The faceslapper
Það var þó aldrei að Forski yrði alveg brjál og lemdi sinn heittelskaða létt á kinnina og æpti á hann fúkyrðum sem sæma myndu frekar í Harlem eða Brooklyn. Jú, viti menn, haldiði ekki að ástarsambandið hafi allt farið útum þúfur (eins og það hafi ekki verið þegar farið útum þúfur, holt og hæðar....) seinustu helgi. Eftir situr Forski harðákveðin í því að hitta aldrei fyrir mann sem hlustar á Michael Bolton og helst ekki að tala við mann sem kann einu sinni ensku. Ég held að ég fari næst á deit með Færeyingi frekar sem mætir í gúmmístígvélunum með arfa í hendinni.
þetta er nú búið að vera meiri ævintýrið. Núna er ég ekki kölluð annað heima hjá mér nema the faceslapper. Og nú fæ ég öllu mínu framgengt því nú eru allir hræddir við að fá kinnhest ef ekki allt gengur eins og í sögu hjá Forska. en þar sem Forski er nú friðsæl manneskja með eindæmum þá er náttúrulega engin hætta á slíkt muni gerast. Þetta með að hlaupa hægt á ströndinni endaði eiginlega bara í sandkasti, kaffæringu og almennum slagsmálum. Þannig að nú erum við bæði í rifnum fötum, hundblaut og öll útötuð í sandi. þannig endaði strandferð sú.
Annars er útgáfupartý hjá Tensai San núna um næstu helgi og hlakka ég mikið til að mæta. það er aldrei leiðinlegt að standa með kampavínsglas í fínum skóm og spjalla eitthvað viturlegt og menningarlegt við bókmenntagúrúa og aðra merkismenn. Maður verður nú að reyna að troða sér inn í bókmenntaakademíuna svo maður fái nú kannski eitthvað af atómljóðunum útgefið eftir allan þennan lærdóm og vinnu.

12 Comments:
At October 04, 2005 ,
Anonymous said...
Who is this Gary???
At October 04, 2005 ,
Anonymous said...
Hey hver er alltaf að reyna troða sér inná bloggið hjá Forska?
At October 04, 2005 ,
Anonymous said...
Kinnhestur var það heillin - ekkert annað. Þessir útlendingar eru bara arfavitlausir, mæli frekar með skagfirskum bóndasonum eða sunnlenskum sveinum sem kunna enga almenna mannasiði en finnast konur verða þeirra jafningjar.
At October 04, 2005 ,
Anonymous said...
Ég er sammála Monopoly! Niður með alla útlendinga sem fíla Michael Bolton og syngja með Enrique Iglesias!!
At October 04, 2005 ,
Anonymous said...
Ég segji nú bara niður með alla sem fíla Michael Bolton og syngja með Enrico Íglasi!
At October 05, 2005 ,
Anonymous said...
Go girl!! Já já nú er bara að setja í gang og finna þennan færeying. Réttum er nú öllum að ljúka svo þar fauk það tækifæri, en við bíðum spennt eftir Þorrablóti svo við getum kynnt Forskan inn í smakvæmisheimin hér fyrir austan fjall. Og ekki gleyma að það er hægt að kaupa ansi tískuleg gúmmístígvél nú orðið og kampavín er allt í lagi.. bara ekki neinar bókmenntaumræður nema það sé um rammíslenskt efni, gamlar þjólegar rímur o.þ.h. Já þetta verður spennó!
At October 05, 2005 ,
Anonymous said...
nei nei, ég segi nú ekki að allir útlendingar séu eitthvað slæmir. maður á ekki að vera með fordóma á almannafæri, og ekki heldur heima hjá sér ef því er að skipta. En annars finnst mér Michael Bolton vera bara ágætur og ég fíla Enrique alveg í tætlur skal ég segja ykkur, þannig að ég er svo sem ekkert saklaus af þessu.....
At October 05, 2005 ,
Anonymous said...
Com' on Forski! Michael Bolton og Enrico Íglasi? Nú þarf að fara reyna gera eitthvað í þessum málum. Læða eplasnafsi í kaffið hjá þér eða fara með þig á dáleiðslusamkomu og bjarga þér frá þessum ósköpum! Hvað mundi nú Angus segja!
At October 06, 2005 ,
Anonymous said...
Já Forski lætur sko hendur standa fram úr ermum þegar á þarf að halda. Mín tillaga hvað varðar allar þessar tradísku en um leið kómedísku (a.m.k fyrir okkur hin) ástarflækjur hjá Forska er að hún fái sér bara kött og láti þar við sitja
At October 07, 2005 ,
Anonymous said...
Er Grumpa að meina að hún hafi ekki gaman af öllum þessu ástarsögum sem Forski er að safna????
At October 11, 2005 ,
Anonymous said...
Er Forski einhversstaðar enn að sveifla glösum og syngja Enríke Iglesíaslög síðan um helgina??
At October 11, 2005 ,
Anonymous said...
Forski má ekki hætta að sjá okkur fyrir meiri rómantík heldur en Barbara Cartland.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home