Að vinna á laugardegi
Jæja, enn einu sinni í vinnunni. Ég er bara alltaf vinnandi svei mér þá. Og það er ekki eins og ég sé að græða einhvern pening á því að vinna hérna því að ég sé alltaf svo mikið spennandi á útsölunni og enda með að eyða öllum peningunum sem ég er að vinna mér inn. Ég er nefnilega með svo miklar áhyggjur af því að drepast fljótt og þurfa að borga morðfjár í jarðarfjör.... þannig að ég er alltaf að kaupa mér eitthvað megrandi og fegrandi. Kannski ég lifi eitthvað lengur ef ég lít rosalega vel út alltaf....hmmm.
Annars er Forski enn í sæluvímu eftir að hafa loksins fundið hann Eros sinn og nú er það bara næst á dagskrá að finna sér íbúð og brúðarkjól, barnabílstól og uppskrift af marens.
Annars er Forski enn í sæluvímu eftir að hafa loksins fundið hann Eros sinn og nú er það bara næst á dagskrá að finna sér íbúð og brúðarkjól, barnabílstól og uppskrift af marens.
3 Comments:
At July 17, 2005 ,
Anonymous said...
Noh! Bara brúðarkjóll og læti? Má ég vera brúðarmeyja með blóm og í fínum kjól? Lofa að tala enga japönsku og vera ósköp stillt og prúð, engan Tarantino munnsöfnuð eða haga mér eins og í Hong Kong Kung Fu mynd frá 70's. Ég gæti jafnvel haldið vel útfærða sturtusöngstónleika í kirkjunni þegar presturinn er búin að segja eitthvað sætt. Sko sko...
At July 17, 2005 ,
Anonymous said...
Ég líka, ég líka vera brúðarmeyja í bleikum marenskjól í asnalegum skóm og með uppsett hár. Ég og Tensai San tækjum okkur súperdúber vel út :-)
At July 17, 2005 ,
Anonymous said...
Það er alveg óþarfi að tapa sér í gleðinni. Það þarf að hugsa aðeins lengra fram í tímann. Forski gæti t.d bara endað sem þreytt húsmóðir í Grafarvoginum með þrjá öskrandi krakka, pirraðann kall sem drekkur bara bjór og horfir á fótbolta með vinunum úti í bílskúr og keyrandi um á Volvo station. Farin að ganga í rósóttum ermalausum kjól og flatbotna skóm, með appelsínuhúð, magaslit og grindargliðnun og komin með stórann rass af öllu marensátinu...
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home