Sweet Home Alabama
Það var þó aldrei að maður endaði í sumarfríi í Alabama!! Hvað er svosem í Alabama? Annað en hillbillies, fordómafullt fólk og fangar í Montgomery? Sumir Bandaríkjamenn segja að Alabama ríki sé ekki hluti af Ameríku. því að allt er svo gamaldags þar. En maður segir ekki nei við ferð í sólina og smá bluegrass music og svona fleira. það er aldrei að vita að maður uppgötvi eitthvað nýtt í hillbillie ríkinu. Núna ætla ég sko að fara með sumarkjólana mína og neita alfarið að fara úr hvíta fína kjólnum mínum og þurfa að klæðast einhverjum túrsistagalla eins og ég var skikkuð að gera seinast þegar ég var í Alabama. Nei og aftur nei. Ég ætla bara víst að fara á Macdonalds og fá mér eitraðan hamborgara með öllu í sumardressinu. Lögregluþjónarnir geta bara starað með donutsinn í munninum fyrir mér. Og hananú. Annars er náttúrulega svoliltið gaman að koma í Suðurríkin því að þar sér maður svo margt sem maður hefur aldrei séð áður eða þá bara í bíómyndunum. Þar sér maður alvöru kúreka borða á alvöru dinerum og þeir eru meira að segja að borða egg og beikon og eitthvað annað sem maður veit ekki hvað er. Maður fer á Dunkin Donuts og fær sér glænýjan kleinuhring sem kemur fram í búðina á litlu færibandi og svo löðrandi í fitu að kalóríufjöldinn nægir fyrir heila viku eða meir. Allt í Alabama er lörandi í fitu. Ég veit reyndar ekki hvort karlmennirnir eru smurðir með ólífuolíu eins og grikkirnir í den en ég ætla reyndar ekkert að reyna að komast að því heldur. Ég er ekki mikið spennt fyrir því. En allavega, Sweet home Alabama. Annars er Forski búin að vera ansi villt á því seinustu dagana. Búin að drekka hvítvínskvótann fyrir allt sumarið og gott ef að þetta endaði bara ekki í allsherjar spurdrykkju þarna seinasta laugardag. Svo villt var þetta orðið. En annars vona ég að Monopoly fari sér ekki að voða á megadjamminu á ömmukaffi í kvöld. Það er aldrei að vita að hún drekki yfir sig af kakói með rjóma og endi bara á trúnó stelpan svei mér þá. Londonía passar vonandi upp á að hún drekki nægilega mikið te fyrir svefninn og að hún komist heim fyrir miðnætti. |
7 Comments:
At June 18, 2005 ,
Anonymous said...
Er það ekki í Alabama þar sem fólk heldur að Gorbatjof sé frægur ballettdansar, Búlgaría sé átröskunarsjúkdómur, að það sé töluð Kanadíska í Kanada og Ástralía sé borg í Texas?
At June 19, 2005 ,
Anonymous said...
Monopoly tók hálfa Spur, (ó mæ god), fór á tvo bari (ó MÆ GOD) og var ekki komin heim um miðnætti (Ó MÆÆ GOD). Enda er hún enn að jafna sig, þrem dögum seinna.
Mér finnst nú Forskaren verði að fara í sumarkjólinn og háu hælana í Alabama. Og ef löggurnar missa dónutinn ofan á skóna sína, þá það. En spurt er: Hvað ef einhver frumbyggi frá Súdra Kúdra kæmi hingað og hann væri vanur að ganga um á sprellanum einum fata á Súdra Kúdra, hvað þá? Ég myndi alla vega ekki banna honum það :-)
At June 21, 2005 ,
Anonymous said...
Leitt að heyra að Forski sé búin með hvítvínskvótann sinn, við Hammer vorum nefnilega að taka upp úr kössum og pinklum og grófum okkur niður á tvær heilar hvítvín, eina rauðvín og fullt af örðu sulli sem heitir sumt svo undarlegum nöfnum að varla er hægt að bera það fram kinnroðalaust.
Okkur fannst þetta svo skemmtilegt að við kláruðum úr heilli flösku og ekki varð meira tekið upp úr kössum og raðað í hillur þann daginn. Hlýtur að hafa verið Spur sem við drukkum...
At June 21, 2005 ,
Anonymous said...
Af fenginni reynslu lumar Hammer á ýmsum mjög svo dularfullum drykkjum sem hafa hin undarlegustu áhrif á fólk þó þeirra sé einungis neitt í fingurbjargavís...
At June 24, 2005 ,
Anonymous said...
Love, love, love,
Love, love, love,
Love is every where,
Love, love, love.
Eina sem manni dettur í hug þegar maður kíkir á blogg Forskarens ;-)
At June 26, 2005 ,
Anonymous said...
Tapað fundið: Tapast hefur Forskaren ritglaði. Hefur ekki sést eða heyrst til Forskaren síðan í matarboði hjá Monopoly fyrir 10 dögum síðan, þeir sem kynnu að hafa einhverjar upplýsingar um háttalag Forskaren eru vinsamlegast beðnir um að all the dirty details STRAX.
At June 27, 2005 ,
Anonymous said...
Frést hefur að Forskaren sé í spænskukennslu og hafi þurft að sækja aukatíma upp á síðkastið og hafi því lítinn tíma fyrir svona skvaldur. Og eins og allir vita þá tekur Forskaren allt nám mjööööög alvarlega
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home