögðu ansi sár fyrir að hafa misst af þessu einstaka tækifæri. En hann kemur kannski aftur eftir 35 ár. Hver veit. Annars er Forskaren búin með tískuritgerðina sem fjallar um Panhópinn í rokkælutights. Núna er bara að byrja á þróunarkennignu Darwins og hvernig hún var túlkuð út frá ríkjandi samfélagsviðhorfi. Kannski fer Forskaren þá endanlega yfirum og endar niðri í Nauthólsvík að leita að Geirfuglinum.

4 Comments:

  • At April 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Þróunarkenning Darwins og Pan hljóta að eiga eitthvað sameiginlegt, maður kemur frá dýrum, maður og dýr renna saman í eitt, villta eðlið og allt þetta ... ein sopi af marengsköku og gúlgbiti af wiskey ættu að vera nóg til að tjasla þesari ritgerð saman!

     
  • At April 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ef Forskaren sést vera farin að borða óeðlilega mikið af banönum, hanga í gardínunum og það eina sem kemur upp úr henni er uggh þá er hún búin að söggva sér of djúpt niður í þróunarkenninguna og verður dregin með valdi á næsta kaffihús og kippt inn í nútímann með einum latte og marensköku

     
  • At April 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég held að Forskaren sé að komast að því að það er ekki hægt að vera einungis FORSKARE. Ég minni því á hina geysiathygliverðu staðreynd að fílar á ákv. svæðum í Afríku gera sér það til dægrastyttingar með reglulegu millibili að eta súra ávexti þannig að þeir verða alveg blindhaugafullir og liggja svo og sofa í nokkra daga á eftir. Fræðingar telja þetta vera gert með ákv. tilgangi. Verst er að fílarnir tala bara mannamál þegar þeir eru fullir, en þá bulla þeir svo mikið að það er ekkert að marka þá. Við erum eins og selkonan bendir á bara VILLT DÝR.

     
  • At April 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já, ætli þetta sé ekki rétt hjá Monopoly, þó að ég nái kannski ekki stærð fílsins, þá hlýt ég að vera nokkuð villt geit, sem ánetjast Bakkus og blóta Dýónísus svona við og við. Maður verður nú að sletta úr klaufunum reglulega...

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home