Ekki fréttir
Jæja, ekkert svosem að frétta. Nóg að gera í skólanum og nóg að gera í vinnunni. Ég hugsa að ég skrifi lokaritgerðina mína um raunveruleikaþætti og hvernig þeir tengjast harmleiknum og kómedíunni. Mér finnst þetta áhugavert og nú sannast akademískur áhugi minn á menningarlegu gildi raunveruleikaþátta....sko sko! Þetta er sko ekkert útaf því að mig langi til að sjá aðrar kerlingar sitja inni í bíl og grenja yfir einhverjum forljótum karli sem þeim er hvort sem er alveg sama um. Heldur er þetta virkilegur og vísindalegur áhugi. hvað er fólk að hugsa sem fer í svona og af hverju vill fólk horfa á þetta? En það fást kannski einhver svör við þessu í ritgerðinni minni góðu. Annars er ég búin að lenda ítrekað í dónalegu afgreiðslufólki núna um dagana. Ég veit ekki hvað veldur. Kannski er ég föst með grettu í andlitinu eða kannski er það bara útaf því að allir eiga slæma daga í nóvember. Sko, ég var í keflavík um daginn (OOOOOOJJJJJJJ), algjör slorbær, en ég þurfti nú samt að fara þangað og eftir rúnt í kringum öll White Trash hjólhýsin og dapurleg kofaskríbli (sem Keflvíkingar kalla hús nota bene), þá fann ég sýslumanns skrifstofuna. Þar ætlaði saklausi höfuðborgarbúinn að þinglýsa samningnum sínum. En nei, nei, litla stelpan sem sat bakvið borðið ætlaði nú aldeilis að vera sheriff og ætlaði að senda mig aftur í bæinn til að kaupa löggiltan skjalapappír til að ljósrita leigusamninginn á. ég hélt nú ekki og gretti mig framan í hana þangað til að hún viðurkenndi að þeir gera þetta nú alltaf fyrir fólk. Skjalapappírinn lá bara á borðinu fyrir framan hana. Svona dónalegheit eru til háborrinar skammar, en ekki nóg með það heldur fór ég með Tensai og Kokksa á TGI Fridays um daginn og haldiðið ekki að stelpan þar hafi verið orðin svo þreytt á hvað við átum mikið að þegar við ætluðum að panta okkur dessert, þá stóð hún hinu megin í salnum og kallaði yfir með borðtuskuna á lofti: ,,hvern anskotanum viljið þið eiginlega fá", ástæðan fyrir óþolinmæðinni í starfsfólkinu var að það var verið að setja upp jólatréð inni hjá þeim og þar sem starfsfólkið er aldrei eldra en 12 ára þarna inni, þá voru náttúrulega allir með stjörnur í augunum og vei þeim sem ætlaði sér að trufla krakkana við dansinn í kringum jólatréð. en við fengum desertena okkar í lokin og þá var puttafar í ostakökunni minni og svo var búið að skrifa DIE SUCKER í kaffið mitt....ég skil ekkert í þessum ungdómi í dag svei mér þá.....
3 Comments:
At November 27, 2005 ,
Anonymous said...
Ég meina af hverju ætti maður líka að fara til Keflavíkur? Forski þú átt alla mína samúð eftir ferð þína í gamla Bítlabæinn (og hvað er málið að vera kalla eitthvað krummaskuð útá landi bítlabæ?)
At November 28, 2005 ,
Anonymous said...
Og hvað er það að fara á sveitta hamborgarabúllu eins og TGI Fridays? Ekkert skárri en Svarti Svanurinn og þar kostar samskonar rottuborgari ekki nema 490 með frönskum. Ég hélt að Forski léti ekki sjá sig á öðrum stöðum en Holtinu og Grillinu á Hótel Sögu
At November 30, 2005 ,
Anonymous said...
Já hvernig ganga BA- pælingarnar? Ætlar þú kannski að setja upp þitt eigið sjóv? Ég er hætt við draumaraunveruleika hugmyndina mína og er komin með nýja... skrifa meira næst
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home