Forskaren

Friday, May 20, 2005

Eurovision og fleira

Hvað er málið með þennan Gísla Martein??? Finnst engum nema mér þessi maður vera algjörlega mesti loser í heimi. Ég ÞOLI EKKI ÞENNAN MANN!! Sko, ef ég einhvertíma rekst á hann niðri í bæ eða bara einhverstaðar (og mér er alveg sama þó það sé upp í sveit) þá ætla ég að kalla fúkyrði á eftir honum, eða eitthvað enn betra og gretta mig framan í hann og segja að hann líkist mest ofvöxnum átta ára krakka sem óverdósaði á rítalíni og sykri fyrir ca. 40 árum. Hann talar eins og hann hafi misst upp í sig helíumblöðru á stærð við loftbelg og svo talar hann bara, og þá meina ég BARA útfrá Íslandi. Það er eins og hann hafi aldrei heyrt um aðra menningu nema kannski þá í Svalbarða, Færeyjum og Vestmannaeyjum. Já, eins og lesendum er kannski orðið kunnugt um, þá er ég ekki mjög hrifin af þessum manni sem hrellir mig óhuggulega. Heyrði einhver í honum þegar hann var að lýsa Eurovision? Hvað er málið? Finnst einhverjum þetta virkilega flott eða krúttalegt? Er þetta ekki bara grín eins og með hann Herbert Guðmundsson hérna um árið? Ég trúi því bara ekki að einhverjum finnst þessi maður karlmannlegur eða að hann sé yfirleitt eitthvað fágaður. Ég er að hugsa um að fara af stað með undirskriftarsöfnun til þess að fá þennan mann af opinberum vettvangi og fá stjórnvöld til að læsa manninn inni í glerskáp í þjóðminjasafninu undir nafninu: Asnalegasti Íslendingurinn fyrr og síðar.
Svo ég haldi nú áfram að kvarta, þá er ég alveg búin að fá nóg af verðlaginu hérna á þessu landi. Kartafla er dýrari hérna á Íslandi heldur en krullujárn í Bandaríkjunum. Ef við erum svona frjáls og lýðræðisleg hérna, af hverju borgum við toll af sendingargjaldi? Hvernig er það hægt eiginlega? Nei, enginn kemst upp með það nema íslensk stjórnvöld. Það skiptir sér enginn af Íslandi og við getum þess vegna haldið uppi einhverjum Talibanareglum hérna og enginn tekur eftir því í hinum eðlilega heimi (sem er notabene Evrópa og USA). Ég er búin að fá alveg nóg af þessu einveldi hérna. Baugur á allt, fréttirnar, tískuna, sjónvarpið, matinn, tónlistina, listina og ég veit ekki hvað meira. Bráðum kaupa þeir sér örugglega háskóla svo að hægt sé að læra Baugssálfræði, stjörnubaugsfræði, Matarfræði, svindlspeki, Fréttabaugsfræði ofl. Svo er ekkert til hérna. Það er til ein tegund af lauk, ein tegund af svepp, ein tegund af bók og ein af bjór og svo ef maður vogar sér að finna upp á einhverju og reyna að bjarga sér með því að panta af netinu, þá leggja þeir 39373.- á allt. Ef ég kaupi mér litla minningarbók sem kostar 2 dollara, þá kostar tollurinn af því 39372.- og það er búið að brjóta næluna svona til að athuga hvort maður er nokkuð að smygla einhverju sem gæti verið bannað. Það er allt bannað hérna á Íslandi, nema lýsi og hákarl. Allt virðist vera svo hættulegt fyrir litlu Íslendingana. En má ég þá benda á eitt, Gísli Marteinn er hættulegur heilsu minni. Ég ætla að hringja í DV og segja þeim hvernig kerfið sveik mig.

13 Comments:

  • At May 20, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Við erum nú eitt skattpýndasta ríki í heimi (og þá er ég ekki að tala um tekjuskatt sem er sumsstaðar hærri heldur ALLT hitt) jafnvel þó stjórnmálaflokkur sem kennir sig við frjálsræði og noti slagorð eins og Báknið burt hafi ráðið öllu sem hann hefur viljað ráða í meira en 10 ár. Og það er reyndar bara yfirgangi í Evrópusambandinu að þakka að það fæst yfir höfuð eitthvað annað hérna en Ljóma smjörlíki, Ora grænar baunir og Hvannarótabrennivín
    Og til að Forskaren geti nú tekið gleði sína á ný þá er Gísli Marteinn að hætta í sjónvarpi og ætlar að demba sér út í pólitíkina fyrir ofangrindan stjórnmálaflokk (og kemur þar vel á vondan segi ég)

     
  • At May 20, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hafið þið tvær Grumpa og Forskari aldrei heyrt minnst á einelti!!!

     
  • At May 20, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Þegar við tjáum okkur um Gísla Martein þá er það bara réttmæt og uppbyggileg gagnrýni en alls ekki einelti. Hvernig dettur Móður Jörð í hug að við séum svo óforskammaðar?!

     
  • At May 20, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég var á móti einelti áður en ég sá og heyrði í Gísla Marteini....

     
  • At May 20, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Er innilega sammála Forska með Gísla M. maðurinn er hreinn dauði að hlusta eða horfa á. Ég meina maður bara fer að gráta. Eða þá að maður fyllist einhverju morðæði. Ég er viss um að megnið af raðmorðingjum heimsins hafa verið að hugsa um Gísla Martein þegar þeir ákváðu að höggva niður nokkrar manneskjur.

     
  • At May 20, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ástæðan fyrir því að ég flutti aftur úr sveitinni var einmitt til að geta kosið GEGN ákv. manni sem ég vil ekki nefna.

     
  • At May 20, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Er Tensai san e.t.v. búin að horfa á of margar Tarantino myndir...

     
  • At May 21, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Gísli Marteinn er ótrúlegt fyrirbrigði. Það er eins og hann hafi gleypt herðatré þegar hann fæddist og það er þar enn. Hvernig er hægt að vera svona leiðinlegur? Spyr sá sem ekki veit. Já og að maður skuli þurfa borga toll af sendingarkostnaði! Það segir allt sem segja þarf um tollinn á Íslandi.

     
  • At May 23, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég veit um tvær tegundir af lauk, venjulegur laukur og hvítlaukur.....jú og rauðlaukur...en það er bara til í stærri verlsunum. Er sammála því að leggja Gísla Martröð í einelti, hann hreinlega biður um það!!! Það fer að blæða úr eyrunum á mér ef ég hlusta á blaðrið í honum!!!

     
  • At May 25, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Er Forskaren svo gagntekin af andúð á Gísla M. að hún er haldin ritstíflu af verstu gerð?

     
  • At May 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hvar er Forskaren? Ætli rannsóknareineltisrétturinn hafi tekið Forska í yfirheyrslu og sé eitthvað að þjarma að málfrelsinu? Hmm... ég mæli þá með að við sendum Forska ostaköku með fangelsisflóttafjöl falinni í gumsinu.

     
  • At May 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Þú segir nokk Tensai San. Kannski að Gísli M. hafi sent vin sinn og félaga Hannes H. til að tala um fyrir Forskare, en Forskaren hefur snúið á Hannes í rökræðu svo nú sitja þau sveitt í Kópavoginum og rökræða fram og til baka um tilgang lífsins.

     
  • At May 31, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Nema Forskaren sé hætt að nenna þessum endalausu blankheitum sem fylgir því að vera fátækur stúdent, ætli sér að verða rík fljótt og sé því að reyna að versla banka eða tryggingafélag og allt auðvitað fengið að láni hjá Landsbankanum. Til þess þarf hún að ganga í Sjálfgræðisflokkinn og er því núna að mingla við Hannes Hólmstein og tilvonandi foringja flokksins, Gísla Martein. Við hin erum bara kommapakk sem eigum ekki einu sinni útgerðarfélag og því ekkert við okkur að tala

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home