Forskaren

Sunday, July 10, 2005

Sunday afternoon

Innflutningspartíið þeirra Hammer og Tensai San tókst nú bara með eindæmum vel. Allir voru voðalega glaðir og margar skemmtilegar sögur rifjaðar upp svona eins og eplasnafskvöldið góða (að sjálfsögðu) og mikið var talað um köngulær og nýi ástarguðinn hans Forska vissi nú töluvert um slíkan ófögnuð þar sem hann bjó í Ástralíu í den. Grumpenhofen lék líka á alls oddi eins og venjulega og hélt ræðu um ást sína á hillbillies í Ameríku. Ekki veit hvort það var til þess að reyna að plata Eros minn eitthvað eða hvað vakti eiginlega fyrir kellu. Hann Eros minn og Hammer enduðu svo á kvikmyndanördatrúnó og komu upp um sig með því að fara að tala um uppáhaldskvikmyndirnar sínar sem voru til dæmis Blackula(???) Jugde Dredd og gott ef að Bert and Ernie komu ekki til tals svei mér þá. Má ég þá frekar biðja um Miami Vice og Don Johnson í mokkasíunum sínum. Annars væri ég svosem ekkert á móti því að fá svona eins og eitt videokvöld hjá Hammer fljótlega. Það væri gaman að horfa á Magnum seríu eitt og tvö (það mundi kannski taka tvo daga reyndar) og svo kannski einn Colombo þátt og skella svo einum Macloud þætti í. Þið munið, kallinn með kúrekahattinn og yfirvaraskeggið. Forski var svo hrifin af honum þegar hún var níu og hálfsárs. En allavega. Nú styttist í sveitarferðina ógurlegu sem nokkrir aðilar ætla að fara í. Það er nú kannski ráðlegt að undirbúa sig eitthvað fyrir þessa ævintýraför. Eins og til dæmis að fara í húsdýragarðinn og fá að klappa gæsum og kindum.
Jæja, best að fara og reyna að vinna eitthvað.

2 Comments:

  • At July 11, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    það var bara einskær kurteisi af minni hálfu og tillitssemi við Forska að ég fór ekki að segja hillbillys eða redneck brandara eins og t.d
    Question: How do you recognize a Redneck?

    Answer: You look up his family tree and most of them are still in it!!
    eða
    You Might Be A Redneck If . . .
    ...you think a Volvo is part of a woman’s anatomy
    ...you think paprika is a Third World country
    ...you’ve been married three times and still have the same in-laws
    ...your old toilet now serves as a flower pot in your front yard

     
  • At July 11, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég held að Grumpa hafi verið Redneck í fyrralífi og hafi haldið við hillbillyið í næsta hjólhýsi.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home