Forskaren

Tuesday, August 09, 2005

Sápuóperur Part II

Það er sko alveg rétt. Ég get ekki sleppt hendinni af manninum mínum og núna er ég að skrifa þetta með tánum. Það er svo mikið búið að vera að gerast undanfarið að ég hef ekki einu sinni komist í heimsókn til hennar Grumpu til að segja allar sögurnar. Núna er ég semsagt að vinna að öðru bindi sem á að koma út fyrir jólin. Bindið á að heita ,,Ást í leynum og líka í meinum". Based on a true story. Annars er skólinn að fara að byrja aftur og þá hellist yfir bloggara allskonar ismi á ný. Núna verður það því miður ekki Pan og félagar hans, heldur meira í ætt við Hollywood leikara og síðan feminískar bókmenntarannsóknir sem muna væntanlega taka allan minn tíma í haust, ásamt hernaðarrannsóknum að sjálfsögðu. Mér var falið að rannsaka hermann einn sem býr hérna á Íslandi og athuga í hvernig ástandi hann er. Þetta verður krefjandi verkefni en það er ekki laust við að Forska hlakki svolítið til verkefnisins.
Annars langar mig að spyrja hvort einhver er búin að prófa nýja strætókerfið?
Er þetta kerfi grín eða hvað? Núna fer maður allt í einu upp í Gunnarsund í Hafnarfirði þar sem bíllinn stoppar í hálftíma og bakkar svo út áður en hann fer alla leið upp í Rauðavatn til að taka bensín og svo fer hann loksins um kvöldmatarleytið niður í Hamraborg þar sem allir farþegar skipta um vagn og fara upp í hestvagn með fjórum hestum skeyttum við og um miðnætti er komið upp í Smáralind þar sem þú þarft að gista í tjaldi til að komast í vinnuna daginn eftir. Ég er viss um að þessi kona sem hannaði þetta leiðarkerfi hafi lokið grunnskóla, farið svo í MR á styrkjum foreldra sinna og fengið bíl til umráða að sjálfsögðu. Síðan hefur hún farið í söngnám til Skotlands og keyrt þar hinumegin á götunni allan tímann í limosínunni sem pabbi gamli hefur borgað. Þessi kona hefur pottþétt aldrei stigið upp í strætó og ég er viss um að hún hefur aldrei þurft að taka strætó í vinnu eða skóla. Af hverju ekki að láta Grumpu 101 og Tensai 107 sjá um þetta. Ég held að það væri betri hugmynd.

1 Comments:

  • At August 09, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Scoble's back! Interesting post about thin clients.
    Back in my dot-con days, we ran our company largely on Sun SunRay thin clients. It was great for the developers, not so great for the sales, marketing, and business folks.
    Great blog site, lots of info really liked it.

    I have a Ceiling Fan Sale site/blog. It pretty much covers Ceiling Fan Sale related stuff.

    Come and check mine out if you get time.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home