Tapað fundið!
Hér tilkynnist að hafin er leit Að Kokkálaða kokkinum sem fór upp í sveit Um afdrif hennar því miður engin veit En einhver sagði að hann hefði séð hana á beit Hoppandi úti í haga alveg eins og geit Syngjandi hástöfum ,,Pan is great!" Við skulum bara vona that it is not too late Og ef einhver hana sér kallið þá í hjálparsveit |
8 Comments:
At May 11, 2005 ,
Anonymous said...
Ef þetta er það besat sem Forskaren getur soðið saman eftir þriggja ára bókmenntafræðinám þá held ég að þessi íslenskudeild sé á algerum villigötum! Er Þorsteinn Eggertson kanski kennari? Maður sem getur snúið enskum texta svona yfir á íslensku eins og Þrjú tonn af sandi er reyndar snillingur
"Þrjú tonn af sandi
Andrés fær nóg
mótatimbur
heilan skóg"
En enski textinn er svona
"Return to sender
address unknown
no such number
no such phone"
At May 11, 2005 ,
Anonymous said...
Nú hættir Monopoly að leggja orð í belg, enda er hún ekki fyrir bundið mál, nema þegar verðlaun eru í boði en Monopoly seldi RÚV sitt fyrst og eina ljóð þegar hún var 9 ára gömul. Hér eru engin verðlaun í boði, svo ég held mig við hefðbundin texta.
At May 12, 2005 ,
Anonymous said...
Mér finnst þetta alveg ægilega flott ljóð, og heyriðið það! Og Grumpa, ef þetta jafnast ekki á við ljóðin hans Jónasar Hallgríms, ja, þá skal ég hundur heita...og ég er reyndar að safna í heila ljóðabók með ljóðum um Pan, geirfuglinn, leðurbuxur og Goethebeinið margfræga. Bíðiði bara þangað til þið heyrið Forska lesa upp ljóð á Súfistanum fyrir næstu jól....
At May 12, 2005 ,
Anonymous said...
Hér með er skorað á Grumpu að sjóða saman ljóð með rímorðum í átta línum!!!!!
At May 12, 2005 ,
Anonymous said...
Já, og Grumpa, hafðu það í hexametum og Alexandríuhætti takk, og gott ef þú mundir ljúka með einni Shakespeare sonnettu...
Forski veit sko alveg hvar ölið var keypt, eða skáldamjöðurinn réttara sagt. En það var í bókabúð Braga...
At May 13, 2005 ,
Anonymous said...
Þar sem ég er nú "Skagfirðingur skýr og hreinn /
skáld og listamaður" eins og segir í vísunni þá fer ég létt með að setja saman eitt ljóð. Ég hef ákveðið að hafa það í anda gömlu meistaranna sem allir voru manic depressive alkóhólistar með sífilis og heitir það
Hugsað í djúpið
Hér sit ég á bekk
og drekk
æ dýpra ég sekk
lukkan framhjá mér gekk.
I´m up to my neck
engar bætur ég fékk
því kerfið sveik mig og allt er að fara til fjandans
Jónas Hallgrímsson hvað!
At May 13, 2005 ,
Anonymous said...
Góður endirinn Grumpa. ÉG mæli með því að þú og Forskaren sækið báðar tvær um listamannalaun, þvílíkir hæfileikar eru hér á ferðinni. Kannski að þið getið líka sótt í sjóð sem styrkir konur á hjara veraldrar til atvinnusköpunar, og sjóð sem styrkir konur lengst upp í ballarhafi til atvinnusköpunar, svo er EB með sérstaka sjóði til svæða sem eru varla byggð. Monopoly sér hér merkilegt viðskiptatækifæri fyrir ykkur (sig)
At May 18, 2005 ,
Anonymous said...
Því þessi Leit?
Ég er nú bara uppí sveit,
og hver veit,
Kannski ég sé komin með deit??
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home