Kerlingabækur
Vitiði hverju ég er búin að komast að? Að konur glápa miklu meira á mann heldur en mennirnir gera. Sko málið er þannig að ég er oft í svörtu stuttu pilsi í vinnunni, því að maður verður að vera fínn í vinnunni þið skiljið. Og það sem ég hef tekið eftir er að þegar ég labba í sakleysi mínu út í Smáralind í matartímanum mínum, Þá eru það kerlingarnar sem glápa svoleiðis á lappirnar á manni. Ekkert að fela þetta einu sinni. Þær leyfa sér að mæla mann út og suður. Svo erum við að kvarta undan mönnunum!! Frekar vil ég nú að menn horfi á mig heldur en miðaldra konur með barnabörnin. Þær leyfa sér að stara og glápa eins og þær vilja og maður verður rauður í framan af þessu öllu saman og endar bara í síðbuxunum aftur. Kerlingar, hvernig stendur á þessu? Ekki það að Íslenska þjóðin þjáist af glápu, sem er sjúkdómur sem lýsir sér þannig að maður festir augun á einhverjum einstaklingi og getur með engu móti tekið augun aftur af viðkomandi fyrr en hann er útmældur og útglápinn. Kenningar eru uppi um að þetta sé erfðagalli í íslendingum og megi rekja þennan sjúkdóm allt aftur til víkingatímans þegar menn gáfu hvort öðrum illt auga og hjóu mann og annan með augnaráðinu einu saman.
4 Comments:
At August 10, 2005 ,
Anonymous said...
Er það ekki bara af því að Forski er eitthvað svo annars hugar þessa dagana og hefur klætt sig í korselettið utanyfir sumarkjólinn og er ennþá í eldrauðu 20 cm. háu pinnahælaskónum með fjaðraskrautinu sem hún klæðist við sérstök tækifæri heima hjá sér?
At August 10, 2005 ,
Anonymous said...
Það er bara tvennt sem hægt að er að gera við svona gláperíi:
a) Ulla á fólkið og segja "hættu að glápa eins og eldgömul sápa"
b) Hætta að horfa á fólk, þá hættir þú að sjá gláperíið. Að vísu þá sérðu heldur ekki gömlu vinkonu þína í Smáralind fyrr en hún labbar þig niður, þú sérð sennilega heldur ekki fallega karlmenn sem horfa á þig, já nei, þegar ég spá í þetta þá er b) handónýtur kostur. Mæli bara með a)
At August 10, 2005 ,
Anonymous said...
Og hvað er málið stelpur með konur í almenningssturtuklefum?? Ég ætla að ulla á kerlingarnar næst, eða ég get líka troðið mér inn í skáp og reynt að klæða mig þar...
At August 10, 2005 ,
Anonymous said...
Æi, hvað ég er fegin að heyra að einhverjir fleiri en ég sváfu af sér alla tímana í Glápi I og Glápi II í barnaskóla og kunna því ekkert í almennu glápi heldur. Ég hélt ég væri ein um þetta vandamál.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home