Bræðurnir Ormsson og fleira
Jú, það er mikið rétt sem Grumpa segir á bloggsíðunum þennan morgun. Núna eru Forskaren og Kokksi orðnar yfirlýstir Duran Duran aðdáendur. Núna er sko ekkert verið að fara með eitt né neitt í felur, heldur bara komið út úr skápnum eins og maður er klæddur (nota bene í herðapúða og neongrifflur). Simon Le Bon er nú bara maður mjög myndarlegur og John Taylor ekki af verri endanum heldur. svo þegar þeir tóku Save a Prayer þá ætlaði allt gjörsamlega að rifna af gleði og hamingjutárum. Kveikjararnir voru að sjálfsögðu hátt á lofti og allir sungu með í gegnum tárin. Kokksi var næstum því fallin í öngvit af gleði og öðrum æsingi og þurfti að leggjast á dýnu í lokin til að jafna sig. Geri aðrir betur en þetta...
Jú, svo brá maður sér auðvitað í betri skóna á laugardagskvöldinu og fór að sjá Wig Wam, sem er early nineties grúppa dauðans og allir kallarnir komnir hátt á fimmtugsaldurinn. Þeim er þó alveg sama og slefuðu upp í saklausar meyjar sem voru hálf meðvitundarlausar af hrifningu. Forski fór að sjálfsögðu með nýja prinsinum en eitthvað áttum við erfitt með að vera rómó með Michael Bolton undirspili því að þegar við pöntuðum vínið og rósirnar á barnum á Gauknum, þá þurfti barþjónninn að hlaupa út á Vínbarinn held ég til að ná í ódýrt hvítvín og tvö vínglös. Við gengum svo glöð með blik í augum um staðin en ekki fór betur en svo að allir gengu á manninn minn og það fór eiginlega meira rauðvín á skyrtuna hans heldur en ofan í hann. Ég slapp sem betur fer við öll vínslys enda í þessum nýja fína topp.
Ég segi nú samt, svona til að svara Grumpu, að þá eru nú Duran Duran meiri karlmenni svona fljótt á litið. Þeir ganga í hvítum jökkum, með herðapúða og svo eru þeir líka með sítt að aftan og kunna að hoppa og snúa sér í marga hringi. Geri aðrir betur!

9 Comments:
At July 04, 2005 ,
Anonymous said...
Já hún getur verið makalaus, nostalgían. Þegar 80´s sítt að aftan poppið er farið að verða eitt mesta stórvirki tónlistarsögunnar og Simon La Bon, sem lítur út eins og krumpaður bolabítur í framan farinn að heilla konur upp úr skónum sem ættu að vita betur. Ég minnist þess t.d að hafa fengið SMS frá Kokksa þetta umrædda kvöld (eða öllu heldur kl. 1:30 um nóttina, þá hefur hún verið að ranka úr yfirliðinu) eitthvað á þá leið að hún ætlaði að giftast Simon La Bon. Já mér þykir sumir vera fljótir að gleyma litla stúfnum honum Angusi.
At July 05, 2005 ,
Anonymous said...
Nei bíddu nú hæg frú Grumpenhofen,
Ekki skal kalla meistara Angus stúf eða öðrum niðrandi nöfnum án þess að taka afleiðingunum. Það jafnast náttúrulega engin á við ACDC og gítarsnillinginn góða. Forski segir enn söguna af því þegar hún fór á tónleika með þeim þ. 22.mars árið 1991 og sá goðin í fyrsta sinn og mun segja söguna lengi enn. Öll barnabörnin og barnabarnabarnabarnabörnin hans Forska muna heyra söguna af kvöldinu góða og hananú...
At July 06, 2005 ,
Anonymous said...
Simon Le Bon er bara feitur og miðaldra skallapoppari sem var búin að sukka og spreða mestan partinn af aurunum sínum í brennivín og ljóskur og var tilneyddur til að fara aftur að syngja. Monopoly vill annað hvort menn sem eiga virkilega mikið af peningum og/eða eru í valdastöðum. Því hefur Monopoly litið stubbalubbinn hann Angus alveg nýju auga því hann er víst á leiðinni á þing.
Monopoly er annars mjög vinveitt sam-norrænum sam-vistum og vill endilega auka sam-kennd við norræna menn, en Viggo Mortensen er víst á landinu.
At July 06, 2005 ,
Anonymous said...
...og Kim Larsen á leiðinni
At July 07, 2005 ,
Anonymous said...
Jæja stelpur mínar. Smekkurinn á karlmönnum fer greinilega eitthvað versnandi með árunum sé ég. Annars frétti ég líka að Thomas Ledin væri í bóndabæjargleði undir eyjafjöllum og að Olsen bræður ætluðu að reyna að standa upp úr hjólastólunum og syngja á Fjörukránni....
At July 08, 2005 ,
Anonymous said...
Maður rétt skreppur úr landi og hvað gerist...? Tussurokkurum er skipt út fyrir diskógæja dauðans og allt í einu er piparjónkulíf forskarans í stórhættu. Hvað verður nú um plönin um að leggjast í helgan stein með Grumpu á Ítalíu???
At July 08, 2005 ,
Anonymous said...
ekki anonymous heldur móðir jörð!
At July 08, 2005 ,
Anonymous said...
planið er að gerast mormóni sem fílar diskó svo að ég geti gifst bæði ástarguðinum mínum og henni Grumpu. Annars þyrftum við ábyggilega að fara til San Francisco til þess hmm...veit ekki. Já, mikið rétt. Forskaren varð diskófrík dauðans 20 árum of seint.
At July 08, 2005 ,
Anonymous said...
Monopoly hefur nú aldrei heyrt aðra eins vitleysu eins og hún heyrði um daginn, þ.e. að Forskaren hyggji á nám í senjórítu-fræðum (sem ku taka einhver misseri í virtum senjórítuskóla í R.vík). Hún ku ekki munu hafa tíma til að fara meira út fyrr en við formlega útskrift? Og eitt af inntökuskilyrðunum hafi verið að brenna allar gamlar brýr að baki sér, og því hafi hún brennt allar AC/DC plöturnar, hafi farið með fjórar afturbeygðar Senjórítubænir og lofað að brenna myndina af stubbalubbalingnum honum Angus. Er eitthvað til í þessu?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home