Forskaren

Tuesday, September 06, 2005

Blind date og fleira skemmtilegt

Jæja, haldiði ekki að ég og minn íðilfagri foli hafi komið Kokksa á blint stefnumót núna seinustu helgi. Og viti menn?! Það var eiginlega ekki hægt að draga upp verri lúða en þann sem mætti á svæðið. Sko, í fyrsta lagi var hann algerlega ógreiddur, og þá er ég ekki að tala um ,,sexy just out of bed hair" eða ,,just came from the shower and I am too sexy for my hairbrush" hárgreiðslu ..... ó nei, það var sko ekkert í þá áttina. Heldur var hárið á honum strítt og útum allar áttir. Það benti bæði í suður og austur og gott ef það var ekki Norðvestan átt í hárinu á honum líka. Hann var líka klæddur í vængjapeysu sem var í tísku árið 1983 og ég er alveg viss um að peysan var ekki deginum yngri en 22ja ára. Hann sat síðan hokin í baki allan tímann og hafði ekkert að segja. Manngreyið skildi svo ekkert í íslenska aulahúmornum sem var viðhafður við borðið. Það skondnasta við þetta var að manngreyið hélt því fram að hann væri hinn mesti womaniser og færi létt með að ná sér í hvaða dömu sem er..... Kokksi hljóp öskrandi í burtu og núna er Kokksa shaped hole á veggnum á Oliver. Minn íðilfagri gullinhærði ástarguð er semsagt hér með leystur frá störfum sem hjónabandsráðgjafi og stefnumótafrömuður.
Annars er Forski aftur farin að forska og það af mikilli ástríðu. Núna þýðir ekkert annað en að borast ofan í bókmenntafræði kenningar og rýna í texta með fagmannlegu yfirliti. Núna þýðir sko ekkert elsku amma og að hafa einhverja samúð með Pollíönu eða Önnu Frank. Núna verður allt greint í tætlur með nútímalegri nýrýni sem ég er að hugsa um að hanna alveg útfrá sjálfri mér. En það er að greina textan útfrá maskúlínískum klínískum og pólitískum aðferðum og skeyta hvorki um lesgildi né fagurfræðilegt umhverfismat. Eitthvað í þá áttina. Ég fæ þetta örugglega birt í Skírni í vor eins og Móðir jörð verður svo fræg fyrir. Annars frétti ég frá henni í dag að hún er að setja saman útvarpsþátt þar sem hún ætlar að segja selasögur á milli þess sem hún ætlar að baula (eða jarma) eins og selur og líkja eftir dýrinu í háttum öllum. Það verður ansi fróðlegt að heyra þann útvarpsþátt á sunnudagsmorgnum.
Jæja, best að halda áfram að lesa um uppreisnina gegn bókmenntafræðikenningunum á 20. öld. Þetta er æsispennandi lesning. Mig langar svo að vita hvort uppreisnin tekst eða ekki.

7 Comments:

  • At September 06, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Og hverra manna var þessi maður? Hvað hafði hann til brunns að bera? Sýndi hann ykkur mynd af mömmu sinni?
    Áhugaverð bók um þessa uppreisn. Verður örugglega ein af þessum bókum sem Monopoly ætlar að lesa þegar hún er orðin löglegt gamalmenni, þá ætlar Monopoly að vera búin að sanka að sér bókum sem gott er að sofna út frá, í staðinn fyrir sveftöflurnar.

     
  • At September 06, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Greinilega deit from hell (að vísu fylltist ég smá samkennd varðandi þetta með hárið....hummm). Og varðandi útvarpsþáttinn þá verður ekki bara selahljóð heldur líka krumma og refa. Krúnk, krúnk og agg gaga! Hlusta nú kæru landsmenn.

     
  • At September 07, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég hefði nú haldið að Kokksi ætti eitthvað betra skilið en einhvern Billy Joe Bob frá Alabama, hillbilly nörd með sítt að aftan, í smekkbuxum og köflóttri skyrtu tyggjandi skro. Kom hann kanski líka á Ford pick-up árgerð ´67?
    Er ekki annars metrómaðurinn ennþá in? Þessi sem á bara að brosa og vera sætur og kann að setja í þvottavél.

     
  • At September 07, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Stendur valið á milli Billy Joe Bob eða Metrómannsins, sem á fleiri skópör en maður sjálfur, er með meira að snyrtivörum og eyðir meiri peninga í föt heldur en BKBK til samans á árunum 1980-1990 (uppreiknað á núvirði í íslenskum krónum)? Ég vel ævarandi einlífi, ef ekkert betra er í boði.

     
  • At September 07, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ég held að Kokksi toppi auðveldlega snyrtivörukaup BKBKs með... látum okkur sjá.... einum skreppitúr í apótekið!!!! Fatakaup .. var þetta ekki allt á einhverjum flóamarkaði? En bíðum og sjáum þegar karlpeningur þorpsins er búinn að ljúka haustverkunum og leggja traktornum fyrir veturinn er aldrei að vita nema þeir fara að biðla til Kokksa

     
  • At September 07, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já Kokksi kom til okkar Hammer og fékk að krassa í sófanum. Það varð samt lítill svefnfriður um nóttina því stöðugt heyrðust fúkyrði úr sófanum um einhvern glataðan kall með ljóta hárgreiðslu. Svo strunsaði Kokksi bara út í býtið næsta morgun og sagðist vera farin fússi í sveitina aftur.

     
  • At September 07, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Og hefur einhver séð bókadruslurnar sem Forski ætlar að rýna í þessa önnina? Ég meina er ekki allt í lagi? Þær heita nöfnum eins og: "The most boring book ever written by Professor Dustflicker" eða "How to fall fast asleep while reading depressive books by cand. mag. ph. doctor abc. Frodombus" svo ég tali nú ekki um "Hemmeligheden om kedelighed i boger from hela werden, skrivet av doctor Hörskrabble Hövedstörerelse"
    Við megum ekki gleyma að huga reglulega að Forska og ég skal taka það að mér að leita reglulega á Hlöðunni þar sem ég bý í næsta nágrenni. Og hef þá með mér kaffi og bakkelsi og smá ginseng og hárbursta.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home