Forskaren

Friday, June 10, 2005

Beckham hjónin og Þengill hinn góði

Hver man ekki eftir Ísfólkinu? Muniði ekki stelpur eftir Þengli hinum góða og honum Heiki? Hvað var uppáhaldspersónan ykkar? Mér fannst skondið nokk hann þorgeir alltaf svo flottur. Æi, þessi sem átti að vera hinn eini sanni en var síðan drepin á einhvern klaufalegan hátt held ég í 7. eða 9. bók. Hvað svosem maður man þetta í detail? Ég tók reyndar fyrstu bókina að láni í bókasafninu um daginn og las hana í einum rykk. Alltaf jafn spennt yfir því hvort þau Silja og Þengill myndu nú ekki ná saman í lokin og hvenær Þengill færi nú eiginlega að fækka fötum og urra eins og úlfur...Og hversu mörg börn haldiði að hafi eiginlega verið skírð Sunna og Líf og Dagur og Heikir og Gabríella og ég veit ekki hvað, eftir að þessar bækur komu út á sínum tíma. Það er Ísfólkskynslóðin svokölluð. Grumpa hefði ábyggilega verið skírð Grumpenhofen hin illa og Monopoly verið skírð Greifynjan af Montgomery Newsweek, Móðir Jörð fengið nafnið Móður Líf, Tensai San kölluð Sunna hin fagurtennta og gott ef Hammer hefði ekki verið skírður hinn eini sanni Heikir. Forskaren hefði vonandi verið skírð Viktoría hin Dularfulla og Kokksi verið Kapteinn Kokk.
En vissuð þið annars að Beckham hjónin eru að spóka sig í Reykjavíkinni núna í þessum töluðu orðum? En hverjum langar svosem að sjá Beckham? Þetta er álíka merkilegt og að Geiri Sæm mundi birtast skyndilega á Ruby Tuesday´s. Eða eitthvað þannig.


4 Comments:

  • At June 10, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég verð nú að viðurkenna að ég hef aldrei lesið staf í þessum Ísfólksbókum, ekki frekar en ég hef séð Gullfoss og Geysi eða komið á Þingvelli eða þá að ég hafi áhuga á að sjá þennan smámælta Beckham skápahomma og herðatréð sem hann hengslast með. En ég get lofað því að ég verð downtown allan sólarhringinn í hvaða veðri sem er þegar ofurtöffararnir í Wig Wam mæta á skerið og trylla lýðinn á Nasa þann 2. júlí! Ég er farin að sjá eftir því að hafa aldrei átt spandexbuxur eins og Monopoly

     
  • At June 11, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Las Ísfólkið af svo miklum móð að sumir héldu að ég hefði snúist til Ísfólkstrúar. Þengill var minn maður, var ekki Þengill II líka voða, voða kjútí, kjútí? Kannski ekki hægt að tala um kjútí, kjútí um Þengil? Hvað með kjútí, kjútí Beckham? Það gengur alveg. En voða, voða kjútí, kjútí Wig Wam? Krúsí, krúsí kannski betra?

     
  • At June 11, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hvað kom fyrir Monopoly? Ætli það hafi verið kjútí samkeppni í Viðskiptablaðinu?
    En talandi um Ísfólkið, þá var það sko Kolgrímur sem drap Þorgeir með hníf í einhverju stríði, þóttist vera náæta eða eitthvað svoleiðis og laumaðist upp hól sem Þorgeir sat á. Kannski sat hann þar að sumbli. Annars var Tamlin alltaf flottastur, hann var næturdjöfull, algjör martröð. Eða Marco, hann átti sjálfan Lúcifer fyrir pabba. Getur maður verið eitthvað meira cool?

     
  • At June 14, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Heyrðu svo var þetta ekki Beckham eftir allt saman heldur bara einhver lookalike sem hefur fengið fullt af fríu áfengi og allskonar dóti út á trúgirni mörlandans, svo maður tali nú ekki um bííííb... Hann á sjálfsagt líka að vera kominn með kærustu í Keflavík:)

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home