Í miðnætursólinni
Núna þegar sólin gerir ekkert annað en að skína inn um gluggann hjá mér og klukkan er að nálgast miðnætti, Þá er náttúrulega ekkert annað hægt að gera en að setjast niður við tölvuna og blogga. En má ég líka spyrja, hvaða vitleysa er þetta að við eyjaskeggjar verðum að taka út allar sólarstundirnar á árinu í einu og það á átta vikum?! Verð ég til dæmis núna að standa úti í sumarkuldanum hvenær sem færi gefst til að reyna fá eitthvað útfjólublátt D vítamín í líkamann?? Þetta er eitt súrrealískasta land á jörðinni held ég. Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt hérna!! Ekki landið, veðrið, verðið né fólkið. meira að segja eru stórskrítin dýr hérna á eyjunni. hvað er til dæmis örn og Snjóugl að gera hérna??? Ég bara spyr? Af hverju finnast kanínur í öskjuhlíðinni, ígúanaeðlur úti á granda og fólk á Bíldudal? Það er ekkert eðlilegt við þessa blessuðu eyju svei mér þá. En að allt öðru. þar sem ég er nú víst skelfileg piparjónka með tvo svarta ketti, og samkvæmt ónefndum, hræði ég víst öll börnin í hverfinu, en ég ákvað að fara út í videoleigu og ná mér í mynd til að horfa á. Ég endaði með að taka mynd sem heitir Alfie. Mig hefur ekkert langað til að sjá þessa mynd hingað til, því að hverjum langar að sjá kvikmynd um lúða sem hórast út um allan bæ? En svo hugsaði ég með mér; það getur nú aldrei verið slæmt að horfa á hann Jude Law greyið. En má ég bara segja eitt hér og nú. Maðurinn er ÓTRÚLEGA fallegur. Það er enginn sem er fallegri held ég bara svei mér þá. Hamanahamanhamana....Og nú skora ég á ykkur bloggara að reyna að benda á fallegri mann...Og ef einhverjum leiðist og langar að fá aftur trú á að hin fullkomna ferðataska sé til. Þá bendi ég á að horfa á Alfie. Manni langar í Nappeferðalag að hætti BKBK þegar maður sér þennan himneska mann. ![]() |
7 Comments:
At June 04, 2005 ,
Anonymous said...
Jú jú þessi Jud Law er svo sem alveg ágætur en kemst þó ekki nálægt Johnny Depp í huggulegheitum. Og hverjum datt í hug að kalla einhverja rómantíska gamanmynd (eða hvað svo sem þessi mynd fjallar um) Alfie? Fólki sem er orðið eldra en 12 ára á alltaf eftir að detta í hug litla, loðna, geimveran með stóra nefið sem vildi helst af öllu éta ketti, hann Alf og það er eins langt frá einhverju sexappíl og hægt er að hugsa sér
At June 05, 2005 ,
Anonymous said...
Sko, það er hægt að kalla Jude Law öllum hugsanlegum nöfnum og samt mun hann aldrei glata fegurð sinni. Hann gæti verið kallaður charles Bronson, Edward Sissorhands (hvaða bull var það nú?Johnny Depp hvað??) eða Macdonalds trúðurinn.Hann er alltaf jafn fallegur
At June 05, 2005 ,
Anonymous said...
Jude Law er bara glæsilegur, ekkert annað. Meira að segja á mynd sem er tekin með súperdúpertrúper linsu einhvers ljósmyndara í London, kappinn blindfullur í leigubíl á leið heim eftir velheppnað kvöld og 18 kokteila. Hreint út sagt nammi, namm.
At June 06, 2005 ,
Anonymous said...
Tensai san finnst nú engin jafnast á við Hammer og hefur enga þörf á því að fara í nappe-ferð. En þó verður tryggð haldin við BKBK og ég mun "tag along" og passa upp á að aðrir meðlimir fari sér ekki að voða ef nappe leiðangur er í bígerð. Sérstaklega hef ég grun um að það þurfi að fylgjast með Forskanum eftir að sendingin frá Victoria's Secret kom í hús
At June 06, 2005 ,
Anonymous said...
Bíddu nú við, er fátæki stúdentinn farin að panta upp úr Victoria's Secret? Var þá kálið og hrökkbrauðið á matseðlinum í allan vetur bara af því að Foskaren var að safna fyrir undirfötum?
At June 07, 2005 ,
Anonymous said...
Er mikið sammála Forskaren og satt að segja hefur frést af undirritaðri að sniglast um í hverfinu hans. Eini gallinn við þennan mann er ljóshærða viðhengið!
At June 08, 2005 ,
Anonymous said...
Londonía gæti t.d beðið ljóshærða viðhengið að skjótast og finna rósótta árabátamálningu eða vinstrihandargaffal þannig að hún sæist ekki í laaangan tíma og reynt að tæla hinn snoppufríða Alf á meðan
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home