Gleðilegt sumar!
Núna er Forskaren næstum því búin með ritgerðina um Pan og er orðin sérfróður í Eros og ástarbralli Pans. Annars er það nú að frétta að Forskarinn brá sér í betri skóna seinasta laugardag og fór á árshátið hjá Hagar, stórkompaníis Ásgeirs og Co. Forskaren ætlaði nú bara í matinn og fara svo heim að lesa Astrid Lindgren, en var í staðin dregin upp á svið til að leika búkollu. Forskaren ætlaði nú ekki að íklæðast beljubúning með slaufu án þess að drekka nokkur vínglös og einn martini bianco...og síðan var ekki aftur snúið. Það var svo gaman á barnum að Forskaren endaði á öldurhúsi niðri í bæ, þar hitti hún fyrir föngulegan karlmann frá New York sem varð á því að spyrja sakleysislega hvernig það væri að læra menningarfræði. Aumingja maðurinn var svo vitlaus að biðja mig að segja sér meira um fræðin og hann var ismaður til dauða á tveimur tímum. Það eina sem Forskaren lærði um manninn frá Eplinu stóra var að upphaflega kom hann frá Ohio. Í lokin hljóp hann öskrandi í burtu í bókstaflegri merkingu. En Forskaren var einstaklega ánægður með sitt hlutskipti. Hverjir eru betri til að isma til dauða en kurteisir drengir frá Ohio? En ekki er öll gleði á enda því að Forskaren á eftir að fara í sumargleði sem haldin verður hjá Grumpu gleðigjafa næsta laugardag. Þar verða vonandi ekki grænir kokteilar í boði svo að gestir fari ekki ælandi heim eins og komið hefur fyrir. En ég frétti víst að Grumpa hafi náð sér í föngulegan karlmann í fjörunni á Seltjarnarnesi á dögunum. Þar var hann að synda alls nakinn í sakleysi sínu í árlegu Viðeyjarsundi. En Grumpa óð út í og náði karli með klækjum og kokteilum. Það verður gaman að sjá hvernig fengurinn lítur út. Annars er nú sumardagurinn fyrsti í dag og ég hef ekki heyrt í einni einustu skrúðgöngu, engri lóu og ekki séð eitt einasta snjókorn. En það er væntanlega ástæðan fyrir því að hátíðarhöldunum var frestað. Það vantar allan snjóinn og rokið. Sjáumst hress á laugardag í sumargleði hjá Grumpu! |
4 Comments:
At April 22, 2005 ,
Anonymous said...
Já, GLEÐILEGT SUMAR og hjartanlega til hamingju með nýja Páfann, að klára ritgerðina um Pan og allt annað. Monopoly fór með einkadótturina í miðbæjarleiðangur, ætlaði að sýna afkvæminu hvernig maður heldur upp á sumarkomuna, en þá voru bara fimm manns á rölti í bænum, þarf af voru þrír þeirra enn fullir frá kvöldinu áður. En það stoppar ekki Monopoly frá því að koma í sumarfagnaðinn hjá Grumpu. ÉG vil biðja gesti að taka með sér skilríki því Monopoly ætlar að nota tækifærið og safna kennitölum til að kaupa eitt stykki Síma, kannski bara RÚV líka og jafnvel ef gengur vel að safna þá kaupir Monopoly Háskólann og gefur Forskaren bara fyrir hvað Foskaren blogga flott.
At April 23, 2005 ,
Anonymous said...
Gleðilegt sumar!! Það var mikill missir að sjá ekki Forskaren sem Búkollu á sviðinu....í Búkollu-búningi og komin í gleðigírinn!! Forskaren var svo hæstánægð daginn eftir yfir að hafa komist á bókmenntafræðitrúnó við blásaklausan mann sem hélt nú að hann væri kominn á sjéns...
At April 23, 2005 ,
Anonymous said...
Ef Monopoly vill vera framgangríkasta mamman í bænum þá á hún að sleppa því að fara á svona sumargleði, 17 júní o.fl og detta frekar í það við og við til að halda geðheilsu (börnin græða á því..skilurðu). Þeir sem eiga ekki börn skilja þetta allra manna best.
At April 24, 2005 ,
Anonymous said...
Já gleðilegt sumar öll sömun. Ef ég hefði verið búin að lesa þetta fyrir kökuboðið hefði ég auðvitað farið fram á að Forskaren mætti í dressinu og tæki stuttan Búkolluleikþátt (taktu hár úr hala mínum og það allt). En eftir á að hyggja var það kanski eins gott að ég gerði það ekki tila að forða okkur hinum frá því að heyra langan fyrirlestur um Búkolluisma og dulda merkingu klaufdýra í módernískum raunsæisbókmenntum
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home