Forskaren

Tuesday, November 15, 2005

Pulp Fiction og Kill Bill

Haldiði bara ekki að Forski hafi átt þessa skemmtilegu helgi í henni Reykjavík? Ég fór út að borða á Grillinu á föstudaginn, út á Hótel Holt á laugardagskvöldinu og á Ítalíu og Austur Indíafjelagið á sunnudaginn. Geri nú aðrir betur en það! Annars fór ég líka á Oliver á föstudagskvöldið og sá þar að sjálfsögðu Quinten Tarantino sjálfan. Hann var þar með fullt af fólki. Friðrik Þór var þarna og hann Balti sem lítur reyndar út eins og Robison Krúso...Ég hljóp upp að Quinten karlinum og sagði ,,How you Dooiing?" og þá sagði hann, ,,Who the hell is this? Shoot this punk"...eða eitthvað í þá áttina...en svona bara ykkur að segja þá þorði Forski svo ekkert að segja neitt við hann. Var bara á dansgólfinu við hliðina á honum og flissaði eins og skólastelpa.
Mér tókst meira að segja að fara í afmælisveislu í Vogunum á sunnudaginn. Og við gestirnir sem vorum samferða suður eftir vorum alveg sammála um það, að aldrei hefur það verið svona mikil fyrirhöfn að komast í eitt afmælisboð. Það þurfti að sjálfsögðu að stoppa í Smáralind og pakka gjöfunum, svo þurfti að fara út í blómabúð og kaupa blóm, svo þurfti að heilsa öllum aðdáendunum hennar Tensai San sem eltu hana útum allt æpandi og skrækjandi. En ekki nóg með það, heldur það þurfti að fara niður í bæ og ná í einn gestinn sem vildi endilega pakka öllu inn í bílnum. Svo voru auk þess tvær kökur aftur í bílnum sem enduðu næstum því líf sitt í aftursætinu. Og svo villtist Kokksi að lokum í stórborginni og bölvaði og ragnaði allan tíman. Kokksi kvartaði sáran yfir Kapítalismanum og vegagerðinni, fólksfjölda og ökumönnum sem keyrðu of hægt. Ég er alveg viss um að hún gretti sig framan í alla vega tvö hjón á eftirlauna aldri og æpti síðan útum gluggan: ,,Fariði af veginum þarna pönkararnir ykkar!!!" Eitthvað í þá áttina. En jæja, það er best að ég fari aftur fram að lesa fyrir hópverkefnið í feminískum bókmenntarannsóknum.
Lifið heil.

11 Comments:

  • At November 15, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Kom Forski nokkuð nálægt þessum viðburði sem var sagt frá í DV og við vitum að DV lýgur aldrei:
    "Ung kona hellir úr rauðvínsglasi yfir Tarantino, segir hann vera karlrembusvín og slær hann að lokum með handtösku"

    Nú Kokksi hefur ákveðið að hætta sér til stórborgarinnar! Hélt að hún væri endanlega flutt til Barnalands

     
  • At November 15, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Nei, það var sko ekki ég!! Það var hins vegar ég sem bumpaði karlinn af dansgólfinu og sagði: ,,Move your ass Punk".... Annars var ég alveg stillt og prúð. Ég er nefnilega búin að komast að því að þegar ég er ekki í kringum Grumpu eða Clark Kent, þá er ég hin prúðasta snót....

     
  • At November 15, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Bíddu, er búið að hækka námslánin? Þegar ég var í námi hafði ég í mesta lagi efni á að kaupa mér grillaða pylsu í pylusvagninum, og drakk Campari því það var svo fjandi ódýrt.

     
  • At November 16, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Bara svo það sé á hreinu þá er þessi Kill Bill dírektor svo ljótur og óþolandi masgjarn að það væri hrein kvöl að hitta hann í eigin persónu.....

     
  • At November 16, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Tarantino er sko bara fallega ljótur. Masgjarn já, örugglega en er betra að vera masgjarn Ameríkumaður eða "masgjarn" bóndi í uppsveitum Árnessýslu sem talar á þriðjudögum þegar það er z í mánuðinum?

     
  • At November 16, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Hva... á ég að trúa því að Tarantino hljóti meiri hylli hjá ykkur en þögli axlabreiði Heikir eða Þengill (bræður þið skiljið) úr sveitinni....

     
  • At November 17, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Jú, rétt er það. Námslánin hækkuðu um 200% á einum mánuði hjá Forska og hún eyddi því öllu á veitingarstöðum Reykjavíkurborgar.

     
  • At November 19, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já og nú er Forski svo fátæk að hún át allt súkkulaðið sem var til á auðmjúku heimili okkar Hammers. Hún át það allt og við skötuhjúin máttum teljast heppin að hafa þó náð í smá mylsnu sem varð eftir í bréfinu. (Reyndar náði Hammer ekki í neitt, bara ég)

     
  • At November 20, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Eins gott fyrir Tensai San að fela allar 18 sortirnar af smákökum sem hún er örugglega búin að baka fyrir jólin áður en Forski étur þær líka allar upp til agna

     
  • At November 21, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já ég sé það að ég þarf að fara finna einhvern felustað í húsinu fyrir súkkulaðið mitt. Það er verst að Forski og Tensai eru með eitthvað sjötta skilningsvit þegar kemur að súkkulaðinu og ganga alltaf beint að því alveg sama hvar ég geimi það. Já það er erfitt að búa með tveimur konum!

     
  • At November 21, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Súkkulaði er ekki til að geyma! Það er til að borða!!

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home