Forskaren

Friday, June 03, 2005

Sól og íslenskt sumar

Jæja, hlunkast maður loksins niður við bloggið og tjáir sig. Nei, ég er ekki farin að mingla við Hannes Hólmstein eða sjálfgræðgisflokkinn. Ég hef nú bara verið eitthvað tóm í hausnum og ekki dottið neitt smellið í hug að segja. Núna er hins vegar það að frétta að Forskaren þykist orðin enn þroskaðari en ella þar sem ég átti nú afmæli í vikunni og hélt upp á það með pompi og prakt í gærkvöldi. Og viti menn! Hvað haldiði eiginlega að ég hafi fengið í afmælisgjöf frá Hammer og Tensai San? Safndisk með Duran Duran og engum öðrum. Og ekki nóg með að fá safngeisladisk, heldur var þetta líka DVD diskur ,með öllum þeirra bestu myndböndum. Þar er að finna Planet Earth og Wild Boys svo fátt eitt sé nefnt. DVD diskinum var að sjálfsögðu skellt í og þar sem ég er nú eightiesbarn frá helvíti þá var mikil nostalgía fólgin í að sjá pörupiltana dilla sér í dúkkudans við skemmtarann hans Nick Rhodes (en ég tek það skýrt fram að ég var heavy rocker á mínum unglings- sokkabandsárum!) En hver man svosem ekki eftir Duran Duran? Simon Le Bon fékk til dæmis á heilann að hann líktist Mel Gibson og fór að klæða sig í leðurjakka (með herðapúðum) og hætti að raka sig í þrjár vikur til að fá skegghýjung. Gott ef drengnum tókst ekki bara að vera svolítið huggulegur í Wild Boys myndbandinu. Ég veit að Kokki slefaði yfir myndbandinu í laumi. Og svo kom í ljós að í Tensai San leyndist örlítil diskódúkka. Hún þvertók fyrir að hafa þótt Le Bon litli sætur í pokabuxunum og með pottaleppagreiðsluna í Planet Earth en hún kom upp um sig og roðnaði og flissaði á meðan húsmóðirin úr Vogunum viðurkenndi fúslega að fíla þetta allt saman enn í botn og gott ef hún tók ekki nokkur dansspor til að leggja áherslu á mál sitt, unglingnum hennar til mikillar skelfingar að sjálfsögðu. Ekki veit ég hvað kemur í ljós ef Grumpa og Monopoly sjá piltana með skemmtarann, en það væri áhugvert hvort ekki leynist svona eins og eitt bælt Duran Duran gen í stúlkunum.....


2 Comments:

  • At June 03, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Það er ekki mikið af Duran Duran í Monopoly, en nóg af glys 70's diskói og rokki. Hún hugsar hlýlega til þeirra tíma sem hún sat upp í rúminu sínu alla sunnudaga og hlustaði á American top 40, með djús og bananabrauð.

     
  • At June 03, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég meina Wild boys...híhíhíhí... og Simon Le Bon flissifliss...híhíhí

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home