Forskaren

Tuesday, July 26, 2005

Komin aftur

Þá er maður loksins búin að jafna sig aðeins á sjokkinu og rómantíkinni í júní og júlímánuði. Ekki átti ég nú von á svona rosalegu sumri eins og raunin varð. Ég man það bara að á kvöldi þann 11. júní síðastliðinn ákvað ég skyndilega að fara út í góða veðrið og fá mér tvo bjóra, og svo veit ég ekki fyrr en ég er komin í dramasamband dauðans þar sem J.R. og Cliff Barnes eru bara að leika sér í sandkassa í samanburði. Hvað gerðist eiginlega? Ég bara spyr og einhver hefur svör handa mér þá má sá hinn sami gjarnan senda mér póst.
Annars fór ég á War of the Worlds um daginn. Alveg rosalega góð mynd hreint út sagt. Mér fannst hún mjög spennandi og góður leikur í henni. Ég mæli með henni og þó svo að allir fíli ekki Tom Cruise að þá er hann barasta fínn í þessari mynd.
Jæja, hádegistmaturinn búin og best að koma sér upp úr stólnum og halda áfram að lifa þessu dramatíska lífi. Það er allavega ekki eins og ég hafi ekki nógu mikið til að skrifa um á næstunni....
Það er aldrei að vita að meistaraverkið fæðist kannski úr þessu öllu saman.

7 Comments:

  • At July 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hva...!!!??? Er komið eitthvað babb í bátinn?? Hvernig er þetta þá með giftinguna? Þarf ég að afpanta hvíta brúðarmeyjarkjólinn með blúndunum og perlubróderingunum sem ég var búin að panta??!!!

     
  • At July 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Jú, ætli maður þurfi ekki að endursenda 6 hæða kransa/marsípantertuna, kórinn og allar blómaskreytingarnar. Ég er hins vegar að spá í að halda brúðarkjólnum sem ég tók lán fyrir og vera í honum á tyllidögum.

     
  • At July 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Gott hjá þér að eiga kjólinn. Enda hver segir að konur þurfi endilega að gifta sig til að fá að vera í prinsessukjól?! Og Grumpa mín haltu bara brúðarmeyjakjólnum. Það yrði algjörlega hápunktur lífs míns að sjá þig í þeim kjól!!!!!!

     
  • At July 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Pant líka sjá Grumpu í prinsessukjól.

     
  • At July 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég er sko "Anonymous" Gleymdi bara að skrifa nafnið mitt áðan...

     
  • At July 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ef ég man rétt þá ætlaði Tensai san líka að vera brúðarmey í samskonar kjól...

     
  • At July 28, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    ÉG!!! Í tertublúndukjól!!!! Nei nei hvaða della, það voru Monopoly, Móðir Jörð og Forskaren sem ætluðu að gera það að ógleymdri Grumpu sjálfri.
    Já já, ég ætlaði sko að vera í þröngum rauðum spandexbrókum með keðjum og göddum og í rifnum Manson bol og með spæjarahatt og gulan klút og í þykkbotna Animeskóm.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home