Óskilningur
Ég skil ekkert í þessu. Ég sat hérna sveitt yfir blogginu eftir hádegi og sagði frá raunum mínum í listfræðitíma í gærmorgun. Ég seifaði meira að segja póstinn og allt saman en allt kom fyrir ekki. það er bara eins og ég hafi aldrei sest niður og ort þessi fögru orð. Ætli þau séu ekki týnd í Cyberspace forever og finnast kannski við innrás frá Mars einhvertíma í framtíðinni.
Annars er svosem ekkert að frétta...er enn uppi í hlöðu að vesenast....sem er eiginlega ekki rétt því að ég er búin að fara upp í Kringlu og dingla mér en er núna komin aftur upp í bókasafn til að lesa aðeins meira.
Hvað á annars að þýða hjá henni Grumpu að æða svona út fyrir landsteinanna án þess að láta nokkurn mann vita af ferðum sínum? Eru ekki bara stórhættulegir Serbar í Króatíu sem muna ræna henni aumingjas Grumpu og fara með hana upp til fjalla. Annars er ég ansi hrædd um að hún muni fordæma þá svo illilega og bölva svo mikið á íslensku að að þeir þora ekki öðru en að sleppa henni og lána henni ábyggilega asna til að fara til byggða á. en þar mun Grumpa kannski hitta fyrir jóðlara mikinn sem hefur aldrei farið neðar en 2000m undir sjávarmál. hann mun syngja henni lofsöngva og mansöngva marga og hún að endingu sest þar að og verður þá í alvörunni Baronessa von Grumpenhofen aus Kroatzien.

6 Comments:
At September 10, 2005 ,
Anonymous said...
Ruglaðist þú ekki bara á verklegu prófi í mannfræði og listfræðitíma?
Von Grumpa hafði samband í gær, það var búið að ræna henni einu sinni, en rænigjarnir skiluðu henni hið snarasta eftir að hún byrjaði á hinum fræga pistli sínum um andfeminiska hegðun karla í post-modernisku samfélagi Vesturlanda, með smá Alice Cooper tilþrifum
At September 10, 2005 ,
Anonymous said...
Það var nú gott að heyra að Grumpa er að skemmta sér þarna úti.
At September 14, 2005 ,
Anonymous said...
Dagur, dagur, dagur
Dagur, dagur, dagur
Hver dagur án bloggs
Er dagur án bloggs
At September 14, 2005 ,
Anonymous said...
Listfræðinemar eru þá ekkert ósvivaðir þorpsbúum hér. Og það er ósköp venjulegt fólk!!! Er Forski bara ekki búin að vera of mikið innan um einhvert snobbað Intrum pakk????
At September 15, 2005 ,
Anonymous said...
Móðir Jörð, Þorpið þitt endurspeglar ekki vel þessa meðal Jónu á Íslandi. Í fyrsta lagi eru allt of fáir jeppar þarna, í annan stað labbar fólk í Þorpinu, það ræktar sitt eigið grænmeti OG borðar það og börnin eru ekki í merkjafötum.
At September 15, 2005 ,
Anonymous said...
Einmitt, ekta listfræðingar!
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home