Forskaren

Thursday, April 14, 2005

Ritgerðarsmíð II

Forskaren er að drukkna í verkefnum, en situr samt hérna uppi á fjórðu hæð í Þjóðarbókhlöðunni og skrifar á bloggið. En einhverstaðar verður maður að fá frið til að veita hugsunum sínum útrás og segja eitthvað af viti. Núna eins og er, er Forskaren að skrifa ritgerð um Pan. Pan var guð hirðingjanna í forngrískri goðafræði og var semsagt hálfur maður og hálfur geit. Hann er æstur og lostafullur á daginn og á næturnar getur hann hrætt úr fólki líftóruna vegna ærslagangs. En þaðan kemur orðið Panic. Ég er semsagt í algjörum Panik núna því að ég kem bara ekki einu anskotans orði niður á blað í þessari annars mjög svo áhugaverðu ritgerð. Kannski veit Pan að ráðagerð minni og hefur plantað sér úti í horni í herberginu mínu og sett í mig panik. Það er kannski ástæðan fyrir þessum flautuleik sem ég heyri endalaust í hausnum á mér þegar ég er að reyna að skrifa eitthvað. Pan spilaði á flautu og dansaði úti á engi á daginn. Ég finn einmitt til mikillar löngunar til að dansa þessa dagana og mér finnst ég með eindæmum lostafull og þokkaleg þessa vikuna. Mig langar helst til að liggja undir tré (hvar sem það finnst nú hér á Íslandi) og faðma að mér þokkafullan karlmann (ég veit reyndar alveg hvar hann finnst). Ekki hjálpar veðrið þar sem sólin er komin hátt á loft og gott ef hitinn er ekki komin alla leið upp í 3 stig °C og allir að stikna úr hita. Ég ætla að biðja til Seifs og athuga hvort hann geti gert eitthvað í þessu. Hvort hann geti ekki skellt svona eins og einum snjóbyl yfir höfuðborgina svo vorhugurinn hverfi í bili ásamt þessum dagdraumum um að ég sé að dansa úti á engi með honum Pan.

10 Comments:

  • At April 14, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Forskaren ætti að venda sínu kvæði í kross(en ekki alvg óskilt samt) og skrifa ritgerð um Pan hópinn sem sýndi mjög svo lostafull undirföt á stað sem hét því merka nafni Uppi og niðri (var sko á 2 hæðum) og varð seinna að Keisaranum. Þetta voru víst ákaflega eggjandi sýningar og gott ef dönsk fatafella var ekki með í sjóvinu og baðaði sig í þvottabala á miðju sviðinu við andköf og stunur viðstaddra karlmanna. Þetta var sko fyrir daga súlustaðanna og kona í baði uppi á sviði þótti voðalega djarft.
    Nema þá að Forskaren skrifi um Amor fyrst hún virðist hafa huggulegan karlmann í sigtinu!! Say no more!

     
  • At April 15, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Bíddu nú við - er eitthvað rómó, rómó í gangi og maður fær ekki að vita neitt? Ætli Monopoly verði að líta upp úr Wall Street Journal og hitta fólk til að heyra slúðrið?

     
  • At April 16, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hættið nú að tengja allt við kynlíf!!! Forskaren er greinilega bara búin að lesa yfir sig....

     
  • At April 16, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    ...um kynlíf þá?!

     
  • At April 16, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Get upplýst ykkur um að Forska er hvorki búin að lesa yfir sig um kynlíf né nokkuð annað. Ég nefnilega fór uppí bókhlöðu um daginn og sé ég þá ekki hvar Forska situr sveitt og æst fyrir framan sjónvarpið, búin að tengja playstation 2 og að djöflast á fjarstýringunni með tunguna út á kinn. Lappirnar uppá borði og fullt af súkkulaðisnúðum í sófanum. Ég held nú að ef Grumpa ætlar að fara skella sér í stjórnmálin þá ætti hún að athuga þessi námlán.

     
  • At April 18, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Bíðið við - hver var að tala um kynlíf to begin with? Beint úr faðmlögum í hard core sex? Hvað varð um ástúð, faðmlög, eldheitar ástarvísur, kossar bakvið hlöðu og 3ja ára forleik eins og í denn?

     
  • At April 18, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Wow! Þrjú ár!!!! Er ekki einhver lostasprengja orðin eftir þrjú ár?

     
  • At April 18, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég veit það ekki með lostasprengjuna þar sem ég var ekki uppi á þeim tíma sem ungar stúlkur máttu ekki tæla unga drengi (sjúkkitt, annars HEFÐI ég verið í djúpum).

     
  • At April 18, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ó.. já gömlu góðu hlöðuböllin, þar sem saklausar augngotur urðu að ævilöngu hjónabandi

     
  • At April 23, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég er að spá í að leika "Hard to get" leikinn útí sveit og verða hin dulúðuga madonna with the tiny boobies....sem kann að kokka og tekur svo vel til. Kannski prinsinn á truntunni banki uppá!!

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home