Forskaren

Wednesday, August 10, 2005

Kertaþeyting

ég og Tensai San fórum á kertaþeytingu á Reykjavíkurtjörn í gær. Ekki frásögum færandi svosem. Nema að þegar ég stóð við bakka tjarnarinnar í næturhúminu og horfði á kertin flökta á stilltu vatninu með fagra kórtóna sem undirspil, þá gat ég ekki annað en leitt hugann að því sem ræðuhaldararnir höfðu sagt í ávörpum sínum nokkrum mínútum áður. Þar var því lýst yfir enn einu sinni eins og hverri annarri staðreynd að við Íslendingar værum svo friðsöm þjóð og ólíkt öllum öðrum að þá myndum við aldrei láta hafa okkur út í stríð og við myndum aldrei fara svona með náungann eins og vondu hermennirnir í Írak og Afganistan gera. Við myndum aldrei drepa mann og annan. Við myndum bjóða hinn vangann og strjúka hvort öðru blíðlega í friðarskyni.
Þetta getur ekki verið fjær raunveruleikanum. Við Íslendingar höfum bara aldrei upplifað neitt í mannkynssögunni. Stríð og friður er fylgifiskur mannkynsins og hefur alltaf verið og mun alltaf vera. Þetta er staðreynd sem ég held ekki að allir séu búnir að átta sig á. Við mannkynið berjumst og sættumst. Þannig erum við. Ekki misskilja mig samt. ég er ekki fylgjandi stríði. Ég er mjög friðsöm kona og fæ það ekki einu sinni af mér að ulla á konugrey sem er haldin glápu á háu stigi (þó það sé í sturtuklefanum meira að segja). en mér finnst stundum íslendingar bara vera svo einfaldir. Við höfum það bara alltof gott stundum held ég. Ekki að það sé neitt slæmt. Maður má bara stundum kíkja út fyrir boxið.

15 Comments:

  • At August 11, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég veit ekki betur en að við séum með í þessu stríði þarna í Afganistan og í Írak. Mönnunum sem við kusum til að fara með okkar forræði í svona málum fannst það bara fín hugmynd fyrir utan það að hér hefur ekki tíðkast undanfarin ár að gera annað en Bandaríkjamenn ákveða að sé rétt. Svo fengu líka nokkrir kallar að fara og vera með í öllu stuðinu og fá að vera með byssur og allt og líta kúl út á ljósmyndum

     
  • At August 11, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Er ekki gráupplagt að apa bara allt upp eftir Bandaríkjamönnum, þurfum þá ekkert að hugsa sjálf?Stríð, byssueign, hamborgararassar, sjónvarpsgláp, glæpir, fátækt og síðast en ekki síst að fara að kenna fallegu söguna um Adam og Evu sem vísindi?

     
  • At August 11, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Talandi um kerlingagláp hér áður, þá er þetta talinn góður siður hér í sveitinni. Þú glápir all hressilega á móti, þá glápir hin enn harðar og svo þegari þið mætist í miðju glápi eru þið orðnar vinkonur og farnar í kaffi og kökur heim til hvors annars. fallegur vinskapur er orðin til!! Svo má að vísu bæta við að hér eru allir í gúmmístígvélum og síðum pilsum svo glápið er ekki eins siðlaust og í höfuðborginni!

     
  • At August 11, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Og ef einhver er að spá í búningsklefana þá er svarið "já" hér eru allir í gúmmístígvélum þar líka!

     
  • At August 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    þegar vel viðrar í sveitinni og fólk vill skarta sínu fínasta pússi þá eru teknir fram gúmmískórnir og konurnar setja upp rósóttar slæður

     
  • At August 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Og nú er hægt að kaupa sér rósótt stígvél...

     
  • At August 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    These boots are made for walking,
    And that's just what they'll do
    One of these days
    These boots are gonna
    Walk all over you

     
  • At August 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Forski! Þettavar kertaFLEYTING, ekki þeyting. Ég meina sástu marga vera grýta kertunum fré sér eins og frisbídiskum? Eða vera reyna fleyta kerlingum? Hvernig gerir maður það annars? Tekur maður bara næstu kerlingu og fleytir henni eitthvað?
    Er annars sammála þér með þetta eilífa "Við erum svo spes þjóð" röfl í Íslendingum.

     
  • At August 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Og svo á bara að kýla fólk sem glápir svona, djöfuls dónaskapur. Bara einn á gúmorinn og þá glápir það ekki meir þann daginn.

     
  • At August 12, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ó já, umræðan var víst um stríð og frið og kertaþeytara. Við í sveitinni erum svo fjarri heimsósómanum að gúmmístígvél virðast mikilvægari en friður á jörð... sorrý... best að fara að kíkja aðeins á fréttirnar og sjá hvað er að gerast fyrir utan boxið!

     
  • At August 15, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Þeytti einhver kerti í höfuðið á Forska sem hefur ekki rankað við sér ennþá þó Valentínó skvetti á hana ilmsöltum og köldum bökstrum? Hún virðist alla vega horfin af yfirborði jarðar, kanski föst í 7. himni:)

     
  • At August 16, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Forskaren
    Ertu þá farin frá mér?
    Hvar ertu núna?
    Hver liggur þín leið?

     
  • At August 19, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Foooorskiiiii......! FOOOORSSKIIIIIII......! Ekki skilja okkur eftir ein þá fer allt í vitleysu. Komdu aftur...

     
  • At August 26, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Tapað ófundið:
    Ung kona á rósóttum sumarkjól og síbrosandi hvarf að heiman frá sér fyrir 2 vikum. Síðast sást til hennar þeyta kertum við Reykjavíkurtjörn og óstaðfestar fréttir herma að hún hafi sést elta dáta í einkennisbúningum á menningarnótt
    Allar upplýsingar vel þegnar!

     
  • At August 27, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    uppskeran er að skemmast og túnin eru óslegin meðan ég bíð eftir fréttum af Forskarenum....

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home