Forskaren

Saturday, May 07, 2005

Loksins frjáls!

Stúdentinn loksins orðin frjáls kona og getur nú byrjað að eyða sumrinu á kaffihúsum og í sundlaugum bæjarins, ásamt því að lesa um endurreisnina og sænska tungumálaheimspeki að sjálfsögðu. Forskaren er byrjuð á Svenska språket; grundlig analysering, nummer tre...
Annars rankaði Forskaren við sér í morgun úti á engi í evuklæðunum einum saman með gras í munninnum og Þegar ég leit í kringum mig sá ég móður jörð á harðahlaupum í háleitri náttúrunni í kringum Norræna húsið. Annars er búið að skila öllum ritgerðum og svara öllum prófspurningum, þannig að núna er bara að fara að skipuleggja Eurovision party sem haldið verður heima hjá Forskaranum 21.maí. Það var ákveðið á stjórnarfundi bloggara núna klukkan 19.23. Og Þar sem Forskaren og Grumpa eru báðar miklar áhugakonur á grískum bókmenntum, grískri matargerð og að ógleymdum íðilfögrum grískum karlmönnum sem kunna að vitna í Hómer án þess að stama, og vita auk þess allt um Eros og Pan, þá ákváðu þær að skella sér í pílagrímsför til fyrirheitna landsins á næsta ári. Núna verður semsagt farið að æfa grískuna og helst þarf að læra að lesa Ódysseifskviðu aftur bak og áfram (á grísku) áður en lagt er af stað. Grumpa og Forskaren urðu reyndar svo glaðar af að tala um Pan og Eros í Grikklandi svona lengi að þær enduðu í hillunum í Mál og menning og fundu allskyns lesefni um hvernig eigi að tæla Grikkja á þremur dögum og hvernig á að segja ,,Eina kolkrabbasamloku með osti og skinku og engu majonesi, takk, og gætirðu svo sagt mér hvar hofið hans Pans er?"

3 Comments:

  • At May 08, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Velkomin aftur Forskare. Fannstu fötin þín þarna við Norræna húsið? Og ef Forskaren og Grumpu vantar einhvern til að koma með til Grikklands sem treystir sér til að keyra í þeirri "óökumenningu" þá hefur Monopoly reynsluna, hér upp á skeri er ökumenningin hámenning. Á meðan geta Forskaren og Grumpa lesið grísk ljóð og harmleiki og æft helstu trykkin við að tæla gríska karlmenn.

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Grískir karlmenn eru latir og meyrir sbr. loftlagskenningu Montesquius.

     
  • At May 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ef þetta er myndin af Pan þá skil ég vel að hann hafi aldrei gengið út.....Hann er brókarlaus og það er nú ekki hægt að segja að hann geti verið stoltur af því sem ætti að vera hulið....

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home