Poststrukturalismi
Jæja, þá er ég farin út úr bænum að hlaða batteríin. Ég ætla að lesa um póststrúktúralisma og ég ætla að lesa um marxíska bókmenntagreiningu og ég ætla að skrifa fulltum fulltum af glósum. Svo ætla ég líka að sitja heilu og hálfu dagana og horfa út á hafið og hugsa. Pæliði í því. þegar ég sit á ströndinni á Eyrarbakka og horfi beint fram fyrir mig. þá er antartika í beinni sjónlínu. How crazy is that?
Hverjum datt í hug að maður mundi enda við sjóinn á Eyrarbakka í október 2005? Skrítið þetta líf. Til hamingju annars með útskriftina Móðir Jörð! Ég vona samt að hún hafi skipt um skoðun á seinustu stundu og farið frekar í fjólubláa kjólinn sinn.
Heyrst hefur að Tensai San hafi ætt niður í bæ í morgun með fléttur í hárinu og í rauðu frá toppi til táar, vopnuð gjallahorni þar sem hún gargaði útum allan bæ að konur ættu nú að drífa sig ofan í bæ og vera með læti af ýmsu tagi. Ætli DV nái myndum af kellu? Það er aldrei að vita. Annars á víst að fjölmenna á leikritið ég er mín eigin kona núna seinni partinn í nóvember. það er nú aldrei að vita að maður nái kannski Grumpu frá slúðurblöðunum og komi henni á svona eins og eina menningarlega leiksýningu. Það er aldrei að vita svei mér þá. Látiði vita ef ykkur langar að koma með og komið með hugmyndir með dag eða kvöld.
Sjáumst þegar ég er búin að vera á heilsuhæli Eyrarbakka.

6 Comments:
At October 24, 2005 ,
Anonymous said...
Poststructuralismi-er það ekki um uppbyggingu póstþjónustunnar? Alltaf gott þegar akademían og atvinnulífið tengjast saman.
Vona bara að Forski skemmti sér við að horfa á hafið. Aldrei að vita nema eitthvað óvænt gerist. Eru ekki til hafsveinar eins og hafmeyjar á þessum jafnréttistímum? (Eða a.m.k eftir 6. rauðvínsglas)
At October 24, 2005 ,
Anonymous said...
Nei, póststrúktúralismi er um endurbyggingu á skipulaginu í Kópavogi, vonlaus fræðigrein því það eru fáir sem vita það að aðal hugmyndasmiðurinn að skipulaginu í Kópavogi var á sýruflippi lungann úr starfstíma sínum og man ekkert hvernig honum datt önnur eins þvæla í hug og skipulagið í Kópavogi er.
At October 25, 2005 ,
Anonymous said...
Bíddu nú við á ekki að fjölmenna á Sölku Völku þar sem einn í blogghópnum er orðinn æstur Halldór Kiljan aðdáandi?????
At October 25, 2005 ,
Anonymous said...
Já mér skilst að þessi ónefndi aðili hafi lesið allar Laxnesbækurnar og í kjölfarið farið í pílagrímsferð á Gljúfrastein til að geta gengið í spor skáldsins og andað að sér skáldaloftinu í vinnustofunni hans. Síðan þá er hún farin að súpa hveljur þegar hún talar og er farin að reykja pípu
At October 28, 2005 ,
Anonymous said...
Nei nú er mér nóg boðið! Laxnes! Laxnes friggin fífl. Eitt orð enn um þetta stórkostlega ofmetna froðusnakkskáld og ég dembi hér inn 50 síðna níðræðu um þetta prumpskáld sem gerði ekkert af viti alla sína hundstíð og var að lofsyngja einhvern aula með hor og slef sem hét eins asnalegu nafni og Bjartur. Og Salka Valka hvað? Hvurslags nafn er það nú? Getur maður þá ekki bara heitið Bínga Línga? Eða Krípa Skrípa? Og jú veslings ég enda áreiðanlega á stóreflis pípureykingum ef einhver nefnir þetta leirskáld frmar.
At October 29, 2005 ,
Anonymous said...
Hvar ætli Forski sé? Kannski hefur bókaormurinn ætlað að fara niðrí fjöru og eiga þar rómantíska lestrarstund með eintaki af "The Compelte collection of boringism ever written or said since the beginning of time". Og svo hefur kannski flætt að og hrúga af þara gusast yfir stúdínuna og svo hællinn fests í gömlu karfalíki og bókin dottið á milli tveggja steina og Forski lagt sig í lífshættu við að losa skrudduna og sokkið upp að mitti í blautum sandi? Kannski ætti einhver að bjalla í Kokksa og spyrja hvort búið sé að leita niðrí fjöru?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home